Valsblaðið - 01.05.2000, Síða 61

Valsblaðið - 01.05.2000, Síða 61
Minning t Magnús Helgason fæddun 24. nóvember 1916 - dáinn 5. október 2000 Með þessum orðum viljum við minnast góðs Valsmanns, Magn- úsar Helgasonar, stjómarformanns Hörpu hf., sem lést þann 5. október s.L. Magnús hefur alla tíð verið dyggur stuðningsmaður Vals, sat í stjóm á tímabili og átti ennfremur sæti í fulltrúaráði félagsins. Magnús fylgdist vel með gengi félagsins og sótti leiki þegar hann hafði tækifæri til. Á árunum í kringum 1970 var gengi fé- lagsins á knattspymusviðinu frekar dapurt, þannig að Magnúsi og fleirum fannst ástæða til að leita allra leiða til að bæta úr því. Magnús, sem átti í viðskiptum við Rússland og sat í viðskipta- nefnd Islands, hafði þá forgöngu um að rætt var við íþróttaráð- herra Sovétríkjanna, sem var þá staddur hér vegna heimsmeist- araeinvígis Fischers og Spasskys í skák, um það hvort Rússar gætu ekki útvegað Val góðan þjálfara. í kjölfar þess var Youri Illitchev ráðinn þjálfari, sem segja má að hafi lagt grunninn að velgengni félagsins á knattspymumót- um næstu ára. Af þessu dæmi má sjá hver hugur Magnúsar var til Vals. Það þótti ekki tiltökumál að færa í tal við íþróttaráð- herra stórþjóðarinnar hvort hann gæti ekki liðsinnt knattspymu- félaginu Val á Islandi. Það er því með virðingu, sem við kveðjum þennan aldna félaga okkar um leið og við sendum fjölskyldu hans samúðarkveðjur. Fulltrúaráð Vals t Páll Guðnason fæddur 22. júní 1920 Þann 20. febrúar sl. lést í Reykjavík Páll Guðnason, fyrrverandi formaður Knattspymufélagsins Vals, og missti félagið þar einn af sínum tryggu og traustu félagsmönnum. Páll, sem aðeins vantaði fjóra mánuði í 80 ára afmælið, gekk til liðs við félagið þegar hann var 10 ára gamall, árið 1930 og hóf að æfa knatt- spymu. Hann var vel liðtækur á því sviði og var í liði 3. flokks Vals sem fékk það skemmtilega verkefni að vígja knattspymu- völl félagsins að Haukalandi árið 1936. Páli þótti ekki nóg að vera sjálfur keppandi heldur sneri hann sér einnig fljótlega að þjálfun og félagsmálum og varð þekktur fyrir starf sitt sem unglingaleiðtogi Vals. Það starf var í senn umfangsmikið og mikilvægt, því taka þurfti vel á móti ungum félagsmönnum og styðja þá fyrstu sporin innan Vals. Eins og gjaman verður þegar menn gefa kost á sér til félags- starfa urðu störfin mörg. Páll tók fyrst sæti í aðalstjóm Vals sem unglingaleiðtogi og síðar varaformaður á ámnum 1951-1954. Síðan tók við starf fyrir íþróttahreyfinguna í Reykjavík þegar hann var á næstu árum fulltrúi félagsins í stjóm Knattpymuráðs Reykjavíkur og gegndi þar meðal annars formennsku í tvö ár. En tryggð Páls við Val og félagsstarfið þar var mikil og hann var kallaður aftur til stjómarstarfa og var gjaldkeri aðalstjómar árin 1960 og 1961. Formaður Vals varð hann síðan árið 1963 og gengdi því starfi í fjögur ár eða til ársins 1966. Þegar hann lét af formennsku í Val hafði hann gegnt stjómarstörfum fyrir íþrótta- hreyfinguna í 16 ár samfellt. dáinn 20. febriíar 2000 Eins og tíðkast með forvígismenn Vals tók Páll sæti í fulltrúa- ráði félagsins og starfaði þar sem fulltrúi og um tíma sem stjómarmaður til dauðdags. Áhugi hans á félaginu og framgangi þess var alltaf til staðar og hann sótti kappleiki að Hlíðarenda þegar hann gat. Þrátt fyrir veikindin hin síðari ár fylgdist hann stöðugt með starfi félagsins og bar hag þess fyrir brjósti. Hann gerði sér vel grein fyrir því að í starfi íþróttafélags skiptast á skin og skúrir en trú hans á félagið var ætíð til staðar. Því var það mjög gleðilegt að daginn áður en hann lést unnu handknattleikskonur Vals sigur í bikarkeppninni í handknattleik og undirstrikuðu enn og aftur að félagið er sigursælt og á glæsi- legu íþróttafólki á að skipa, sem oftar en ekki keppir um sigur- laun í sinni grein. Þátttaka í starfi Vals og sigurgleði voru þau laun sem Páll fékk einkum fyrir sitt framlag fyrir félagið. Hann bar silfur- og gullmerki Vals og orðu félagsins úr gulli var hann sæmdur þegar Valur hélt upp á 70 ára afmæli sitt árið 1981. Öll þau ár sem Páll starfaði fyrir Val naut hann stuðnings eig- inkonu sinnar Paulu Andreu Jónsdóttur og bama þeirra, enda tekur enginn þátt í félagsstarfi með þeim hætti sem hann gerði án mikils stuðnings fjölskyldunnar. Fyrir hönd Knattspymufélagsins Vals færi ég Paulu, bömum þeirra og öðrum ættingjum innilegar samúðarkveðjur. Reynir Vignir, formaður Valsblaðið 2000 61

x

Valsblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.