Hlín - 01.01.1921, Page 45

Hlín - 01.01.1921, Page 45
Hlin 43 vopnum og kiæðum, sem samtaka hlýða á augabragði, stuttorðum snöggum skipunum snjallrómaðra fyririiða — jafnvel út í rauðan dauðann. En agnúi er á. Óttalegt að vita þá heimsku mannanna að nota svo góða krafta með því markmiði að deyða menn og brjóta borgir til að sölsa undir sig guli. Eigin- girni þjóðar er að sama skapi háskalegri en eigingirni einstakra manna sem þjóðin er margliðaðri einstaklingn um. En slík eigingirni er kölluð ættjaróarást. Og miljóna- morð eru framin í hennar nafni. En einhverntíma kemur að því, að bróðurþel vaknar með öllum þjóðum og brennandi áhugi fyrir bandalagi allra breiðist sem næmt faraldur um heim allan. Líkt og á krossferðatímunum, þegar sú hugsjón hreif alla góóa menn að vinna »landið helga«. »Ouð vill það« hrópaði fólkið. Viljan vantaði ekki þá, en kraftinn vantaði, því menningin var komin svo skamt. Hún kemst seinna sinna ferða. »Kemst þó hægt fari, húsfreyja!« ef viljinn er vakinn. Einhvern tíma rætist draumur hinna bestu spámanna, að alt jarðríki verði sameiginleg ættjörð allra manna. Og sameiginlegur her útboðinn og útbúinn af öllum þjóðum — sameiginlegur riddaravörður um sáttmálsörk þjóðanna vaki yfir veraldarfriði og standi á verði gagnvart öllu órjettlæti. — Jeg bið góðan lesara forláts, ef hann sundlar á þessu hugsjóna ferða- lagi. En við verðum að muna hvað bilið á milli þjóðanna er stöðugt að styttast. Jörðin er að minka, af því hugur okkar vex og þroskast. Óraleiðir eru að verða að bæjarleiðum. Og sú meðvitund mun vakna betur og betur og verða að sannfæring, sú sem áður var aðeins óljós trúargrylling, að Iífið okkar í líkamshamnum sje örstutt augnablik ómælanlegs langlífis á stöðugri fram- þróunarbraut. VII. Látum okkur að endingu halda okkur við heimahag-

x

Hlín

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hlín
https://timarit.is/publication/610

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.