Uppeldi og menntun - 01.01.2009, Qupperneq 55
Uppeldi og menntUn/icelandic JoUrnal of edUcation 18(1)/2009 55
kolbrÚn Þ. pálsdóttir
2006a, 2006b). Sóknarfæri eru fólgin í því að líta á frístundaheimilið sem mikilvægan
þátt í að brúa bilið milli skólastiganna.
Umræða um samþættingu skóla og frístundastarfs meðal Reykvíkinga hefur snúist
um að gera eigi börnum kleift að ljúka þátttöku í skipulögðum tómstundum á milli
kl. 14 og 17 á daginn, m.a. í því skyni að draga úr ferðum foreldra með þau. Ef til
vill væri nær að gefa gaum þeirri starfsemi sem fer fram innan frístundaheimila og
skóladagvista og finna leiðir til að efla starfið með börnunum enn frekar. Frístunda-
heimilið á ekki að vera stoppistöð barna sem þeytast af íþróttaæfingu yfir í tónlistar-
skólann, heldur á það að vera barninu skjól og uppeldisstofnun sem hlúir að alhliða
þroska þess og vellíðan. Tímabært er að bera stöðu frístundaheimila saman við stöðu
leikskólans sem með lögum um leikskóla árið 1994 varð formlega fyrsta skólastigið í
kjölfar almennrar viðurkenningar ráðamanna og almennings á uppeldis- og mennta-
gildi leikskólans (Bergur Felixson, 2007; Jón Torfi Jónasson, 2006). Er nú kallað eftir
sambærilegri viðurkenningu stjórnvalda og samfélags á mikilvægi frístundaheimila.
Rannsókn á stöðu frístundaheimila leiðir í ljós að í höfuðborg landsins, Reykjavík, á
starfsemin sér sögu sem einkennist af hröðum breytingum og sívaxandi aðsókn barna
og foreldra að þjónustunni. Erfitt er að nálgast upplýsingar um rekstur skóladagvista
og frístundaheimila á landsbyggðinni. Hvorki menntamálaráðuneyti né samtök
sveitarfélaga halda sérstaklega utan um upplýsingar um rekstur skóladagvista, frí-
stundaheimila eða tómstundaheimila. Hér hefur verið sýnt fram á að tímabært sé að
taka þetta viðfangsefni fastari tökum, bæði hvað varðar alla skipan mála og söfnun
upplýsinga. Hin fjölmörgu 6–9 ára grunnskólabörn sem taka þátt í starfi skóladag-
vista, lengdrar viðveru og frístundaheimila hér á landi eiga það skilið.
þakkir
Fjölmargir aðstoðuðu mig á einn eða annan hátt við samningu þessarar greinar og
kann ég þeim öllum bestu þakkir. Sérstaklega þakka ég Auði Birgisdóttur, Jóni Frey
Þórarinssyni, Jóni Torfa Jónassyni, Matthildi Guðmundsdóttur, Róberti H. Haralds-
syni og Steingerði Kristjánsdóttur. Ritstjórn og ritrýnum Uppeldis og menntunar færi ég
einnig þakkir fyrir góða leiðsögn.
hEimildaskrá
Allerup, P., Kaspersen, L., Langager, S. og Robenhagen, O. (2003). SFO og fritidshjem
for de seks til niårige börn. Kaupmannahöfn: Danmarks Pædagogiske Universititets
Forlag.
Arnfríður Sólrún Valdimarsdóttir og Kolbrún Þ. Pálsdóttir. (2006). Starfsmannahandbók
frístundaheimila. Reykjavík: Íþrótta- og tómstundasvið.
Árni Sigfússon. (1992). Heilsdagsskóli. Minnisblað til meirihluta Skólamálaráðs, ÍTR, SDB
og stjórnar Vinnuskólans frá Árna Sigfússyni, dags. 30 júlí 1992. Borgarskjalasafn.
Málaskrá: Skólaskrifstofa Reykjavíkur. Askja 443.