Dvöl - 01.01.1946, Blaðsíða 48

Dvöl - 01.01.1946, Blaðsíða 48
46 DVÖI þeir vinur hans og útgefandinn inn í skrifstofu forstjórans og settust í djúpa, skinnklædda hægindastóla. „Hér er handritið,“ sagði hinn samvizkulausi, ungi maður. „Þetta er eitthvert djúpúðgasta verk Sivle. Ég hika ekki við að fullyrða, að það muni valda straumhvörfum.“ Herra Eiricksen vó handritið í lófa sínum, líkt og hann væri að verð- leggja innihald þess. Svo blaðaði hann í gegnum það, taldi línurnar á blaðsíðunum og stafina í línunum, og sagði síðan eins og reyndur prent- arasveinn. „Þetta getur orðið tíu arka bók.“ „Ellefu, — segjum ellefu.“ „Tíu. Og verðið?“ „Fimmtán hundruð fyrir fyrstu prentun, tvö þúsund eintök, er reyfara- kaup.“ „Þúsund,“ sagði Eiricksen. „Ekki eyri meira en þúsund.“ Kaupin voru gerð. Vinurinn skrifaði undir samninginn fyrir hönd Sivle, og óskaði eftir því að fá verðið greitt í einum þúsund króna seðli. Það fékk hann og gekk státinn fraip úr forstjóraskrifstofunni fram til Péturs. „Mállaus," endurtók hann. Sivle var risinn á fætur og leit út fyrir að vilja segja eitthvað, þegar Eiricksen kom fram fyrir og byrjaði að hneigja sig fyrir honum. En loks tókst vini hans að teygja hann af stað með sér. Um leið og hurðin lokaðist að baki þeirra, sprakk blaðran hjá Sivle. „Hvaða bölvaður loddaraskapur er þetta?“ „Hægan vinur. Mállaus skáld blóta aldrei. En hvað viltu fá fyrir bók- ina?“ „Bókina? Þú ætlar þó ekki að telja mér trú um að ég fái peninga fyrir hana.“ „Ertu ánægður með fimm hundruð fyrir hana?“ Sivle gapti. Hann hafði aldrei fengið svo mikla peninga fyrir nokkra bók. Hann lagfærði á sér gleraugun og glápti á vin sinn. „Ertu að gera að gamni þínu, eða ertu sjóðandi vitlaus?" „Viltu fá sex hundruð krónur?“ „Nei, heyrðu nú, þú skalt ekki standa hér og gera gabb að mér, þó að ég sé fátækur. Komdu með handritið það snarasta." „Viltu hafa sjö hundruð krónur, Pétur?“ „Farðu til helvítis. Heldurðu að ég standi hér og láti hafa mig að fífli. Upp með bókina annars lúber ég þig.“ „Viltu fá átta hundruð Pétur?“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Dvöl

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dvöl
https://timarit.is/publication/619

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.