Dvöl - 01.01.1946, Blaðsíða 30
28
DVÖI
Mig minnir, að ég hafi einhvern tímann heyrt
talað um það, sem herrann kallar menn.
Menn
Eftir Toivo Pekkanen
Hann kom út úr veitingahúsinu,
staðnæmdist snöggvast á gang-
stéttinni fyrir framan dyrnar og
renndi augunum með fram lág-
um og tilbreytingarlausum húsun-
um báðum megin götunnar. Það
var kvöld í nóvembermánuði —
rigning, stormur og kuldi. Þetta
var eitt af þessum óhugnanlegu
kvöldum, þegar regnið drýpur af
öllu, bæði lifandi og dauðu. —
Hann gat ekki séð neinn mann
á götunni, í hvora áttina, sem
hann leit. Á svona kvöldum halda
flestir kyrru fyrir heima hjá sér.
En það gegndi allt öðru máli um
Heikkinen: því verra sem veðrið
var, þeim mun eirðarlausari var
hann. í hríðum og stórrigningum
gat hann alls ekki hamið sig inn-
an dyra. Gömul föðursystir hans
hafði spáð því, að þessi séreigin-
leiki hans myndi verða honum til
mikillar ógæfu. Hingað til hafði
þó ekki nein ógæfa dunið yfir
hann, og sjálfur skýrði hann
þetta á annan og nærtækari hátt.
Hann ímyndaði sér nefnilega, að
hann væri þannig af guði gerður,
að hann drægi að sér óveður, rétt
eins og þrumuleiðari dregur að
sér eldingu. Það kom jafnvel fyrir,
að hann gortaði talsvert af þess-
um eiginleika í kunningjahópi,
því að hann áleit þessi nánu
tengsl sín við náttúruöflin bæði
sjaldgæf og eftirtektarverð. Það
var líka kannski hinn eini eigin-
leiki í fari hans, sem fáir menn
aðrir voru gæddir.
Hann var nýbúinn að borða fá-
breyttan kvöldverð í veitingahús-
inu, enda fór því fjarri, að hann
væri efnaður maður. Maturinn
hafði þó verið það undirstöðu-
góður, að hann var allvel mettur
og sæmilega hlýr innan um sig.
Hann langaði ekki til þess að fara
að sofa að svo komnu, því að
klukkan var ekki nema tíu, og
stutt gönguför gat aðeins haft
bætandi áhrif á meltinguna. Hann
fór sér samt hvergi óðslega. Nú
fann hann fyrst, hve óþyrmilega
stormurinn og regnið lömdu hann
í andlitið og sneru löfin á yfir-
frakkanum um fæturna á honum.
Hann gekk álútur á móti storm-
inum, og þetta göngulag svipti
hann öllum virðuleik. Þetta hafði