Valsblaðið - 01.05.2000, Page 35
Starfið er margt
9.flokkur Vals varð B-meistari á Gautaborg Baskethall Festeval. Aftari röðfrá vinstri: Ágúst S. Björgvinsson þjálfari, Bjarni Bald-
ursson, Axel Einarsson, Alexander Dungal, Kolbeinn Soffíuson, Þorsteinn Asgeirsson, Helgi Gunnarsson, Atli Antonsson og Baldvin
Dungal. Fremri röðfrá vinstri: Indriði Thoroddsen, Víkingur Arnórsson, Magnús B. Guðmundsson, Sveinn Einarsson, Steingrímur
Gauti Ingólfsson, Hafsteinn Rannversson, Gunnar Marís, Gunnar Skúlason og Ingólfur Magnússon.
Agœtu Valsmenn!
Á síðasta vetri náði liðið okkar að vinna
sér sæti í efstu deild á ný eftir eins árs
fjarveru. Á ýmsu gekk yfir tímabilið en
Valur endaði í þriðja sæti deildarinnar
með 24 stig og tryggði sér þar með þátt-
tökurétt í úrslitakeppni 1. deildar. 1 und-
anúrslitum sigruðum við Þór Þorláks-
höfn í tveimur leikjum en Þórsarar höfðu
unnið okkur í báðum leikjunum í deild-
inni. Þar með var sæti í efstu deild
tryggt. í úrslitaviðureign við ÍR um titil-
inn í 1. deild náði liðið ekki að sýna sitt
besta, tapaði tveimur leikjum en vann
einn. Ég vil nota þetta tækifæri til að
óska liðsmönnum, þjálfurum liðsins svo
og öðrum Valsmönnum til hamingju með
að Valur skuli spila á ný í efstu deild í
körfunni.
Á uppskeruhátíð deildarinnar var Guð-
mundur Bjömsson valinn besti leikmað-
ur liðsins og Ragnar Steinsson efnileg-
astur. I upphafi árs hófust viðræður milli
Vals og Fjölnis um sameiningu félag-
anna. Þeim umræðum lauk með því að á
vormánuðum var ákveðið af stjómum
körfuknattleiksdeildanna að skrá sameig-
inlegt lið til keppni í EPSON-deildinni á
yfirstandandi keppnistímabili. Var sú
ákvörðun tekin í samráði og að áeggjan
aðalstjóma beggja félaga. Þá var einnig
tekin ákvörðun um að heimaleikir sam-
einaðs liðs yrðu í Iþróttamiðstöðinni
Grafarvogi.
Sameiginleg stjórn körfuknattleiksdeilda
Vals/Fjölnis er þannig skipuð:
Hannes Birgir Hjálmarsson, formaður
Sigurður H. Leifsson, varaformaður
Arni Gunnarsson, gjaldkeri
Svali H. Björgvinsson, meðstjórnandi
Heiðar Sveinsson, meðstjórnandi
Ragnar Þór Jónsson, meðstjórnandi
Olafur Karlsson, meðstjórnandi
Sverrir Þorsteinsson, meðstjórnandi
Sveinn Zoega, meðstjórnandi
Pétur Stefánsson, meðstjórnandi
Ragnar Torfason, meðstjórnandi
Sigbjörn Guðjónsson, meðstjórnandi
Ákvörðun var tekin um að ráða Pétur
Guðmundsson sem þjálfara liðsins fyrir
Valsblaðið 2000
35