Dvöl - 01.07.1945, Page 45
DVÖL
187
Það skriplaði á skötu
Sigurður Kristjánsson þýddi
Frásögn þessi er þýdd úr „Fiska-
bókinni“ (The Book of Fishes),
sem gefin er út af ameríska land-
fræðifélaginu, og er frásögnin
skráð af John Oliver La Gorce,
varaforseta félagsins. Kaflinn er
lítið eitt styttur í þýðingunni.
Fisk þann, er frásögnin fjallar
um, kalla Ameríkumenn fjanda-
fisk eða skollafisk (Devilfish). Það
er risastór skötutegund, sem heitir
á máli vísindamanna Manta biro-
stris. Lifir hún í Golfstraumnum
úti fyrir ströndum Flórídaskagans.
Skata þessi notar börðin svipað
og fuglarnir vængina og getur hún
með þeim „flogið“ afar hratt á-
fram í sjónum. Auk þessara gríðar-
stóru vængbarða eru eyruggarnir
mjög áberandi, og það eru þeir.
sem gera hana þannig útlits, að
hún hefur verið > samnefnd hús-
bóndanum í neðra. Þeir rísa upp
og út á við sinn hvorum megin ofan
á flötum hausnum eins og gríðar-
stór, hreyfanleg horn. Á fullvöxn-
um fiskum verða þeir þrjú til
fjögur fet á lengd og sex til tíu
þumlunga þykkir. Þeir eru gerðir
úr seigum vöðvum og í þeim býr
ótrúlegt afl.
Þegar risaskatan kemur í fiska-
torfu eru horn þessi á stöðugri
hreyfingu og moka fæðunni upp í
gin skepnunnar.
Sagnir eru um það, að skolla-
fiskur þessi rekist stundum á akk-
eriskeðjur skipa, Þrífur hann þá
um keðjuna með hornunum, lyftir
akkerinu úr botni og leggur af stað
með allt draslið — akkerið, keðj-
una og skipið í eftirdragi, til mik-
illar undrunar og skelfingar fyrir
skipshöfnina, sem ekki vissi betur
en að skipið ætti að vera kyrfilega
tjóðrað við botninn, og ætlar þvi
varla að trúa sínum eigin augum,
þegar það rýkur allt í einu af stað,
án hjálpar frá segli eða vél.
Frá Flórídarifinu eru ekki nema
50 mílur þvert yfir Golfstrauminn
til næstu Bahama-eyjanna. Við
lögðum af stað frá Miami-strönd-
inni á vélskipinu okkar seinni
hluta dags og höfðum 25 feta lang-
an vélbát í eftirdragi.
Ncrcí-áusturfal(ll Golfstraumsins
flýtti för okkar, svo að við náðum
höfn við eyjuna Bimini í rökkri
um kvöldið. Þessi litla eyja sem er
vestust af nyrðri Bahama-eyjun-
um, hvílir þarna i fagurbláum
bylgjum hafsins eins og gimstein-
um prýdd dúnfjöður. Þetta er dá-
samlegur blettur, fjórar mílur á
lengd, og innan við mílu á breidd,