Uppeldi og menntun - 01.01.2009, Side 101

Uppeldi og menntun - 01.01.2009, Side 101
Uppeldi og menntUn/icelandic JoUrnal of edUcation 18(1)/2009 101 hi ldUr skarphéð insdótt i r Mat og eftirlit með gæðum leikskólastarfs Nýjar lagagreinar eru um mat og eftirlit með gæðum skólastarfs. Greint er á milli innra mats/eftirlits sem fer fram innan skólanna sjálfra og ytra mats/eftirlits sem yfirvöld eða aðrir aðilar utan skólans standa fyrir. Með lögunum er sveitarfélögum tryggð aðkoma að ytra mati á þeirri starfsemi sem fram fer í leikskólum. Ákvæði um mat og eftirlit með gæðum leikskólastarfs miða að því að auðvelda sveitarfélögum að fylgja eftir skólastefnu sinni og þeim áherslum í leikskólastarfi sem fram koma í skóla- námskrá hvers leikskóla. Gert er ráð fyrir að menntamálaráðuneytið annist greiningu og miðlun upplýs- inga um starf leikskóla á grundvelli upplýsinga frá sveitarfélögum og með sjálfstæðri gagnaöflun. Einnig skal ráðuneytið gera áætlun til þriggja ára um kannanir og úttektir sem miða að því að veita upplýsingar um hvort og hvernig markmiðum aðalnámskrár er náð. Hver leikskóli á að meta með kerfisbundnum hætti árangur og gæði leikskólastarfs með virkri þátttöku starfsmanna, barna og foreldra eftir því sem við á. Í fyrri lögum var ekki kveðið á um innra mat, en í reglugerð og aðalnámskrá var það gert. Því er komin hefð fyrir innra mati í leikskólum. Hvort það er kerfisbundið eður ei læt ég liggja milli hluta, en mjór er mikils vísir. Stjórnendur leikskóla hafa um langan tíma átt að skila til rekstraraðila greinargerð um framkvæmd innra mats í viðkom- andi leikskóla. Samkvæmt nýju lögunum á matið að leiða til þess að leikskólar geri umbótaáætlanir þar sem fram kemur m.a. hvað á að bæta eða efla, hvert sé markmiðið með því og hvernig verkefnið verði metið. Með árangursríku og velheppnuðu mati er uppeldis- og menntastarf leikskólans gert bæði sýnilegt og merkingarbært fyrir börn, starfsfólk og foreldra. Samstarf leikskóla og grunnskóla Í þessum lögum er það nýmæli að sveitarstjórnum er skylt að koma á nánu og skilvirku samstarfi leik- og grunnskóla. Tilgangur þessarar breytingar er að tryggja samstarf og samvinnu milli leik- og grunnskóla svo að aðlögun og undirbúningur leikskólabarna að grunnskólanámi takist sem best. Þá er enn fremur gert ráð fyrir því að upplýsingar fari á milli skólastiga um hvert einstakt barn. Hér er eingöngu átt við upplýsingar sem komið geta að gagni við upphaf skólagöngu barnsins í grunnskóla og geta stuðlað að því að grunnskólinn mæti þörfum þess. Til að unnt sé að koma á samstarfi sem þessu þurfa sveitarstjórnir að skapa viðeig- andi aðstæður og gera framkvæmda- og starfsáætlun um tengsl leikskóla og grunn- skóla. Mikilvægt er að vandað sé vel til verka við framkvæmd þessa samstarfs og að skólastigin bæði taki virkan þátt í því. Markmiðið er m.a. að tryggja að byggt sé á fyrra námi og reynslu leikskólabarna þegar þau koma í grunnskólann og að aðlögun þeirra verði eins og best verður á kosið. Gott og náið samstarf er nú þegar á milli skólastiganna í allflestum sveitarfélögum og bæjarhlutum og hefur verið svo til margra ára. Alltaf má gera betur og því miður hefur stundum vantað upp á þetta samstarf. Hér er því brotið blað með því að kveðið
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118

x

Uppeldi og menntun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.