Uppeldi og menntun - 01.01.2009, Page 101
Uppeldi og menntUn/icelandic JoUrnal of edUcation 18(1)/2009 101
hi ldUr skarphéð insdótt i r
Mat og eftirlit með gæðum leikskólastarfs
Nýjar lagagreinar eru um mat og eftirlit með gæðum skólastarfs. Greint er á milli
innra mats/eftirlits sem fer fram innan skólanna sjálfra og ytra mats/eftirlits sem
yfirvöld eða aðrir aðilar utan skólans standa fyrir. Með lögunum er sveitarfélögum
tryggð aðkoma að ytra mati á þeirri starfsemi sem fram fer í leikskólum. Ákvæði um
mat og eftirlit með gæðum leikskólastarfs miða að því að auðvelda sveitarfélögum að
fylgja eftir skólastefnu sinni og þeim áherslum í leikskólastarfi sem fram koma í skóla-
námskrá hvers leikskóla.
Gert er ráð fyrir að menntamálaráðuneytið annist greiningu og miðlun upplýs-
inga um starf leikskóla á grundvelli upplýsinga frá sveitarfélögum og með sjálfstæðri
gagnaöflun. Einnig skal ráðuneytið gera áætlun til þriggja ára um kannanir og úttektir
sem miða að því að veita upplýsingar um hvort og hvernig markmiðum aðalnámskrár
er náð.
Hver leikskóli á að meta með kerfisbundnum hætti árangur og gæði leikskólastarfs
með virkri þátttöku starfsmanna, barna og foreldra eftir því sem við á. Í fyrri lögum
var ekki kveðið á um innra mat, en í reglugerð og aðalnámskrá var það gert. Því
er komin hefð fyrir innra mati í leikskólum. Hvort það er kerfisbundið eður ei læt
ég liggja milli hluta, en mjór er mikils vísir. Stjórnendur leikskóla hafa um langan
tíma átt að skila til rekstraraðila greinargerð um framkvæmd innra mats í viðkom-
andi leikskóla. Samkvæmt nýju lögunum á matið að leiða til þess að leikskólar geri
umbótaáætlanir þar sem fram kemur m.a. hvað á að bæta eða efla, hvert sé markmiðið
með því og hvernig verkefnið verði metið. Með árangursríku og velheppnuðu mati er
uppeldis- og menntastarf leikskólans gert bæði sýnilegt og merkingarbært fyrir börn,
starfsfólk og foreldra.
Samstarf leikskóla og grunnskóla
Í þessum lögum er það nýmæli að sveitarstjórnum er skylt að koma á nánu og skilvirku
samstarfi leik- og grunnskóla. Tilgangur þessarar breytingar er að tryggja samstarf og
samvinnu milli leik- og grunnskóla svo að aðlögun og undirbúningur leikskólabarna
að grunnskólanámi takist sem best. Þá er enn fremur gert ráð fyrir því að upplýsingar
fari á milli skólastiga um hvert einstakt barn. Hér er eingöngu átt við upplýsingar sem
komið geta að gagni við upphaf skólagöngu barnsins í grunnskóla og geta stuðlað að
því að grunnskólinn mæti þörfum þess.
Til að unnt sé að koma á samstarfi sem þessu þurfa sveitarstjórnir að skapa viðeig-
andi aðstæður og gera framkvæmda- og starfsáætlun um tengsl leikskóla og grunn-
skóla. Mikilvægt er að vandað sé vel til verka við framkvæmd þessa samstarfs og að
skólastigin bæði taki virkan þátt í því. Markmiðið er m.a. að tryggja að byggt sé á fyrra
námi og reynslu leikskólabarna þegar þau koma í grunnskólann og að aðlögun þeirra
verði eins og best verður á kosið.
Gott og náið samstarf er nú þegar á milli skólastiganna í allflestum sveitarfélögum
og bæjarhlutum og hefur verið svo til margra ára. Alltaf má gera betur og því miður
hefur stundum vantað upp á þetta samstarf. Hér er því brotið blað með því að kveðið