Valsblaðið - 01.05.2000, Qupperneq 32
Islandsmeistarar Vals í 4.flokki árið 1971: Fremsta röðfrá vinstri: Pétur Ormslev, Al-
bert Guðmundsson, Atli Eðvaldsson, Guðmundur Þorbjörnsson. Miðröð frá vinstri:
Atli Ólafsson, Guðmundur Kjartansson, Karl Björnsson, Óttar Sveinsson, Bjarni
Harðarson. Efsta röð frá vinstri: Helgi Loftsson þjálfari, Hilmar Oddsson, Sverrir
Gestsson, Ólafur K. Ólafs, Þorsteinn Ólafs og Björn Jónsson.
deild eins og títt er,“ segir Lára. „í mínu
tilfelli var það Valur meðal annars af því
frændi okkar, Guðmundur Þorbjömsson,
lék með Val. Svo voru báðir bræður mín-
ir forfallnir knattspymumenn og léku
með Víkingi frá Olafsvík. Síðan spillti
það ekki fyrir þegar ég kynntist mannin-
um mínum að hann var Valsari."
Afi Þorsteins hét Þorsteinn B. Jóns-
son, málari, en hann var mikill Valsmað-
ur og var fæddur 1908. Synir hans, Sig-
urður, málari, og Guðmundur voru báðir
fæddir í Val. Sigurður spilaði upp alla
flokka í fótboltanum en Guðmundur
hætti í fótboltanum í 4. flokki og fór að
iðka körfubolta af krafti. Hann lék með
ÍR í Hálogalandi á sínum tíma og lands-
liðinu og kom síðar til Vals og gerðist
þjálfari meistaraflokks í körfunni. Bróðir
Þorsteins B. Jónssonar var Jón G. S.
Jónsson, múrari, sem lék með meistara-
flokki Vals um 1930. „Það vildi svo
skemmtilega til að við lentum í Valsblað-
inu 1973 sem Valsfjölskylda en ég og
Ólafur bróðir minn erum fæddir á af-
mælisdegi Vals. Við byrjuðum í Val 7-8
ára og ég lék með frant að 1. flokki. Eg
náði því að verða íslandsmeistari ’71 í 4.
Bokki og í 2. flokki 1976. Það var sterk-
ur kjarni í Val á þessum árum og ekki
hægt að kvarta undan leikmannaleysi."
Þorsteinn kom aftur inn í starfið hjá
Val sem stjómarmaður í knattspymu-
deild árið 1990 og starfaði í 6 ár sem
slíkur. „Síðan ég hætti formlega í stjóm-
inni hef ég verið viðloðandi starfið með
einum eða öðrum hætti. Ég hef tekið að
Mœðgur á Pœjumóti í Eyjum, Björg
Magnea Ólafs og Lára Kristjánsdóttir.
Mynd: Þ.Ó.
mér ákveðin verkefni og stuðlað að
ákveðnum fjáröflunum t.d. með sölu
skilta á völlinn jafnframt því að vera í
fulltrúaráði Vals frá 1998. í ár er ég í 90
ára afmælisnefnd Vals ásamt góðu fólki
og er mér heiður að því. Það kom þannig
til að í boði í haust fyrir Herrakvöld Vals
heima hjá formanni félagsins, Reyni
Vigni, kom fram að bæði ég og einn að-
alstjórnarmaður, Ingólfur Friðjónsson,
ættum sama afmælisdag og Valur og því
sagði Reynir kjörið að fá okkur í af-
mælisnefndina! Þá sit ég í unglingaráð-
inu sem Ólafur Már Sigurðsson stýrir og
nú nýlega fór ég aðeins inn á nýjan vett-
vang þegar ég var kjörinn í stjóm
Stangaveiðifélags Reykjavíkur. Ein
ástæða þess að ég gaf kost á mér þar er
mikill áhugi á stangaveiði og jafnframt
til að skapa nýjar víddir í lífi mínu.“
Ólafur bróðir Þorsteins spilaði með
yngri flokkum Vals fram til 1977. Hann
gerði þá hlé á knattspymuiðkun í tvö ár
er hann vann við virkjunarframkvæmdir
úti á landi. Þegar hann tók upp fyrri iðju
á milli stanganna, árið 1979, spilaði
hann alla leiki með Þrótti í efstu deild.
Áður en hann spilaði sinn fyrsta deildar-
leik með meistaraflokki Vals 1999, þá 42
ára gamall, lék hann fneð Fram, Leiftri
og Fylki.
Þeir bræður voru í sigursælum yngri
flokkum og var Valur þá ekki á
flæðiskeri staddur hvað varðar unga og
efnilega leikmenn. Eins og sjá má á
meðfylgjandi myndum vom margir af
bestu leikmönnum Vals síðustu áratugina
samstíga bræðrunum í flokkum enda
varð Valur Islandsmeistari í 4., 3. -og 2.
flokki þegar þeir vom á eldra ári og
hársbreidd frá úrslitum í 5. flokki.
„I 4. flokki var Helgi Loftsson þjálfari
en hann er mér mjög eftirminnilegur.
Karl Bjömsson núverandi bæjarstjóri á
Selfossi var þá skæður framlínumaður í
okkar liði og í vöminni með mér voru
m.a. Hilmar Oddsson kvikmyndagerðar-
„Kvennagullið"
Kristján Már er 7 ára og er því á elsta ári
í 7. IJokki. „Hann hætti að æfa þegar
hann var valinn í B-lið í sumar og hefur
ekki mætt síðan,“ segir Þorsteinn.
„Áhuginn er til staðar og kappið mikið
að minnsta kosti þegar hann etur kappi
við systkini sín í fótbolta en hann er í
flautunámi og dálítið öðruvísi karakter
en Þór Steinar og Björg Magnea.“
Kristján Már Ólafs „k\’ennagull“ í góð-
um hópi glaðra Valsstúlkna á Pœjumót-
inu í Eyjum. Mynd: Þ.Ó.
32
Valsblaðið 2000