Fréttablaðið - 22.04.2010, Blaðsíða 1
Sími: 512 5000MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
veðrið í dag
22. apríl 2010 — 93. tölublað — 10. árgangur
Sérblað • fimmtudagur 22. apríl
REIÐHJÓL
& LÍNUSKAUTAR
Sölufulltrúar Henný Árnadóttir henny@365.is 512 5427 Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is 512 5447
BROWNS-TÍSKUVÖRUVERSLUNIN í London verður fjörutíu
ára á árinu. Af því tilefni hafa yfir þrjátíu heimsfrægir tískuhönnuð-
ir endurhannað flíkur sem munu verða hluti af „Future collecta-
bles” línunnar. Þetta eru hönnuðir á borð við Burberry, Christian
Louboutin, Erdem, Missoni, Sonia Rykiel og Stella McCartney.
„Ég aðhyllist afar kvenlega tísku
og er mikil kjólastelpa, en hef lent
í því upp á síðkastið að fara út ber-
leggjuð í opnum skóm að muppskorið hl
„Að mínu áliti ætti að banna
íslenskum konum að kyfir f
Út að viðra frænkurnar
Kvenleiki er aðalsmerki fjölmiðlaskvísunnar Þorbjargar Marinósdóttur, enda óhrædd við að klæðast
sterkum, djörfum litum í aðskornum og flegnum fötum sem leyfa kvenlegri fegurð að njóta sín til fulls
Tobba hefur undanfarið tekið forskot á
sumarið með skvísulegum drögtum og
opnum skóm, en þurft að fara í uppá-
haldspeysuna þegar vetur konungur
hefur neitað að víkja fyrir sólskinsskapi hennar í fatavali.
FRÉTTAB
LAÐ
IÐ
/VALLI
F Á K A F E N I 9 - - S í m i : 5 5 3 7 0 6 0
O p i ð m á n u d - f ö s t u d . 1 1 - 1 8 & l a u g a r d . 1 1 - 1 6
Skór & töskur í miklu úrvaliwww.gabor.is
Sérverslun með
2 SÉRBLÖÐ
í Fréttablaðinu
Allt
Reiðhjól
FIMMTUDAGUR
skoðun 24
Opið
13 til 18
Gleðilegt
sumar
VIÐSKIPTI „Því verður ekki með
orðum lýst, hvernig mér líður
vegna mistaka minna og afleið-
inga þeirra. Þær yfirsjónir verða
ekki aftur teknar. Við það verð
ég að lifa.“ Þetta segir Jón Ásgeir
Jóhannesson í grein sem hann
skrifar í Fréttablaðið í dag.
„Ég sé glöggt að ég missti iðu-
lega sjónar á góðum gildum og
mörgu því sem mestu skiptir í líf-
inu.“ Jón Ásgeir segist í baksýn-
isspeglinum sjá að fjármálakerf-
ið hafi alla tíð verið dæmt til að
hrynja og haustið 2008 hafi fjár-
málaofviðri loks feykt spilaborg-
inni um koll. Tími sjálfsblekkinga
og draumóra hafi þá runnið út.
„Fjármuni í felum á aflandseyj-
um á ég enga. En ég heiti íslensku
þjóðinni því að gera allt sem í mínu
valdi stendur til að bæta fyrir mis-
tök mín …“ - sh / sjá síðu 28
Jón Ásgeir Jóhannesson:
Missti sjónar á
góðum gildum
ÓVÆNT UPPÁKOMA Á LEIKSÝNINGU
Guðjón Þorsteinn Pálmars-
son svaraði í síma fyrir gest á
leiksýningunni Eilíf óham-
ingja.
Fólk 58
Ástráður tíu ára
Hafa frætt tugi þús-
unda unglinga og
ungmenna um
kynheilbrigði.
Tímamót 32
Tískuhönnuður í
kvikmyndagerð
Ásgrímur Már
Friðriksson ger-
ir myndband
fyrir Feldberg.
Fólk 58
SLYDDA SYÐRA Í dag verður hæg
norðaustlæg eða breytileg átt og
víða bjart en austan 3-8 m/s og
slydda sunnan til. Víða vægt frost
en 0-5 stig syðra að deginum til.
VEÐUR 4
-2
-4
-3
-1
0
SKATTAMÁL Skattrannsóknarstjóri rannsakar
nú stórtæk skattsvik flestra íslensku útrásar-
víkinganna og annarra aðalleikenda í íslensku
fjármálalífi í aðdraganda og eftirmálum
bankahrunsins.
