Valsblaðið - 01.05.2000, Side 11

Valsblaðið - 01.05.2000, Side 11
Starfið er margt Lilja Dögg Valþórsdóttir, fyrirliði 2.flokks, og Asgeir Pálsson, þjálfari, geta ekki leynt gleði sinni með að Islandsmeistarabikarinn í knattspyrnu var í höfn annað árið í röð. Mynd: Þ.Ó. gjafaloforði frá árinu 1981 og ekki var þetta væntanlega viðbótarsvæði fyrir fé- lagið staðfest á þessu ári. Umsóknir um styrki á næsta ári til framkvæmda snúast því enn að miklu leyti um landssvæðin vestur af núverandi grassvæði og áhuga félagsins á að gera stórátak í því að auka og stækka grassvæðin og bæta þannig æfingaaðstöðu fyrir knattspymuiðkend- ur. Einnig hefur félagið ítrekað óskað eftir því að fá úthlutað styrkjum til þess að gera ítarlega hagkvæmnisathugun á svæðinu og könnun á því hvemig best megi nýta svæðið. Kemur það meðal annars til vegna þess að öllum er ljóst að íþróttahús félagsins em orðin gömul og þurfa mikið og stöðugt viðhald þannig að ein lausnin gæti verið að rífa annað þeirra eða bæði og byggja nýtt. Undir lok ársins 2000 voru síðan kynntar, af hálfu borgarinnar, teikningar af umferðaræðum í kringum Hlíðarenda- svæðið þar sem meðal annars kom fram að svokallaður Hlíðarfótur verður lagður þó ekki sé tímasett hvenær. Þar með er loksins komið fram skipulag sem félagið getur unnið út frá og þegar hefur verið óskað eftir viðræðum við borgaryfirvöld vegna sameiginlegra hagsmuna á svæð- inu. Vel hefur verið tekið í þá málaleitan og stjóm Vals er bjartsýn á að gott sam- starf takist við borgaryfirvöld á næstu Þessar föngulegu Valsstúlkur létu sig ekki vanta á diskótekið á Valshátíðinni enda eru þœr snillingar í fótafuni og taktföstum hreyftngum. vikum og að sameiginlega verði ráðist í verulegar framkvæmdir á og við Hlíðar- endasvæðið á næsta ári. Starísmenn, skipulag félagsins og upplýsingatæknimál Stjómskipulag félagsins hefur verið óbreytt í aðalatriðum á árinu. Nokkurt rót var þó á starfsmannahaldi félagsins eftir að framkvæmdastjóri þess hætti s.l. vetur og á tímabili var þeirri spumingu velt upp hvort hverfa ætti aftur til þess að hafa starfsmenn fyrir einstakar deild- ir. Var því látið bíða að ráða nýjan fram- kvæmdastjóra yfir sumartímann en menn ráðnir til einstakra verkefna í staðinn. f haust var hins vegar ákveðið að hvika ekki frá samþykktu stjómskipulagi og í október kom Sveinn Birkir Bjömsson til starfa sem framkvæmdastjóri Vals og bættist félaginu þar öflugur liðsmaður. Einnig hefur verið nokkur hreyfing á þeim sem gegna störfum yfirþjálfara deildanna. í lok ársins eru fastráðnir starfsmenn félagsins eftirtaldir: Sveinn Birkir Bjöms- son, framkvæmdastjóri, Brynja Hilmars- dóttir, skrifstofustjóri, Sverrir Trausta- son, forstöðumaður mannvirkja og Elín Elísabet Baldursdóttir og Baldur Þ. Bjamason eru húsverðir. Talsvert hefur verið lagt upp úr því að bæta upplýsingastreymi frá félaginu til félagsmanna um það sem er um að vera hverju sinni. Á það jafnt við um keppni, æfingatíma, félagsstarf og ýmis dægur- mál. Komið hefur verið upp glæsilegri heimasíðu og undir góðri stjóm Áma Gunnars Ragnarssonar, sem stýrir tækni- legu hliðinni, hafa nokkrir aðilar aðgang að síðunni til að koma þar á framfæri nýju efni eins og fljótt og kostur er. Greinilegt er af viðtökum að þetta hefur heppnast vel og mjög margar heimsóknir eru á heimasíðuna á hverjum einasta degi. Ljóst er að Valsmenn eru fljótirað tileinka sér þessa tækni og nýjung á upp- lýsingamarkaðnum og er það vel. Haldið verður áfram á sömu braut á þessu ári. Nýskipan fjármálastjórnar Fjármál félagsins þurfa að vera í stöðugri skoðun og stjórnin hefur í haust fjallað nokkuð um fjármál og hvort tími væri kominn til að stokka upp stjómun þeirra. Sú skuldbreyting, sem gerð var fyrir nokkmm ámm, þegar allar þáver- andi veðskuldir voru greiddar upp með nýjum lánum til mjög langs tíma, skap- aði félaginu ákveðið svigrúm en það hef- ur minnkað einkum vegna tapreksturs deilda undanfarin ár. Því var ákveðið nýverið að frá og með næstu áramótum verði þeirri skipan komið á að gjaldkeri félagsins og fram- kvæmdastjóri stýri nýrri nefnd sem hafi yfirumsjón með öllum fjármálum félags- ins. Auk þeirra eiga fulltrúar boltagreina sæti í nefndinni. Nefndin á að skipta upp tekjustofnum félagsins eftir starfseminni hverju sinni og hafa eftirlit og aðhald Valsblaðiö 2000 11

x

Valsblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.