Dvöl - 01.01.1946, Page 74

Dvöl - 01.01.1946, Page 74
72 DVOL Raddir úr hópnum. Tíu sögur eftir Stefán Jónsson. Útgefandi ísafoldarprentsmiðja. Stefán Jónsson er orðinn kunnur rit- höfundur. Hann hefur skarað fram úr öðrum í því að yrkja skemmtiljóð fyrir börn. Ég er einn þeirra manna, sem á honum þakkarskuld að gjalda, vegna barna minna, fyrir ljóðin. Hann hefur einnig vakið á sér eftir- tekt með því að vinna a. m. k. tvisvar verðlaun í smásagnasamkeppni. Á árunum 1939 til 1945 komu út eftir hann sex bækur fyrir börn og unglinga og voru sumar (ljóðin) endurprentaðar tvisvar á þessu tímabili. Árið 1936 kom út eftir hann smásagna- bók: Konan á klettinum. Árið 1941 önn- ur smásagnabók: Á jörnum vegi. Þessar tíu sögur, Raddir úr hópnum, er svo þriðja smásagnabókin og er hún 200 bls. að stærð. Þetta er bók, sem hver maður er vel sæmdur af að eyða tíma til þess að lesa. Raddirnar eru skýrar og skera sig vel úr allsherjarhávaða hópsins. Sá, sem hefur eyru, hlýtur að heyra, ef hann hlustar. Stefán Jónsson er skáld. En þar að auki er hann greindur maður, sem gerir sér ætíð, •—• það er auðheyrt, -— grein fyrir því, hvað hann er að fara, hefur gott vald yfir för sinni, og takmarkar frásögn sína við erindi. Þetta er miklu meira, heldur en hægt er að segja um alla þá, sem um þessar mundir rita sögur. Sumir yrkja, þótt þeir séu ekki skáld. Og sum skáldin eru ekki greind. Stefán er í sögum þessum skemmtilega háðskur, þegar því er að skipta. Gerir hvorki gælur né er með mjúkmælgi. En gæti valið sér virðulegri söguefni stund- um. (T. d. Uppreisnin við ána), án þess að hann þyrfti til þess að hafa skoðana- skipti eða fá sér nýjan penna. Ég vildi sjú hann færast enn meira í fang, heldur en hann hefur hingað til gert. Hann tekur svo léttilega á þung- um hlutum. Lesandi hinna tíu sagna, Raddir úr hópnum, er látinn koma víða við og heyra margvíslegar raddir. Við bókarlok þykir honum leitt að láta staðar numið og hætta að hlusta. Það er af því, að honum hefur þótt ferðin á vegum höf- undarins um bókina góð. Og svo hefur hún vaklð hjá honum væntingu eftir mikilli útsýn og verulega glæsilegri rödd og fallegri, sem hann gerir ráð fyrir, að Stefán Jónsson hljóti að hafa ráð á. Vonandi er, að næsta bók S. J. svali þeirri eftirvæntingu. K. K. Brimar við Bölklett. — Skáld- saga eftir Vilhjálm S. Vil- hjálmsson. Víkingsútgáfan, — Reykjavík 1945. Vilhjálmur S. Vilhjálmsson blaðamað- ur hefir nú sent frá sér fyrstu skáldsögu sína, athyglisverða sögu úr lífi íslenzkrar alþýðu. Áður hefir Vilhjálmur verið al- þjóð kunnur fyrir starf sitt sem blaða- maður og útvarpsfyrirlesari og hlotið vin- sældir fyrir, enda er honum mjög létt um að færa hugsanir sínar í stílinn. Nú kynnir hann sig þjóð sinni sem skáld- söguhöfundur, en það er næsta stórt spor fyrir hvern og einn. Með skáldsög- unni Brimar við Bölklett fjallar hann um efni, sem hann er gagnkunnugur, má

x

Dvöl

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dvöl
https://timarit.is/publication/619

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.