Valsblaðið - 01.05.2000, Síða 34

Valsblaðið - 01.05.2000, Síða 34
fararstjóri með flokkum bama okkar til Akureyrar og Vestmannaeyja. Mér finnst ég alltaf mæta miklum hlýhug þegar ég kem niður í Valsheimili og mér hlýnar um hjartarætur að koma inn á svæðið. Eg vonast til að geta starfað fyrir félagið næstu árin. Aður en ég flutti til Reykja- víkur starfaði ég að félagsmálum og það liggur í hlutarins eðli að svona félög ganga ekki nema fólk komi til starfa. Ef 4. flokkur kvenna, A-lið, á Pœjumótinu í Vestmannaeyjum í sumar. Efri röð frá vinstri: Kristján A. Ingason þjáifari, Björg Magnea Olafs, Tinna Þorsteins- dóttir, Guðlaug Sara Guðmundsdóttir, Elísabet Anna Kristjánsdóttir. Neðri röð frá vinstri: Sólveig Björg Pálsdóttir, Hrafnhildur Héðinsdóttir, Ragnheiður Leifsdóttir, Rósa Hauksdóttir. Mynd: Þ.Ó. við ætlum að halda félaginu í hverfinu og viljum að það blómstri er það á okkar ábyrgð. Ég og þú erum félagið og það er ekki hægt að ætlast endalaust til þess að aðrir vinni verkin.“ Þorsteinn, hverjar eru stærstu stund- irnar sem þú hefur upplifað með Val? „Bamshjartað gladdist einna mest þegar ég fór á völlinn árið 1966 og Valur varð Islandsmeistari eftir tvo úrslitaleiki við Keflavík. I seinni leiknum varði Siggi Dags víti í lok leiksins og kom í veg fyr- ir að Keflavík jafnaði. Evrópuleikurinn við Benfica í september 1968 var stór stund í sögu Vals þegar 18.243 keyptu sig inn á völlinn í Laugardal. Fyrir mig persónulega var það ánægjulegasti tím- inn að verða Islandsmeistari í fyrsta skipti í 4. flokki ’71. Við unnum ÍBV 4-2 í minnisstæðum úrslitaleik sem fór í framlengingu og fór fram á gamla Mela- vellinum. Þá var KSI ekki að veita gull- og silfurverðlaunapeninga fyrir 1. og 2. sæti, heldur fengum við gylltan pening frá Val með fálkanum okkar. Síðan hefur maður upplifað góðar stundir, t.d. ’76 þegar Valur vann tvöfalt og eins ’78, ’80, ’85 og ’87 þegar liðið varð Islandsmeist- ari. Þrefaldur sigur í bikarkeppninni 1990-92 er einnig minnisstæður eða á þeim tíma sem ég sat í stjóm knatt- Pæjumótiö frábært! Björg Magnea Ólafs æfir fótbolta í 4. flokki og handbolta í 5. flokki. Hún segist vera mjög ánægð í Val og hvergi annars staðar vilja vera. „Mórallinn í Val er mjög góður og oft er skemmtileg stemmning, sérsaklega þegar við tökum þátt í mótum. Ég hef verið ánægð með þjálfarana síðastliðin ár og mér finnst Heiðar Bimir, sem þjálfar mig núna í fótboltanum, vera með skemmtilegar æfingar.“ Björgu Magneu finnst einna eftirminnileg- ast þegar 5. flokkur varð Reykjavíkurmeistari sumarið 1999. „Þá komust við líka í úrslit á Pæjumótinu í Vestmannaeyjum. Pæjumótið er frábært og ég fór á það í fimmta skipti síðast- liðið sumar.“ Uppáhaldslið Bjargar Magneu er Manch- ester United en öll fjölskyldan er sama sinnis. Hún heldur sig vitaskuld við rauða litinn. „Það var mjög gaman þegar öll fjölskyldan fór á Old Trafford til að sjá United spila árið 1997 og taka við meistarabikamum.“ Björg segir að markmið hennar og Rósu vinkonu hennar sé að komast í skóla í Bandaríkjunum og spila og æfa fótbolta samhliða námi. En hún tekur samt fram að það sé kannski of snemmt að ákveða eitthvað í þeim efnum núna! Björg Magnea með einum litrík- asta og sigursœlasta knattspyrnu- stjóra sögunnap goðsögninni Alex Ferguson, knattspyrnustjóra Man- chester United. Mynd: Þ.Ó. Fyrrum knattspyrnustjarnan Ian Rush kom síðastliðið sumar til Islands og vann við knattspyrnuskóla Þróttar. A myndinni er Björg Magnea Ólafs með Ian Rush en hún spilaði fyrir „Manchester United“ gegn „Liverpool" á lokadegi knatt- spyrnuskólans. Mynd: Þ.Ó. spymudeildar. Þetta var ánægjulegur tími og það léttir lundina þegar vel geng- ur á vellinum. Það var líka gleðilegt þeg- ar Valur varð Islands- og bikarmeistari í handbolta árið 1998 og fleiri stór augna- blik tengd honum áttu sér stað árin þar á undan. Það gleður mig alltaf þegar góðir hlutir gerast í Val en stærstu stundir Vals hljóta alltaf að vera þegar félagið landar stórum titlum eins og íslandsmeistaratitl- um. Þegar vel gengur sést hversu margir halda með félaginu. En þegar illa hefur gengið láta of fáir sjá sig. Félagið nær ekki alltaf til fjöldans en þrátt fyrir fjöl- breytt framboð af afþreyingu eigum við að geta náð betur til Valsmanna, sérstak- lega ef við náum að bæta aðkomuna að svæðinu. Fjölskyldur úr Valshverfinu eiga að geta sent bömin sín 1-2 km vegalengd að Hlíðarenda, áhyggjulaust." Lára: „Það hlýtur líka að vera til mik- illa bóta að virkja fleiri Valsmenn, fá þá til að taka að sér ýmis smáverkefni. Fleiri Valsmenn þurfa að leggja hönd á plóginn. Kannski bíða fjölmargir eftir að haft verði samband við þá en vitanlega væri best ef þeir gæfu sig fram.“ 34 Valsblaöið 2000

x

Valsblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.