Valsblaðið - 01.05.2000, Blaðsíða 25
Ungir Valsarar
Dansað
Elísabet Anna Kristjánsdóttir 4. Ylokki í knattspyrnu
Elísabet Anna er á öðru ári í 4. flokki en
hún varð 12 ára þann 11. desember síð-
astliðinn og fékk m.a. peysu og geisla-
diska í afmælisgjöf. Hún byrjaði að æfa
með Val á yngra ári í 6. flokki en Val-
gerður, systir hennar, leikur með 2.
flokki og faðir hennar, Kristján Snorri
Baldursson er Víkingur. „Nei, honum er
alveg sama þótt ég sé í Val,“ segir Elísa-
bet Anna en móðir hennar heitir Soffía
Unnur Bjömsdóttir „Mamma og pabbi
hafa bæði áhuga á fótbolta og okkur
langar öll að fara á leik í Englandi.
Manchester United er liðið mitt.“
Elísabet Anna hefur leikið í vöminni
og fremstu víglínu en hún er þó oftast á
kantinum. „Okkur gekk mjög vel í sumar
en við urðum þó yfirleitt í næsta sæti
fyrir neðan verðlaunasætið. Við urðum í
4. sæti á Gull- og silfurmótinu, 4. sæti á
Pæjumótinu í Eyjum en í 3. sæti á Is-
landsmótinu. Núna erum við margar á
eldra ári og ætlum því að gera enn betur
næsta sumar.“
Heiðar Bimir er nýr þjálfari 4. flokks
og er Elísabet Anna mjög ánægð með
hann. „Mér fannst þjálfarinn síðastliðið
sumar ekki góður. Hann var ekki nógu
vel undirbúinn og lét okkur nánast bara
spila.“
Elísabet Anna setur markið hátt nœsta sumar.
Hvað er eftirminnilegast frá ferlinum?
„Þegar ég skoraði sjálfsmark í 6. flokki í
leiknum um 3. sætið á íslandsmótinu.
Það varð til þess að við lentum í 4. sæti.“
Hvað skiptir mestu máli ef þú ætlar að
ná langt?
„Stunda æfingamar vel og ekki gera
neina vitleysu eins og að reykja og svo-
leiðis bull. Annars er stefnan sú að kom-
ast í meistaraflokk seinna og vonandi
líka í landsliðið.“
Elísabet Anna segist helst þurfa að æfa
skotin en hún stundar jazzballett sam-
hliða knattspymunni tvisvar í viku og
ætti því að geta dansað í gegnum varnir
andstæðinganna. „Þetta fer mjög vel
saman. Ég styrki vöðvana í fótbolta og
liðka mig vel í jazzballett. Það ætti að
vera góð blanda. Svo þykir mér líka
gaman á skautum þótt ég æfi þá íþrótt
ekki.“
Veistu hvenær félagið okkar var stofn-
að og hver gerði það?
„Það var 11. maí 1911 en ég man ekki
hvað maðurinn heitir."
Munið
getraunanúmer
Vals
Valsblaðið 2000
25