Fréttablaðið - 22.04.2010, Side 56
36 22. apríl 2010 FIMMTUDAGUR
BAKÞANKAR
Ragnheiðar
Tryggva-
dóttur
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
Nú fer ég að
verða hræddur!
Hálftími og ekki
píp frá þeim!
Aldeilis
skíthræddur,
verð ég að
viðurkenna!
Hvað
ertu
að
gera?
Mamma! Þetta
eru gamlir tón-
leikabolir!
Þetta eru
safngripir!
Ég er orðl...
Algjörlega
sleginn út
af laginu!
Að hann
skuli hafa
geymt þá
í öll þessi
ár?
... meira að
hann skuli
hafa tengst
einhverju
sem gæti
hafa talist
kúl.
Ég er að
rífa gömlu
stutt ermabolina
hans pabba þíns
niður til að nota
þá í tuskur.
Ferðu í próf? Nei.
Nei.Heimavinna?
Er einhver að stríða
þér eða taka af þér
kökuna þína í
hádegishléinu?
Ekki ennþá.
Þannig að
kviðdóms-
seta er eins
og barna-
skóli án
pressunnar.
Og það eru
fleiri hlé.
Hvað
gerðirðu
eiginlega í
kviðdómn-
um, pabbi?
Sko, við sitjum
eiginlega bara
þarna og hlust-
um.
Bíddu nú
aðeins við, af
hverju fór ég
yfir götuna?
Þegar
kjúklingar eldast
Grillarar óskast
á Fabrikkuna
ERTU SLYNGUR MEÐ SPAÐANN?
Okkur vantar vana menn til að snúa
borgurum og vinna í eldhúsi okkar.
Andrúmsloftið er einstaklega
skemmtilegt enda brjálað að gera og
umsækjendur þurfa að þola álagið vel.
Við leitum að starfsmönnum í fullt
starf, hlutastarf og helgarstarf.
Einnig vantar liðtæka aðstoðarmenn í
eldhús við uppvask og undirbúning.
Sendið umsókn ásamt mynd og ferilskrá á
hinni@fabrikkan.is
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki
Mig hefur lengi langað til að kíkja inn á Iðnaðarsafnið á Akureyri en einhvern
veginn hefur aldrei orðið af því. Þó er ég oft
á ferðinni norðan heiða en yfirleitt í stutt-
an tíma í einu og dagskráin þétt. Nýver-
ið var ég þó stödd í höfuðstað Norðurlands
með fjölskylduna og eftir annasama helgi
sem samanstóð ýmist af heimsóknum eða
heimboðum tóku við nokkrir virkir dagar
sem við höfðum úr að spila, áður en haldið
yrði heim suður yfir heiðar. Þeir dagar voru
rólegri enda allir aðrir í vinnunni og við í
fríi.
ÉG hugsaði mér þá gott til glóðarinnar að
láta loksins verða af heimsókn í Iðnaðar-
safnið og sá fyrir mér að eyða drjúgum
dagsparti þar. Iðnsaga Akureyrar er um
margt merkileg en meðal annars var stund-
uð smjörlíkisgerð í bænum á árum áður,
umsvifamikil ullarvinnsla starfrækt og
prjónaverksmiðja. Ekki varð þó af heimsókn
minni í safnið þennan þriðjudaginn þar sem
það var lokað.
VIÐ nánari eftirgrennslan komst ég
að því að safnið er einungis opið tvo
klukkutíma á viku á veturna og það á
laugardögum. Þessa tvo klukkutíma
á laugardeginum hafði ég hins vegar
svo skynsamlega eytt í búðarráp á
Glerártorgi, verslunarmiðstöð bæjar-
ins, þar sem gallabuxur voru á afslætti.
IÐNAÐARSAFNIÐ er þó ekki eina safnið í
bænum. Minjasafn Akureyrar stendur tign-
arlegt í innbænum og þar er líka Nonnahús.
Flugsafn er einnig að finna í bænum og svo
auðvitað hús skáldanna, Davíðshús og Sig-
urhæðir. Ég hafði þó gloprað tækifærinu á
að kíkja við í öllum þessum söfnum því þau,
sem á annað borð voru opin á veturna, voru
einnig bara opin þessa sömu tvo klukkutíma
á laugardögum.
AKUREYRI er fallegur bær á sumrin. Nú
var hins vegar skítkalt og lítið skemmtilegt
að rangla um miðbæinn með barnakerru,
enda er umferð gangandi vegfarenda nánast
ófær um gömlu „göngugötuna“ eftir að bíla-
umferð var hleypt um hana og blómakerj-
um dreift á gangbrautirnar. Okkur langaði
ekkert aftur inn á Glerártorgið en var orðið
frekar kalt þegar við komum loks að safn-
dyrum sem stóðu okkur opnar. Amtsbóka-
safnið var opið og þangað hröktumst við
fjölskyldan undan norðanfjúkinu.
INNI var hlýtt og notalegt, fáir gestir á
ferli. Við hreiðruðum um okkur í horni með
bækur og blöð og áttum hina bestu stund
og heimsóttum bókasafnið nánast daglega
þessa fáu daga sem við stoppuðum í bænum.
Ég verð bara að reyna við Iðnaðarsafnið
síðar, ef ekki verða þeim mun betri tilboð á
Glerártorgi þann laugardaginn.
Safndagurinn eini á Akureyri