Uppeldi og menntun - 01.01.2009, Side 19

Uppeldi og menntun - 01.01.2009, Side 19
Uppeldi og menntUn/icelandic JoUrnal of edUcation 18(1)/2009 19 Nokkrum árum síðar sagði Hall „að samvitundir snúist í raun um að nota efnivið máls, menningar og sögu í ferli sem felst í því að verða frekar en að vera. Þær snúast þannig ekki um „hver við erum“ eða „hvaðan við komum“ heldur frekar um hvað við getum orðið, í hvaða ljósi við höfum verið sýnd og hvernig það tengist því í hvaða ljósi við sýnum okkur sjálf“ (Hall, 1996a, bls. 4).7 Þetta er að mörgu leyti spennandi sjónarhorn en dæmin sem Stuart Hall tekur til þess að styðja mál sitt byggja öll á sögu afrískra blökkumanna er teknir voru nauðugir í Afríku, fluttir vestur um haf og seldir þar til vinnu á plantekrum. Í Afríku kom þetta fólk úr ólíkum ættbálkum, frá ólíkum þorpum, hafði mismunandi guði og tungumál. Þrælahaldið varð til að sameina það, draga fram sameiginlega þætti í afrískri sögu og menningu. Þess vegna, segir Hall, getur verið skynsamlegt að líta svo á að samvitund karabískra blökkumanna hafi myndast milli tveggja póla. Annars vegar er póll sem dregur fram samkenni og samfellu, hins vegar er póll mismunar og rofs (rupture). Þessar hugmyndir hafa fræðimenn útfært á marga vegu og meðal annars bent á að ástæðulaust sé að einangra þær við aðstæður þess fólks sem Hall fjallar um (Gross- berg, 1996). Það er freistandi að hafa hugmyndir Stuarts Hall í bakhöndinni við athugun á sam- vitund mismunandi þjóðfélagshópa í íslensku samfélagi. Auðvitað eru andstæðurnar ekkert í námunda við það sem Hall lýsir um afríska forvera sína en með hæfilegri einföldun er auðvelt að sjá ákveðna samlíkingu. Annars vegar er það sem sameinar Íslendinga um það að vera Íslendingar, það sem skapar þjóðarvitund þeirra. Hins vegar er það sem greinir landsmenn að og myndar um leið samvitund einstakra hópa þeirra. Það má auðveldlega fella rannsókn Sigríðar Matthíasdóttur á kyngervi undir þetta líkan, sama má væntanlega segja um íbúa af ólíkum þjóðernisuppruna og ef til vill íbúa mismunandi byggða. Á því skortir rannsóknir enn. Manuel Castells, katalónskur prófessor í félagsfræði, er annar áhrifamikill höfundur sem lagt hefur margt af mörkum til rannsókna og skilgreiningar á sjálfsvitund og sam- vitund. Hann leggur áherslu á muninn á þeim hlutverkum er einstaklingurinn tekst á hendur eða samfélagið fær honum og þeirri sjálfsvitund sem viðkomandi þroskar með sér. Hlutverkin (móðir, nágranni, o.s.frv.) mótast af siðum, venjum og reglum samfélagsins, þau krefjast ákveðinna athafna af viðkomandi aðila. Sjálfsvitundin er hins vegar merkingin sem að baki er þótt auðvitað sé sífelld víxlverkun þarna á milli. Móðurhlutverkið er hægt að inna af hendi með ýmsu móti en áhrif þess á hugsun og sjálfsvitund móðurinnar eru mun djúpstæðari (Castells, 1997). Castells hefur meiri áhuga á samvitund en sjálfsvitund einstaklinga og hann er þeirrar skoðunar að samvitundin eigi sér þrenns konar form og rætur: Í fyrsta lagi er samvitund sem byggir á ráðandi viðhorfum, lögum og reglum. • Valdaaðilar á hverjum tíma móta samfélag sitt og stofnanir þess búa lífinu ákveð- inn farveg. Þeirra á meðal má nefna löggjafarstofnanir, trúarstofnanir, verkalýðs- bragi gUðmUndsson 7 Á frummálinu: „identities are about questions of using the resources of history, language and cult- ure in the process of becoming rather than being; not ‘who we are’ or ‘where we came from’ so much as what we might become, how we have been represented and how that bears on how we might represent ourselves.“
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118

x

Uppeldi og menntun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.