Hlín - 01.01.1921, Side 35
Hlín
33
uninni (þeirri 10. eða 20. á þeim vetri), nei, ekki enn,
bráðum. Og Siggi fær að ráða. Hann er uppgefinn af
leikum, uppgefinn af vökum og ófær til náms og starfa
næsta dag. Það þarf að gera við tennurnar í Sigga, þær
er allar af göflunum gengnar, og hann þarf að taka lýsi,
því hann er blóðlítill, en það er sárt að gera við tenn-
urnar og lýsið svo afleitlega vont, að ekki verður neitt
úr neinu. — Pað er skipulagsleysi, agaleysi, óhlýðni og
stefnuleysi hvar sem litið er. Það er mikið talað um ó-
þekt og leti bæði við kunnuga og ókunnuga, en mest
við Sigga sjálfan, en það dugar lítið. Siggi er mintur á,
hve Ounna systir hans sje þæg og viljug, en það sann-
ar ekkert, því Ounna er þæg og viljug að eðlisfari, svo
það hefur aldrei þurft að skifta sjer neitt af henni í þeim
efnum, en það er stórfurða, að Siggi greyið skuli ekki
vera langtum verri en hann er með þessu lagi.
Pað er eklci einungis, að illa siðuð börn sjeu plága á
hverju heimili, og foreldrarnir, einkum mæðurnar, sár-
þreyttar af því stríði, heldur er og bitinn svo bakfiskur-
inn úr unglingunum sjálfum með þessu háttalagi, að
þeir bíða þess seint bætur. — Enginn getur með sann-
girni ætlast til mikils af þeim, þegar svona er í pottinn
búið.
Pessi hausavíxl á hlutunum, að börnin stjórna, en
foreldrarnir hlýða, eða beygja sig, stafar af miklu Ieyti
af alvöru- og athugaleysi foreldranna og af skilnings-
og þekkingarleysi þeirra á sálarlífi barnanna. Pau hafa
börn sín að leiksoppi í fyrstu, ög halda að öllu sje ó-
hætt, en áður en varir eru börnin orðin harðstjórar, en
foreldrarnir þrælar. — »Jeg spyr: Hvað veldur ódygð
flest, eykst nær daglega og fjölgar mest? Umsjónarleysi
er orsök hæst,« . . . segir í gamalli og góðri bók. —
Já, það er hluturinn, hirðuleysi og ábyrgðarleysi, og svo
tískan, sern helgar agaleysið, þegar hún kemur til sög-
unnar, er ekki að sökum að spyrja. — Hræðsla margra
3