Uppeldi og menntun - 01.01.2009, Page 10

Uppeldi og menntun - 01.01.2009, Page 10
Uppeldi og menntUn/icelandic JoUrnal of edUcation 18(1)/200910 aðeins einum áratug, 1998–2007, fjölgaði fólki með erlent ríkisfang á Íslandi úr 2,1% (5635 einstaklingar) í 6,0% (18563 einstaklingar) af heildarmannfjölda og á sama tíma fjölgaði grunnskólabörnum með erlent móðurmál úr 1,8% í 4,0% eða úr 747 (af 42421) í 1731 (af 43802) (Hagstofa Íslands, 2008). Þá eru ótaldir leikskólar, framhaldsskólar og háskólar. Íslenskt nútímasamfélag er ekki aðeins meira þéttbýlissamfélag en annars staðar eru dæmi um, það er líka fjölþjóðlegt samfélag. Fjölbreytileikinn er öllum ljós og í aðalnámskrám er áhersla lögð á jafnrétti allra barna og unglinga til náms og mennta, óháð andlegu eða líkamlegu atgervi, tilfinn- ingalegu ásigkomulagi, málþroska, búsetu, uppruna, litarhætti eða menningu (Sjá t.d. Aðalnámskrá grunnskóla: Almennur hluti, 2006). Það hvernig fylgja skuli þessum fyr- irmælum er annað mál. Það er einmitt fjölbreytileikinn og það hvernig unnt sé að bregðast við honum sem er kveikja og að hluta til meginviðfangsefni þessarar greinar. Álit mitt er að allt of lítil umræða hafi farið fram meðal skólamanna um það hvernig bregðast beri við því búsetu- og skólaumhverfi sem þróast hefur á síðustu árum og áratugum. Fólki hefur fækkað á stórum landssvæðum, fjöldi sem hlutfall barna og unglinga hefur víða hrap- að og skólum verið lokað eða þeir sameinaðir öðrum vegna fámennis. Sameining- arviðræður sveitarfélaga snúast gjarnan um framtíðarskipan þessara grunnstofnana í tilveru hvers samfélags. Við slíkar aðstæður reynist oft erfitt að verða við kröfum um raunverulegt jafnræði til menntunar, hvort heldur á ytra byrði í umgjörð og aðbúnaði, ellegar í innra starfi skóla og framsetningu námsefnis. Umræðuefnið hér snertir marga fleti þessa viðfangs: Hvað liggur að baki ætlaðri samvitund Íslendinga sem þjóðar og hvað nærir þá samvitund sem dafnar meðal smærri eininga innan sömu heildar? Er samvitund okkar fyrst og fremst menning- arleg, eða pólitísk, hvílir hún á skýrri sýn til heimahaga og/eða á öflugri umhverf- isvitund? Eða öllu þessu í einhverjum hlutföllum og kannski fleiru til? Þetta eru stórar spurningar og mikill vandi liggur í því að aðferðir til þess að fást við þær eru lítt þroskaðar hérlendis. Þess vegna mun ég verja drjúgu rými í að kynna megindrætti úr innlendri og erlendri umræðu, einkum meðal sagnfræðinga, félagsfræðinga og mann- fræðinga, með það að markmiði að leita greiningartækja sem duga kunna á þetta rann- sóknarsvið íslensks samfélags. Rýmisins vegna verður viðfangsefnið að takmörkuðu leyti um fjölþjóðleikann í samfélagi okkar (það viðfang verður einfaldlega að bíða þótt hugmyndafræðin sé meðal annars þangað sótt), heldur er það frekar viðbragð við nú- verandi búsetuumhverfi landsmanna. Eftirfarandi grein er þannig ætlað að veita yfirlit um ákveðið svið í hugmyndafræði- legri umræðu síðustu ára um leið og hún er rökstuðningur við tiltekna framsetningu á hugtökum sem ég tel að geti dugað vel við áframhaldandi rannsóknir á samvitund Íslendinga sem þjóðar og/eða samvitund þeirra sem byggja sama svæði, til dæmis hérað. Hugtökin sem umræðan snýst um eru sjálfsvitund og samvitund, söguvitund, grenndarvitund og umhverfisvitund. Byrjum á örstuttri kynningu á hverju um sig. Rannsóknir á sjálfsvitund og samvitund einstaklinga, hópa fólks og heilla þjóða hafa staðið lengi og eru um margt afsprengi líflegrar umræðu um þjóðarvitund og þjóðern- isstefnu. Hugtakið vitund er notað í mörgum fræðigreinum og á nokkuð mismunandi hátt. Rúmsins vegna er ekki unnt að sinna allri þeirri breidd sem þar er á ferð, svo sem landið er eitt – samfélagið er breitt/breytt
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118

x

Uppeldi og menntun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.