Dvöl - 01.01.1946, Blaðsíða 61
D VÖL
59
DOROTHY PARKER er bandarísk
skáldkona, fædd árið 1893, í New
Jersey. Hún lagði snemma stund á
blaðamennsku og fékkst þá nokkuð
við leiklistargagnrýni. En brátt fór
hún að yrkja og skrifa smásögur
og hlaut skjóta eftirtekt og áðdáun.
Hún hefur stundum verið kölluð
fyndnasta kona Ameríku. Persónu-
legustu einkenni hennar hafa verið
ta.lin frábær skarpskyggni og samúð,
samfara hvassri dómgreind og fund-
vísi á örlagaríkustu atvik í lífi manna.
Um þessar mundir er Dorothy Parker,
með allra fremstu smásagnahöfundum
í Bandaríkjunum, og beztu smásögur
hennar eru taldar „Horsie" og „Big
Blonde“, sagan, sem hér birtist í ís-
lenzkri þýðingu.
Sagan er lengri en svo, að fært þætti
að flytja hana í einu hefti, og var
því horfið að því, að skipta henni í
tvö, og mun niðurlag hennar birtast
í næsta hefti.
á hana. — En þegar hún var gift
og lifSi í ró og næði, leyfði hún
tárunum að renna óhindrað. Það
var henni, sem hafði hlegið svo
mikið, óblandin unun að gráta.
Allar sorgir urðu hennar sorgir.
Hún gat grátið lengi og innilega
yfir blaðafrásögn um barnsrán,
yfirgefnar konur, atvinnulausa
menn, týnda ketti eða trygglynda
hunda. Og jafnvel eftir að hún
hafði lagt blaðið frá sér snerist
hugur hennar um þessar frásagnir,
og tárin runnu stöðugt í óstöðvandi
straumi niður ávalar kinnar henn-
ar.
„En hvað það er nú annars mik-
ið af sorg og eymd í heiminum,
þegar maður hugsar um það, Her-
bie,“ sagði hún við mann sinn.
„Já, það er alveg satt,“ sagði
Herbie þá.
Hún saknaði einskis. Hinir gömlu
vinir hennar, fólkið, sem hafði
leitt þau Herbie saman, hurfu brátt
úr lífi þeirra. Þegar hún hugsaði
um þetta allt saman, fannst henni
það vera eins og það ætti að
vera. Svona var hjónabandið.
Þetta var friður.
En sannleikurinn var sá, að
Herbie var ekki jafnánægður með
lífið.
Fyrst í stað hafði hann þó
notið þess að lifa með henni einni.
Honum hafði fundizt þessi sjálf-
viljuga einangrun ný og yndisleg.
En svo fór Ijóminn af því ískyggi-
lega snögglega. Honum fannst sem