Uppeldi og menntun - 01.01.2009, Síða 84

Uppeldi og menntun - 01.01.2009, Síða 84
Uppeldi og menntUn/icelandic JoUrnal of edUcation 18(1)/200984 „Þetta er spennandi... og gefUr mikla mögUleika“ legra umræðna og vekur nemendur til betri vitundar um möguleika á sviði nýsköp- unar. Myndlist og upplýsingatækni Tölvur þykja henta vel í myndlist, hvort sem er til notkunar fyrir listamenn, í atvinnu- greinum sem tengjast listum eða við kennslu í skólum. Í íslenskri rannsókn á áherslum tólf myndlistarkennara í grunnskólum kom fram að tölvur væru mjög áhugaverður miðill í myndlistarkennslu og það talið nauðsynlegt, í takt við nýja tíma, að leggja áherslu á að nýta þær sem verkfæri í myndlistarkennslunni. Samkvæmt niðurstöðum Jóhönnu Ingimarsdóttur eru fáar náms greinar sem gætu haft jafn mikinn hag af notkun tækninnar og myndlistarkennslan (Jóhanna Þórunn Ingimarsdóttir, 2000). Höfundur annarrar rannsóknar telur notkun tölvu- og upplýsingatækni henta sérlega vel til list- sköpunar, til upplýsingaleitar um myndlist og til að skoða listaverk í sögulegu, félags- legu og menningarlegu samhengi. Tæknin geti á þann hátt stuðlað að víðtæku tölvu- og tæknilæsi nemenda, en það samræmist algerlega markmiðum myndlistarkennslu í grunnskólum (Ásthildur Björg Jónsdóttir, 2003). Með tölvu- og upplýsingatækni hafa aðstæður breyst og nú er auðveldara að nálg- ast margs konar upplýsingar um listaverk, listamenn, listastefnur og hvaðeina sem tengist listasögukennslu en áður var (Wang, 2002). Þetta geta verið upplýsingar í formi texta, mynda, myndskeiða af sögulegum atburðum, og öðru sem ekki er hægt að nálgast á prentuðu máli í bókum. Slík framsetning er talin auka umfang upplýsing- anna, þannig að nemendur lesi ekki aðeins textann heldur geti á vissan hátt upplifað atburðina (Walling, 2001). Erlendis eru menn heldur ekki í vafa um mikilvægi og möguleika tölvu- og upp- lýsingatækninnar í myndlist, hvort sem um er að ræða skapandi vinnu, upplýsinga- öflun í tengslum við söguleg atriði eða fagurfræðilegar umræður og listgagn rýni. Frá fagurfræðilegu sjónarhorni þykja framsetningarform upplýsinga tækninnar og miðlar hennar byggðir á listrænum grunni myndlista (Gouzouasis, 2006). Líklegt má telja að miðillinn sem er notaður hafi áhrif á úrvinnslu möguleika mynd- sköpunar hverju sinni (Rogers, 1997), en engin tækni hefur áhrif á hugmyndirnar sjálfar þó að útfærslan markist af þeirri tækni sem unnið er með. Þetta hafa þeir séð sem unnið hafa sama myndefni í margs konar efnivið og tækni. Ekki er talið líklegt að nýja tæknin muni ýta eldri aðferðum til hliðar því að listamenn munu alltaf halda áfram að mála og teikna (Wang, 2002). Í niðurstöðum rannsóknar á notkun upplýsingatækni í listasögu kennslu kom fram að gagnvirk margmiðlun gæfi möguleika á námsumhverfi sem ekki er í boði á öðrum vettvangi (Taylor og Carpenter, 2005). Mikilvægur þáttur í því tilliti er að sleppt sé línulegri umfjöllun um efnið og nemendur geti ráðið hvað þeir skoða og hvenær. Það textaform sem vefræn framsetning byggist á er talið líkja mjög eftir námsferli heilans, ekki ósvipað því þegar við reikum fram og til baka í umræðum (Popovich, 2006). Gagnvirk margmiðlun hefur víða verið rannsökuð og er talin vera mjög virkt form til náms. Þetta framsetningarform námsefnis hefur verið tengt vitsmunasálfræði þar sem unnið er út frá kenningum um það hvernig nemendur nálgast og tileinka sér
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118

x

Uppeldi og menntun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.