Dvöl - 01.01.1946, Blaðsíða 77

Dvöl - 01.01.1946, Blaðsíða 77
DVÖL 75 bókina „Úr útlegð“. Ég skil það vel. Hann var þannig gerður, að hann hlaut að sakna ættlands síns. Hann segir: Marga þungt er þraut að bera, þyngst að kveðja feðra storð; — lýst því geta engin orð. Útlaga finnst yndi vera öllu kastað fyrir borð. Og til íslands kveður hann: Þú skyggir á landið, sem lifi ég í, ég ljósara sé þig og finn. Þú ljómar í gegn um mín lífsins ský, og lýsir við dauða minn. — Og verði hún ei íslenzk hin eilífa strönd þar uni ég ei betur en hér. Ég býst ekki við þau blómskreyttu lönd þar breytt geti eðlinu i mér. Það er nóg að lesa þessi tvö erindi, til þess að gera sér fulla grein fyrir nafni bókarinnar. Bókin ber með sér, að höfundur hefur hugsað mikið um mannfélagsmál. Hann virðist vera allróttækur í skoðunum. Gerir þó athugasemdir til beggja handa, eins og þessi staka ber með sér, sem hann yrkir undir fyrirsögninni: „Ríkur — fátækur". Von er að þeim verði strangt völtum knerri að lenda. Semja æfisögu rangt sinn á hvorum enda. , Árið 1942 kveður hann eitt sitt sterk- asta kvæði: „Manngjöld“. Það byrjar svona: Nú er stríð og dáðadrengir djarfir fylkja helveg á. Heims i sögu áður engir ógnum slíkum skýrðu frá. Þúsundir á þessum degi þreyta fang við stál og eld. Mannlegt þrek þvl orkar eigi Örendir þeir hníga í kveld. Síðar segir: Hetjur fyrir frelsisroða fórna lífi um allan heim. Ganga á hólm við grimmd og voða. Guð veit hvað við skuldum þeim. Niðurlag: Allir verða í stríði að standa, styðja alheims vandamál. Nú er tími að hefjast handa, herja á lesti í eigin sál. — Endurskírast eins og forðum. Endurskapa þessa jörð. Jafnt í hugsun, athöfn, orðum allir standi trúan vörð. Með því einu manngjöld greiðum mætra drengja, er hníga í val. Ef við grimmd og glöpum eyðum gleðjast þeir í friðarsal. Þá mun morguns-himinn heiður heilsa okkar gömlu jörð. Þá mun friðarbogi breiður blika eftir veðrin hörð. í bókinni eru mörg tækifæriskvæði. Ég get ekki stillt mig um að taka hér upp eitt þeirra, eftirmæli K. N. (Káins). Það er fyndin hugdetta og skáldi sam- boðin. Nú ertu hættur hérvistinni með heilögum englum seztur. Þeir hafa mér sagt. að í himnaríki há-alvarlegur sé mestur. Ég held þér leiðist í himnaríki og hugur þinn leiti að stefi. Þó englarnir hefji upp svanasönginn, þú syngur með þínu nefi. Og þá verður eins og áður fyrri, að enginn þitt stendur gaman. Englarnir hætta við himneskan söng og hlusta á þig allir saman.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Dvöl

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dvöl
https://timarit.is/publication/619

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.