Fréttablaðið - 22.04.2010, Page 67

Fréttablaðið - 22.04.2010, Page 67
FIMMTUDAGUR 22. apríl 2010 47 Þriðja myndin um mennina í svörtum fötum verður gerð. Þetta staðfesti höfundur og leik- stjóri myndarinnar, Barry Sonn- enfeld. Þá er það einnig staðfest að Tommy Lee Jones mun end- urtaka hlutverk sitt sem Kay en miklar vangaveltur höfðu verið uppi um hvort Tommy Lee myndi yfirhöfuð nenna þessum stór- myndahasar eftir að hafa ein- beitt sér að miklu einfaldari og látlausari verkefnum undanfarin ár. Hins vegar er það talið skipta miklu máli að launaávísunin er töluvert hærri fyrir svona mynd og gefur Tommy tækifæri til að einbeita sér enn frekar að sjálf- stæðri kvikmyndagerð þegar tökum lýkur. Rétt er að taka fram að Will Smith verður einnig með. Sonnenfeld upplýsti einnig að myndin yrði gerð í þrívídd en það þykir ekki lengur tíðindum sæta enda ætla nánast allir í Holly- wood að gera kvikmyndir í þrí- vídd um þessar mundir. MIB 3 verð- ur í þrívídd SNÚA AFTUR Tommy Lee og Will Smith ætla að endurtaka hlutverk sín í MIB 3. F. Scott Fitzgerald er einn þeirra bandarísku rithöfunda sem verða alltaf að hálfgerðri tískubylgju í Hollywood. Kvikmyndir sem byggja á verkum hans koma í gusum en svo gerist kannski ekki neitt í þeim efnum svo árum og áratugum skiptir. Nú virðist kvikmynd Davids Fincher um undarlegt líf Benjamins Butt- on hafa kveikt áhugann á verk- um rithöfundarins því í bígerð er kvikmynd sem byggir á smásögu hans Tender Is the Night. Meðal þeirra leikara sem hafa verið orðaðir við hlutverk í myndinni eru Matt Damon og Keira Knightley en enginn leikstjóri er þó sestur í bíl- stjórasætið. Fitzgerald á hvíta tjaldið FLOTT PAR Matt Damon og Keira Knightley yrðu án efa flott par á hvíta tjaldinu. Eins og kemur fram hér annars staðar á síðunni hefur Bond 23 verið frestað um óákveðinn tíma. Það þýðir að leikstjóri mynd- arinnar, Sam Mendes, verð- ur að finna sér eitthvað annað að gera. Mendes var auðvitað ekki lengi að finna nýtt verkefni því hann er orðaður við endurgerð á hinni sígildu kvik- mynd Galdrakarlinn í Oz eða The Wizard of Oz. Reyndar er Mendes ekki sá eini sem langar að gera kvikmynd eftir þessu sígilda ævintýri því alls eru 23 handrit í gangi sem byggja með einum eða öðrum hætti á sögunni um galdrakarlinn. Kvik- mynd Mendes verður þó að teljast líklegust því sá orð rómur er á kreiki að stórleikarinn Robert Downey Jnr. hafi mikinn áhuga á að leika í myndinni en Downey verður að teljast einhver besta upprisa í Hollywood síðan John Travolta steig trylltan dans í Pulp Fiction. Downey til Oz Í ÆVINTÝRAMYND Downey leikur Tony Stark í Iron Man 2 og hefur víst einnig áhuga á að leika í Galdrakarlinum frá Oz eftir Sam Mendes. DVD-útgáfan af Avatar kemur út á morgun og menn eru þegar farn- ir að spá sölumetum í unnvörpum. Mestu athyglina vekur þó viðtal við leikstjóra myndarinnar, James Cameron, í LA Times en hann er þegar farinn að spá og spekúlera í framhaldsmyndinni. „Við bjugg- um til risastóran striga þar sem við getum komið umhverfi Pand- ora til skila,“ segir Cameron en fyrir þá örfáu sem ekki sáu Avat- ar er rétt að geta þess að Pandora er plánetan sem jarðarbúar reyna að hertaka. Cameron heldur síðan áfram í viðtalinu að greina frá ýmsum þáttum framhaldsmyndarinn- ar og tekur fram að næsta mynd muni hafa allt annað yfirbragð en sú fyrsta. „Ég reikna með því að hún muni rannsaka lífríki sjávar á Pandora. Hafið verður álíka lit- skrúðugt, fjölbreytt og ævintýra- legt en munurinn verður auðvitað sá að þarna verður regnskógur- inn ekki í aðalhlutverki.“ Þetta er ekki í fyrsta skipti sem leik- stjórinn gerir kvikmynd úti á ballarhafi. Titanic var auðvitað mestmegnis um risastórt fley sem sigldi á ísjaka og The Abyss gerðist að miklu leyti í undirdjúpunum. Avatar II gerist úti á hafi GERIST Á SJÓ Næsta myndin í Avatar- flokknum gerist úti á rúmsjó. James Cameron segir að hún eigi eftir að verða jafn litskrúðug og fyrsta myndin. Outlet afs lá t tur 60-80% Vorum að fylla búðina af vörum...

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.