Uppeldi og menntun - 01.01.2009, Page 28

Uppeldi og menntun - 01.01.2009, Page 28
Uppeldi og menntUn/icelandic JoUrnal of edUcation 18(1)/200928 landið er eitt – samfélagið er breitt/breytt til eru þau verðmæti, sem ekki verða metin til fjár og eru það þó þau, sem gefa mann- legu lífi innihald og meiningu… . Það er stundum hægt að bæta tjón af fjármálalegum eða pólitískum afglöpum, en fordjarfanir á náttúrumenjum eru í flokki þeirra afglapa, sem ekki verða bætt (Sigurður Þórarinsson, 1950, bls. 11). Orð Sigurðar hlutu lítinn hljómgrunn fyrst í stað og það var líklega ekki fyrr en með Laxárdeilunni um 1970 sem ákveðin hvörf urðu í hugsun almennings. Þá var tekist á um gerð uppistöðulóns í Laxárdal og áveitna á heiðum uppi. Þessi virkjanaáform mættu mikilli andspyrnu og með samkomulagi árið 1973 var fallið frá framkvæmd- unum. Þarna tókust á ólíkir hagsmunir og sjónarmið og inn í umræðuna kom ný vídd, krafan um að vernda náttúruna hennar sjálfrar vegna en ekki vegna beinna hagsmuna mannanna. Nokkrum árum síðar fylgdi Halldór Laxness rithöfundur lítilli bók Kjartans Júlí- ussonar, bónda á Skáldsstöðum í Eyjafirði, úr hlaði með eftirfarandi orðum: Alt frammá nítjándu öld þóttu íslendíngum fjöllin ljót. Ekki var látið við sitja að Búlandstindur væri „furðu ljótur“, heldur þótti Mývatnssveitin með fjallahríng sínum og vatni viðurstyggilegt pláss. … Rómantíkin þýska gaf okkur fjöllin og gerði þau okkur kær og kendi Jónasi Hallgrímssyni bæði að rannsaka þau sem fræðimaður og unna þeim í ljóði (Halldór Laxness, 1978, bls. 5). Ósagt skal hvort lýsing skáldsins á afstöðu landsmanna til fjallanna hafi verið á einn veg fyrir daga rómantíkurinnar en víst er að þau voru örðugur farartálmi, þau drógu búfénaðinn til sín að sumarlagi og þau voru firnafrek á skófatnað þeirra sem um fóru. Mér er það sterkt í minni hvernig faðir minn (fæddur 1910) lagði nytjamat á um- hverfi sitt. Í hans augum var fegurðin fólgin í grasi. Þar sem gott var undir bú, auðvelt að brjóta land til ræktunar og nytja það, þar var fallegt. Grjót var í hans augum fyrst og síðast grjót. Það gat vissulega verið fallegt á sinn hátt en miklu fremur var það til trafala við reglubundin bústörf. Þess vegna þóttu honum grösugir dalir og víðlend- ar heiðar Húnavatnssýslu miklu fegurri en eldbrunninn Reykjanesskaginn eða und- irlendislitlir Vestfirðir. Umhverfisvitund hans var nytjavitund og innan hennar þurfti fegurðarskynið að rúmast. Umhverfismál hafa rutt sér rækilega til rúms í allri samfélagsumræðu síðustu áratuga. Manuel Castells gengur svo langt að segja málflutning og baráttu umhverf- isverndarfólks hafa leitt til nýrrar samvitundar, líffræðilegrar samvitundar, þar sem áhersla er á fjölbreytileika vistkerfisins og eðlilega samvist mannsins með öðrum teg- undum. Mikilvægt sé að þessi samvitund eigi sem besta samleið með menningarlegri og sögulegri samvitund, en lendi ekki í andstöðu við hana (Castells, 1997). Ef þessi greining Castells er rétt er trúlegt að iðnvæðingu og borgamyndun nútímans hafi fylgt firring gagnvart umhverfi og náttúru, samhengið sem veiðimönnum og bændum var ljóst um aldir og árþúsundir hafi glatast, en sé óðum að renna upp fyrir nútímamann- inum. Um það skal ekki dæmt en umhverfisvitund er einn af hornsteinum sjálfsskynj- unar mannsins og samvitundar hans með öðru fólki. Þar gildir einu hvort liggur að
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118

x

Uppeldi og menntun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.