„Já, ég ætla bara að játa því,“ segir Stef-
án Skjaldarson, settur skattrannsóknarstjóri,
spurður hvort nær allir þeirra viðskipta- og
athafnamanna sem verið hafa fastagestir í
fjölmiðlum frá hruni séu undir í rannsóknum
hans á stórum skattamálum. „Þetta eru mörg
og stór mál og flestar þessara persóna og leik-
enda í þessu öllu eru þarna á sínum stað.“
Fram hefur komið í fjölmiðlum að hundruð
milljóna í eigu Baldurs Guðnasonar, fyrrver-
andi forstjóra Eimskips, og viðskiptafélaga
hans, voru kyrrsettar fyrr í mánuðinum. Þá
sagði Viðskiptablaðið frá því í gær að til stæði
að kyrrsetja hundruð milljóna í eigu Jóns
Ásgeirs Jóhannessonar og Hannesar Smára-
sonar vegna hárra upphæða sem skráðar voru
sem rekstrarkostnaður FL Group en hefði átt
að telja fram til skatts sem hlunnindi.
Stefán segir að til standi að kyrrsetja eignir
í öllum stórum skattamálum. Með því sé átt við
mál þar sem skattkrafan verði minnst 50 millj-
ónir króna, en upphæðirnar séu alltaf varlega
áætlaðar svo of háar fjárhæðir séu ekki kyrr-
settar. Tugir slíkra mála séu nú í rannsókn
og ekki verði kyrrsett í smærri málum að svo
stöddu. Ljóst er að upphæðirnar sem skattayf-
irvöld ætla að freista þess að kyrrsetja hlaupa
á milljörðum króna. Stefán vill ekki tjá sig um
einstök mál og segir það mögulega geta haft
skaðleg áhrif á rannsóknirnar. Spurður hvort
fréttaflutningur af máli Hannesar og Jóns
Ásgeirs hafi skaðað rannsóknina, í ljósi þess
að enn eigi eftir að framkvæma kyrrsetning-
una, segist hann vona ekki. „Hann getur verið
mjög óheppilegur og skemmt fyrir málum en
ég bara vona það besta,“ segir Stefán.
Stefán vill ekki tjá sig um það hvort eign-
ir fleiri en Eimskipsmanna hafi þegar verið
kyrrsettar. Menn sem sæta þurfa kyrrsetn-
ingu geta kært ákvörðunina til dómstóla, en
það hefur enginn sem sætir rannsókn Stefáns
og hans manna gert enn.
- sh
Nær allir stórlaxarnir eru
grunaðir um skattsvik
Skattrannsóknarstjóri hyggst kyrrsetja eigur flestra útrásarvíkinga og annarra aðalleikenda í hruninu. Þeir
eru nær allir grunaðir um að hafa svikið undan skatti. Heildarupphæðin hleypur á milljörðum króna.
ELDGOS Gosið úr Eyjafjallajökli hefur leikið bændur
grátt. Fjölskyldan á Þorvaldseyri hefur til að mynda
ákveðið að gera hlé á búskapnum meðan jörðin jafn-
ar sig. Þá ætla þau að hefja leik að nýju.
En askan sem liggur yfir öllu er ekki alslæm. Hún
er „í rauninni ástæða þess að íslenskur jarðvegur er
jafn frjór og hann er“, segir Þorvaldur Þorvaldsson
eldfjallafræðingur. Askan er rík af stein- og snefil-
efnum.
Styrkur gossins var í gær um tíundi hluti af því
sem hann var þegar mest var, að mati Magnúsar
Tuma Guðmundssonar jarðeðlisfræðings og Veður-
stofan telur gosmökkinn hafa mest farið í um fjög-
urra kílómetra hæð.
Flugsamgöngur á meginlandi Evrópu voru í gær
að komast í samt lag. Millilandaflug íslensku flug-
félaganna er á áætlun í dag en innanlandsflug hefur
verið meira og minna legið niðri síðan á fimmtudag-
inn í síðustu viku.
- kóþ, sbt, jab / sjá síður 8, 10 og 11
Fjölskyldan á Þorvaldseyri hættir búskap í bili en bíður betri tíðar:
Askan er hinn besti áburður
Naumur sigur Bayern
Arjen Robben tryggði Bayern
1-0 sigur á Lyon í undan-
úrslitum Meistaradeildar
Evrópu í gær.
íþróttir 50
GLEÐILEGT SUMAR Nú er haldin barnamenningarhátíð í Reykjavík og ber þess merki víða um borgina. Far-
þegar í strætisvögnum og gestir sundlauga hafa til að mynda fengið að njóta listaverka ungu kynslóðarinnar. Þessir krakkar
láta ekki sitt eftir liggja og brostu sínu blíðasta í Hallargarðinum í gær.
FR
ÉTTA
B
LA
Ð
IÐ
/STEFÁ
N