Uppeldi og menntun - 01.01.2009, Page 18

Uppeldi og menntun - 01.01.2009, Page 18
Uppeldi og menntUn/icelandic JoUrnal of edUcation 18(1)/200918 til við samleik þar í milli. Í þriðja lagi er hin póstmóderníska skilgreining sem leggur áherslu á breytileikann, það að sjálfsvitundin taki sífellt mið af aðstæðum. Samkvæmt þeim skilningi á einstaklingurinn völ á mörgum og margbreytilegum sjálfsmyndum sem hann kýs sjálfur að vinna með út frá menningu og sögu umhverfis síns (Hall, 1990, 1992). Sú skilgreining virðist fremur losaraleg en felur í sér athyglisverða túlk- unarmöguleika. Lítum á textabrot þar sem Hall ræðir vandann við að skilgreina hvað það sé að vera karabískur, það er ættaður frá löndum í karabíska hafinu: Nálgast má „menningarlega samvitund“ út frá tveimur sjónarhornum hið minnsta. Samkvæmt fyrra sjónarhorninu er „menningarleg samvitund“ skilgreind sem heild- stæð, sameiginleg menning; eins konar sameiginlegt „eitt og satt sjálf“ sem finna má innan um fjölmörg önnur „sjálf“ sem rista grynnra og eru síður sjálfsprottin en er deilt af fólki sem á sér sameiginlega sögu og uppruna. … Til er annað sjónarhorn á menn- ingarlega samvitund og er það skylt hinu fyrra þó það sé um margt frábrugðið því. Þá er gengið út frá því að enda þótt okkur svipi að ýmsu leyti til annarra megi jafnframt á afgerandi sviðum finna djúpstæðan og mikilvægan mun á okkur og öðrum og að þessi munur sé grunnur þess sem „við erum í raun“ eða öllu heldur – þar sem sagan hefur skorist í leikinn – þess sem „við erum orðin að.“ … Í þessum síðari skilningi snýst menn- ingarleg samvitund ekki síður um að „verða“ en að „vera“ og hún tilheyrir framtíðinni síst minna en fortíðinni. Hún er ekki fyrirbæri sem þegar er til handan staðar, stundar, menningar og sögunnar. Þvert á móti spretta menningarlegar samvitundir einhvers staðar upp og eiga sér sögu. En, rétt eins og allt annað sem er sögulegs eðlis, eru þær háðar stöðugum breytingum. Þannig eru þær ekki að eilífu njörvaðar niður í einhvers konar frummynd fortíðar heldur eru þær einatt leiksoppar sögunnar, menningar og valds. Að sama skapi eru þær ekki bundnar eingöngu við „endurheimt“ fortíðar sem bíður uppgötvunar og mun, ef hún uppgötvast, festa sjálfsskilning okkar varanlega í sessi. Nær er að segja að menningarlegar samvitundir feli í sér eins konar merkingu á því hvernig frásagnir fortíðar staðsetja okkur með mismunandi hætti og því hvernig við staðsetjum okkur sjálf í þessum frásögnum (Hall, 1990, bls. 223–225).6 landið er eitt – samfélagið er breitt/breytt 6 Á frummálinu: „There are at least two different ways of thinking about ‘cultural identity’. The first position defines ‘cultural identity’ in terms of one, shared culture, a sort of collective ‘one true self’, hiding inside the many other, more superficial or artificially imposed ‘selves’, which people with a shared history and ancestry hold in common. … There is, however, a second, related but different view of cultural identity. This second position recognises that, as well as the many points of simila- rity, there are also critical points of deep and significant difference which constitute ‘what we really are’; or rather – since history has intervened – ‘what we have become’. … Cultural identity, in this second sense, is a matter of ‘becoming’ as well as of ‘being’. It belongs to the future as much as to the past. It is not something which already exists, transcending place, time, history and culture. Cultural identities come from somewhere, have histories. But, like everything which is historical, they undergo constant transformation. Far from being eternally fixed in some essentialised past, they are subject to the continuous ‘play’ of history, culture and power. Far from being grounded in a mere ‘recovery’ of the past, which is waiting to be found, and which, when found, will secure our sense of ourselves into eternity, identities are the names we give to the different ways we are positioned by, and position ourselves within, the narratives of the past.“
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118

x

Uppeldi og menntun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.