Dvöl - 01.01.1946, Page 19

Dvöl - 01.01.1946, Page 19
OVÖL 17 bogaöi af enni mínu og gagnaug- um. — Loksins kom dagurinn til mín austan yfir fjöllin og gaf sál minni róandi lyf, svo ég gat sofið um stund. Ég svaf langa stund, þung- um draumlausum svefni, og var vakinn um dagmál með kaffi. — Kaffið hafði konungleg áhrif á mig. En hvað ég kímdi með sjálf- um mér að ástandi mínu í nótt, en hvað taugar mínar voru aftur í góðu lagi og skáldskapur og vís- indi alls ráðandi í huganum: Klukkan hálf ellefu ætlaði ég að leggja af stað til Reykjavíkur og hafa með mér sjaldgæft skordýr, liklega amerískt, og fá sérfræðinga í borginni til þess að gefa mér upp nafn þess og ætterni, og hvar það ætti heima. Á morgun ætlaði ég síðan að halda ferð minni áfram norður í Skagafjörð og heimsækja skemmtilegasta prest landsins, Halldór Kolbeins á Mælifelli, og horfa á Mælifellshnjúk og Tinda- stól og Drangey og sjá Hólminn, — hvað hann er yndislega sléttur, — og Vötnin blá og breið. — Þetta allt ætlaði ég að gera mér til ánægju, fyrir utan það smáskrítna, sem fyrir kemur á slíkum ferðalögum og enginn veit fyrir fram, hvað verða muni. — Ég var að hugsa um þetta meðan ég klæddi mig í ferðafötin og kom farangri mínum fyrir í tösku. Auk handtöskunnar hafði ég einnig skjalatösku, sem ég notaði undir óskrifaðan pappír, ef mér skyldi detta eitthvað gott í hug á ferðalaginu, einnig nýjasta handritið mitt, sem ég ætlaði að lesa yfir fyrir séra Kolbeins, svo hann gæti heyrt hvað gott skáld ég væri orðinn. Ég var viss um, að hann mundi hrósa mér, og kann- ske líkja mér við Petracco eða Byron eða hver veit hvern, og ég hlakkaði til, þegar hann færi að sálgreina mig og skjóta flugeldum síns eigin andríkis upp á himininn. Að síðustu lét ég pakkann með skordýrinu mínu í töskuna, og ég neitaði mér um að hrista hann áð- ur en ég stakk honum niður, .— ég bara stakk honum niður eins og það væri snýtuklútur eða sápu- stykki, og ég flýtti mér alls ekkert að loka töskunni. — Ég kom til Reykjavíkur upp úr hádeginu og mitt fyrsta verk var að reikna út, hvar ég gæti fengið lán- aðan síma. Ég var staddur niður á Lækjartorgi, en mundi ekki eftir neinum kunningja á þeim slóðum, svo það var ekki um annað að gera en labba upp á Njálsgötu 72 til Kristins Andréssonar. Kristinn kom sjálfur til dyra og leiddi mig til stofu, en þar var þá fyrir ljóðskáldið Steinn Stein- arr. „Hvað er að frétta að austan?“ spurði Kristinn um leið og hann gaf mér bendingu um að setjast niður, en ég sagði honum sem satt var, að ég hefði ekki tíma til að sitja, — og hvað spurningu hans

x

Dvöl

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dvöl
https://timarit.is/publication/619

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.