Uppeldi og menntun - 01.01.2009, Page 53

Uppeldi og menntun - 01.01.2009, Page 53
Uppeldi og menntUn/icelandic JoUrnal of edUcation 18(1)/2009 53 kolbrÚn Þ. pálsdóttir heimila (Hviid, 1999; Johansson og Ljusberg, 2004; Raymond og Schoug Larsen, 2002). Börn sem glíma við einbeitingarskort, eru greind með athyglisbrest eða eiga erfitt með að uppfylla námskröfur höndla oft illa langan skóladag, en njóta sín oft ákaflega vel þegar kemur að frístundum (Hviid, 1999; Raymond og Schoug Larsen, 2002). Því er mikilvægt að horft sé til þess sem vel gengur í frístundastarfi, að hugmyndafræði tóm- stundafræðinnar sé nýtt í skólastarfinu í meira mæli en nú er gert, til að styrkja stöðu þessara barna. Aukið samstarf skóla og frístundaheimila er einungis af hinu góða og ætti að miða að því að efla alhliða þroska hvers barns, vellíðan þess og árangur í leik og starfi. Víða á Norðurlöndum skoða menn hvernig skóli, leikskóli og frístunda- heimili geti sem best staðið saman að móttöku og aðlögun yngstu nemendanna (sjá t.d. Broström, 2001; Kärrby, 2000). Margt er sameiginlegt með starfsemi leikskóla og frístundaheimila og geta frístundaheimilin verið mikilvægur þáttur í því að tengja betur saman leikskólann og grunnskólann. Leita þarf leiða til að rannsaka viðhorf og reynslu skólabarna af vinnudegi sínum, enda hafa fræðimenn í auknum mæli áttað sig á því að börn búi yfir mikilvægri þekkingu og viðhorfum sem best sé að nálgast með því að ræða við þau sjálf. Væntingar leikskólabarna til grunnskólans hafa verið rannsakaðar (Broström, 2001; Jóhanna Einarsdóttir, 2007). Niðurstöður gefa til kynna að almennt hafi leikskólabörn mjög skýrar hugmyndir um hvað gerist í grunnskól- anum. Flest telja þau sig eiga miklar breytingar í vændum, að í skólann séu þau komin „til að vinna og læra en ekki leika sér eins og í leikskólanum“ (Jóhanna Einarsdóttir, 2007, bls. 136). Frístundaheimilið getur því hjálpað barninu að fóta sig á nýjum stað með „gamalkunnum“ leiksvæðum og hópastarfi. niðurstöður og umræða Engar íslenskar rannsóknir eru til á starfsemi frístundaheimila, gildi starfseminnar og framkvæmd. Helstu niðurstöður þessarar greinar eru að frístundaheimilin í Reykja- vík eigi sér eilítið undarlega og brotakennda sögu í samfélaginu. Þau hefur rekið á milli skipulagseininga og í raun orðið útundan í kerfinu. Sé litið til þróunar löggjafar virðist sem frístundaheimili séu ekki álitin uppeldis- og menntastofnanir, heldur fyrst og fremst vistunar- og gæsluúrræði fyrir foreldra. Upphaflega voru skóladagheimili, sem eru fyrirrennarar frístundaheimilanna, flokkuð sem dagvistarstofnanir og undir faglegri forystu fóstra. Að sumu leyti var staða þeirra skýrust á þeim tíma, þau voru jafnframt rekin á grundvelli lagaheimildar og markmið þeirra tilgreint. Ólíkt leikskól- unum hafa frístundaheimilin einangrast í kerfinu, þau falla ekki undir sérstaka lög- gjöf og ekki eru til reglugerðir um framkvæmd starfsins, markmið og ramma. Fátt ýtir undir fagþróun starfsins, þrátt fyrir góðan vilja þeirra sem sinna starfinu, þ.e. starfsmanna og stjórnenda ÍTR; skortur er á fagmenntuðu starfsfólki og á viðunandi vinnuaðstöðu barna og starfsmanna. Þörf er á skýrri uppeldissýn frístundaheimila og efla þarf samstarf við grunnskólann. Sívaxandi kröfur hafa verið gerðar til grunnskólanna af ráðamönnum, foreldrum og ekki síst kennurum sem eru iðnir við að tileinka sér nýja kennsluhætti og strauma utan úr heimi til að bæta kennsluna og starfsandann í skólunum. Skóli án aðgrein-
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118

x

Uppeldi og menntun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.