Dvöl - 01.01.1946, Side 43

Dvöl - 01.01.1946, Side 43
DVÖL Nú vildu meyjarnar vita einhver deili á okkur félögum. Þóttist ég þá vera fóstursonur Jónasar al- þingismanns frá Hriflu, en það fannst þeim trúlegt og hældu fóstra mínum á hvert reipi. Svona gátum við setið og spjall- að saman, meðan sólin glitraði yfir hafinu, og tíminn þaut út í veður og vind. VIII. „Adam var ekki lengi í Paradís“ Áður en varði gullu raddir for- ingjanna. Nú skyldi haldið heim á leið. Flokkurinn var nú æði dreifður, en allir heimtust þó að lokum og eftir það héldum við hópinn. Svo mun hafa verið til ætlazt að „lærðu mennirnir" fræddu þá fá- vísu um ýmis fyrirbrigði náttúr- unnar. Voru því áhugasamir al- þýðumenn sífellt að spyrja og spyrja, en hinir „vísu“ leystu úr með stakri prýði. Eitt sinn sá ég virðulegan borg- ara lúta niður og slíta upp ofur- litla nýútsprungna holtasóley. Virti hann blómið fyrir sér með innilegri hrifningu og ljúfmann- legri aðdáun. Síðan kallaði hann á sérfræðing og spurði hann um heiti sóleyj arinnar, en aðspurður svaaraði með vísindalegri alvöru og festu. Að því búnu snéri borgarinn á brott til að leita nýrra plantna. Þannig fengu allir greið svör við 41 ráðgátum lífsins, og er það vissu- lega dýrmætara en flest annað í þessum heimi. IX. Skammt frá Krísuvíkurbæ er ofurlítill lækjarfarvegur. Á bökk- um hans vex mjúkur og fagur gróður, þar á meðal stórar breið- ur af krossmöðru. Þarna settumst við niður, öll saman, og hvíldum okkur um stund. Veðrið var yndis- lega -hlýtt, en degi var tekið að halla. Öll vorum við glöð og hress yfir ferðalaginu, og þar sem gleði og eindrægni sitja að völdum, leitar fögnuðurinn sér útrásar í söng og ljóðum. Það var víst Ólafur Friðriksson, sem fyrstur byrjaði að „taka lag- ið“ en aðrir komu á eftir. Og þarna sungum við hvert lagið á fætur öðru, jafnt ástarljóð sem ættjarðarsöngva, svo undir tók í hæðum og hálsum. Að lokum urðum við þó að hætta og hraða okkur af stað, þangað sem vegurinn lá, áleiðis til „menn- ingarinnar'. Þá höfðum við um stund notið hinnar villtu og frjálsu náttúru, þar sem blómin anga og allar sorgir sofa.

x

Dvöl

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dvöl
https://timarit.is/publication/619

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.