Valsblaðið - 01.05.2000, Page 30
Úrvalsfólk
Golfmót
Vals 2000
Jón Nr bar sigur úr býtum
Jón Þór Andrésson fyrrum leilcmaður mfl. Vals í knattspyrnu, varð golfmeistari Vals
árið 2000. Garðar Kjartansson afhenti risabikarinn.
Hið árlega golfmót Vals var að venju
haldið á golfvelli Golfklúbbsins Odds í
Urriðavatnsdölum seinni partinn í júní
s.l. Eins og svo oft undanfarin ár lék
veðrið við Valsmenn þennan dag. Þátt-
takendur voru um 40 sem í sjálfu sér er
þokkalegt. Þátttakan gæti þó vissulega
verið betri þegar mið er tekið af þeim
fjölmörgu Völsurunt sem vitað er að
stunda þessa heilsusamlegu og gefandi
íþrótt. Nefna má í þessu sambandi að
önnur knattspyrnufélög á Reykjavíkur-
svæðinu hafa fetað í fótspor Vals í þess-
um efnurn og hafa borist fregnir að mun
betri þátttöku hjá nokkrum þeirra en hjá
okkur Völsurum. Höfum þetta í huga á
komandi sumri.
Golfmeistari Vals 2000 varð Jón Þór
Andrésson, knattspymukappi. Veg og
vanda að undirbúningi og skipulagningu
mótsins höfðu eins og oftast áður þeir
Garðar Kjartansson og Gunnar Krist-
jánsson og nutu þeir dyggrar aðstoðar
Halldórs Einarssonar og Reynis Jónsson-
ar. Mót þetta hefur þegar skapað sér fast-
an sess í starfi Vals og eru golfáhuga-
menn úr röðum félagsins hvattir til að
láta það ekki fram hjá sér fara á komandi
sumri. Vakin skal athygli á því að mótið
er jafnan haldið í júní ár hvert á velli
Golfklúbbsins Odds í Urriðavatnsdölum.
Grennslast má fyrir urn mótið með því
að hafa samband við golfklúbbinn.
Golfarar í röðum Valsmanna eru beðnir
um að gleyma ekki að færa þetta verk-
efni í minniskompur sínar.
Valsmaður
ársins 1999
Það er árviss viðburður hjá félag-
inu að Valsmaður ársins sé út-
nefndur í hófi að Hlíðarenda á
gamlársdag. Að þessu sinni varð
Asgerður Hildur Ingibergsdóttir,
leikmaður meistaraflokks í knatt-
spymu, fyrir valinu sem Valsmað-
ur ársins 1999 og er hún vel að
titlinum komin. Sumarið 1999
skoraði hún 20 mörk í 14 leikjum
Landssímadeildarinnar og er hún
orðinn fastur leikmaður í landslið-
inu.
Asgerður Hildur Ingibergsdóttir
vel búin bikurum. Mynd: Þ.O.
30
Valsblaðíð 2000