Valsblaðið - 01.05.2000, Qupperneq 10
Sameining viö Fjölni
Skýrsla aðalstjórnar
Knattspyrnufélagsins Vals
ur
sogunni!
Árið sem nú er liðið frá því síðasta
skýrsla aðalstjómar Vals birtist í Vals-
blaðinu 1999 hefur um margt verið sér-
stakt hjá félaginu. Hér á eftir verður gerð
grein fyrir því helsta sem sneri að aðal-
stjóm félagsins.
Skipan stjórnar oy aöalfundur
Jólahátíðin 1999 var ekki liðin þegar
Valsmönnum barst sú harmafregn að
hinn ágæti stjómarmaður, Lúðvíg Árni
Sveinsson, hefði orðið bráðkvaddur á
heimili sínu. Félagsmönnum var mjög
brugðið við þessa fregn og fyrsta verk
stjórnarinnar var því að minnast þessa
ágæta félaga á kyrrðarstund í Friðriks-
kapellu og síðan á samkomu hinn 31.
desember í félagsheimilinu.
Vegna þessa óvænta fráfalls Lúðvígs
var stjóm Vals aðeins skipuð átta mönn-
um fram til aðalfundar félagsins. Hann
var haldinn óvenjuseint á árinu eða hinn
26. júní. Ástæða þess var sú að beðið var
ákveðinna tímamóta í viðræðum Vals og
Fjölnis, eins og nánar er vikið að hér að
neðan. Dagskrá fundarins var samkvæmt
lögum félagsins. Fundurinn var fjölsóttur
og fór vel fram en miklar umræður urðu
á fundinum um þau málefni félagsins,
starfið að Hlíðarenda og þær viðræður
sem stjórnin stóð þá í við Fjölni. Á fund-
inum voru eftirtaldir kjörnir í stjórn til
næsta árs og skiptu þannig með sér verk-
um:
Reynir Vignir.formaður
Ragnar Ragnarsson, varaformaður
Hörður Gunnarsson, ritari
Hans Herbertsson, gjaldkeri
lngólfur Friðjónsson, meðstjórnandi
Guðmundur Jón Matthíasson, meðstj.
Grímur Sœmundsen, form. knattspyrnud.
Karl Jónsson.form. handknattleiksd.
Hannes Birgir Hjálmarsson, form. körfu-
knattleiksdeildar
Nýr maður í stjóminni er Guðmundur
Jón Matthíasson.
Framkvæmdir oy félagssvæðið
Stjórn félagsins ákvað að ráðast ekki í
miklar framkvæmdir á árinu. I ársbyrjun
var ákveðið að fresta því að hefja inn-
réttingar nýrrar skrifstofuaðstöðu sem
koma á á hæðinni fyrir ofan búnings-
klefa gamla íþróttahússins. Var talið eðli-
legt að láta það bíða af ýmsum ástæðum
á vinnumarkaðnum og líka af því að tals-
verð umræða var í gangi um framtíðar-
skipan mála innan félagsins. Á árinu hef-
ur því einkum verið unnið að ýmsum
viðhaldsverkefnum bæði innan húss og
utan. Þegar þetta er ritað er hins vegar
búið að ákveða að á næstu vikum verði
innréttingar í skrifstofuaðstöðu unnar í
einum áfanga og stefnt er að því að taka
þá aðstöðu í notkun í byrjun ársins 2001.
Félagið hefur eins og undanfarin ár
þurft að fylgjast með áhuga aðila á
landssvæðinu í kringum okkar svæði, en
eins og kunnugt er á Valur eftir að fá frá
Reykjavíkurborg landssvæði samkvæmt
Frá vinstri: Hans Herbertsson gjaldkeri, Ragnar Ragnarsson varaformaður, Hannes Hjálmarsson formaður Körfukn.d., Reynir
Vignir formaður, Grímur Sœmundsen form.knattsp.d., Ingólfur Friðjónsson, Hörður Gunnarsson ritari, Karl Jónsson form.
handkn.d. A myndina vantar Guðmund Jón Matthíasson.
10
Valsblaðið 2000