Dvöl - 01.01.1946, Síða 5

Dvöl - 01.01.1946, Síða 5
DVÖL Útvarpið fór í gang. Vínarvalsar. Tónarnir svifu í hlýju, sólmettuðu loftinu eins og léttir, ljósir fánar. Veitingaþjónninn bar fram einn martini. Hann var svalkaldur og glitraði í sólskininu. — Notalegt að sitja svona hérna, er það ekki, sagði Patt. — Dásamlegt. — En það má ekki vera oft, mælti hún. Við héldum þar kyrru fyrir fram að matmálstíma og fengum okkur að borða. Patt langaði það svo mjög. Það var langt síðan hún hafði stigið fæti sínum út fyrir hælið. Þess vegna fannst henni hún vera helmingi hraustari, þeg- ar hún fékk að borða í þorpinu. Antoníó sat hjá okkur. Við ókum til baka, og Patt fór upp í stofuna sína til þess að hvila sig i tvo tíma. Köster og ég tókum vagninn út úr skýlinu og skoðuðum hann. Patt kom niður til okkar. Hún var afþreytt og hress að sjá. Rakkinn hljóp gjammandi í kringum hana. — Billí hrópaði ég. Hann þagnaði, en sýndi engin sérstök vinahót. Hann þekkti mig ekki aftur og virtist kindarlegur, þegar Patt vakti athygli hans á mér. Þetta er gangurinn, sagði ég. Guði sé lof, að menn- irnir eru litlu minnisbetri. Hvar var hann í gær? Patt hló. — Hann var allan tímann undir rúminu. Hann er ævinlega afbrýði- samur, þegar einhver heimsækir mig, og dregur sig í hlé, fullur tor- tryggni. Hún gekk að vagninum. Ég hefði ákaflega gaman af að setjast upp í einu sinni enn — og aka svolítinn spöl, bætti hún við. — Auðvitað, sagði ég. Er það ekki Ottó? y — Jú, jú. Þið hafið þykka kápu, og hér er nóg af sjölum og ábreiðum. Patt settist í framsætið við hliðina á Köster, og vagninn rann af stað. Við ókum gegnum þorpið. Það var komið undir kvöld, og hníg- andi sólin varpaði bleikum roða á hjarnbreiðuna. Tveir heystakkar, er stóðu í halla, voru næstum fenntir í kaf. Seinasta skíðafólkið leið niður í dalinn, líkast litlum kommum á hvítri pappírsörk. Það bar í kvöld- sólina, sem sat á fjallshrygg eins og risavaxinn glóðarköggull.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Dvöl

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dvöl
https://timarit.is/publication/619

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.