Fréttablaðið - 27.03.2010, Síða 56
27. mars 2010 LAUGARDAGUR8
Lögfræðingur við Seðlabanka
Íslands
Seðlabanki Íslands auglýsir eftir lögfræðingi til starfa. Starfi ð heyrir undir aðallögfræðing bankans á skrifstofu bankastjóra.
Helstu verkefni lögfræðinga á skrifstofu bankastjóra er að annast margvíslega samningagerð fyrir hönd bankans, frágang löggerninga
og skuldaskjala. Þeir veita bankastjóra og sviðum bankans lögfræðiþjónustu svo sem með ráðgjöf, umfjöllun og ritun lögfræði-legra
álitsgerða. Þeir taka þátt í afgreiðslu erinda, umsagna og skjalagerð ásamt þátttöku í undirbúningi við reglusetningu bankans og
undirbúnings lagafrumvarpa og reglugerða. Starfi þeirra fylgir einnig þátttaka í nefndum og samskipti við innlendar og erlendar
stofnanir.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Embættis- eða meistarapróf í lögfræði
• Þekking og starfsreynsla í opinberri stjórnsýslu æskileg,
• Þekking og reynsla af löggjöf á fjármálamarkaði er æskileg
• Færni og lipurð í mannlegum samskiptum
• Gott vald á íslensku og færni í að tjá sig í ræðu og riti
• Góð tungumálakunnátta í ensku.
• Frumkvæði, sjálfstæði í vinnubrögðum og skipulagshæfni
Í boði er áhugavert og krefjandi starf þar sem reynir á öguð vinnubrögð, frumkvæði og sjálfstæði.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf skulu berast rekstrarsviði Seðlabanka Íslands, Kalkofnsvegi 1,
150 Reykjavík eigi síðar en 16. apríl n.k. Æskilegt er að viðkomandi geti hafi ð störf sem fyrst.
Nánari upplýsingar veitir Sigríður Logadóttir, aðallögfræðingur, í síma 569 9600.
sími: 511 1144
www.icelandexpress.is
með ánægju
Flugstjórar óskast !
Iceland Express auglýsir, fyrir hönd flugrekstraraðilans Astraeus, eftir flug-
mönnum vegna aukinna umsvifa og sterkrar verkefnastöðu. Um er að
ræða áætlunarflug á milli Íslands og áfangastaða Iceland Express sem verða
25 í Evrópu og Ameríku í sumar. Viðkomandi þarf að uppfylla öll skilyrði til
að starfa sem fullgildur flugstjóri, vera hress og skemmtilegur og hafa
áhuga á að starfa í lifandi umhverfi.
Umsóknir skulu vera á ensku og þurfa að berast fyrir 7. apríl nk.
Allar nánari upplýsingar er að finna á www.icelandexpress.is/jobs
Hæfniskröfur
Öll tilskilin réttindi
A.m.k. 3.500 flugtímar
1.000 flugtímar á Boeing 737 eða 757
500 flugtímar sem flugstjóri
Mjög góð enskukunnátta
Hæfni í mannlegum samskiptum