Dvöl - 01.01.1946, Side 18

Dvöl - 01.01.1946, Side 18
16 ÖVÖl ur‘ „En við höfum Náttúrufræði dr. Bjarna Sæmundssonar og Meindýr í húsum og görðum eftir einhvern hinna yngri, — ef þú get- ur notað það?“ „Ég get notað hvað sem er,“ svar- aði ég. „Komdu með það allt, ég skila því aftur í kvöld.“ Allan eftirmiðdaginn og kvöldið þreytti ég æðisgengið kapphlaup við tímann gegnum frumskóga skordýravísindanna, og þó að ég sigraði keppinautinn, þá varð það til einskis gagns, paddan var hvergi nefnd og engin, sem henni líktist, og ég var jafnvel orðinn efaður í, að hún væri af bjölluættinni. — Þannig lauk deginum. Mig dreymdi voðalega um nótt- ina, mig dreymdi, að paddan væri lifandi og sæti um mig í leyni. Ég sá hana ekki, en ég vissi af henni í nánd, og það var myrkur, og ég vissi, að hún hafði gætur á mér og bjóst til að ráðast á mig. Nú var hún nefnilega laus, helvítið að tarna, sloppin úr eldspýtnastokkn- um með fálmarana spennta uþp í loftið, eins og steingeitarhorn, og klærnar og eiturbroddinn og bleik- rauðan, stríhærðan kviðinn iðandi af hryllilegri drápsgirnd. — Loks- ins vaknaði ég, og það var enn nótt, en ég þorði ekki að sofna aft- ur, heldur lá vakandi til morguns og reyndi að hugsa um skáldskap. Alltaf við og við skreið paddan þó inn í hugsanir mínar og beit í sundur þráð þeirra. Það var næst- um vérra en meðan ég svaf. í draumnum hafði hún þó verið álengdar, en nú kom hún alveg til mín, og meira en það. — Amma mín hafði einhverju sinni sagt mér frá margfætlu, sem skreið upp í rúm manns nokkurs og át sig inn á milli tánna á honum meðan hann svaf. Nú gat ég ekki hjá því komizt að hugsa mér pödduna mína gera það sama. Ég fékk krampa í tærn- ar af óhugnan og hrollur fór um mig allan. Og önnur saga enn verri hófst úr djúpunum. Upp úr húm- uðum grafreit áranna reis sagan um manninn, sem eitrið fór ofan í og varð að gleipa átján marflær til þess að halda lífinu. Hann kast- aði þeim upp á eftir, og seytán voru dauðar, en sú átjánda lifandi, af því það var ekkert eitur eftir handa henni í maganum á manninum. Drottinn minn dýri, heldur vildi ég deyja af eitri en taka inn pödd- ur, hugsaði ég. — En haldið þið kannske, að ég hafi sloppið við að reyna þrautir þessa manns — Nei, ég slapp ekki við það. Maðurinn, sem eitrið fór ofan í, — á þessari nóttu var ég hann. Ég fann kval- irnar, sem hann leið í maganum, fann innýflin herpast saman og brenna, — en það var ekkert, ég fann það, sem verra var: pödduna mína milli varanna, milli tann- anna, og halda áfram niður í eitr- ið, fann hvernig hún hámaði það í sig, og drapst í annað sinn. Síðan kastaði ég upp í alvöru og svitinn

x

Dvöl

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dvöl
https://timarit.is/publication/619

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.