Fréttablaðið - 22.04.2010, Blaðsíða 39

Fréttablaðið - 22.04.2010, Blaðsíða 39
FIMMTUDAGUR 22. APRÍL 2010 www.markid.is • sími 553 5320 • Ármúla 40 Giant Rincon Fjallahjól, álstell, stillanlegur dempari og 24 gírar. 74.900 kr. Giant MTX 6-8 ára álstell, dempari og 6 gírar verð frá 37.900 kr. 8-11 ára álstell, dempari og 18 gírar verð frá 49.900 kr. Giant Sedona Borgarhjól, álstell, dempari í sæti og framgaffli, 21 gír. Til í herra og dömu verð frá 69.900 kr. Giant Boulder Fjallahjól, álstell, dempari að framan, 21 gír, Til í herra og dömu verð 65.900 kr. Markið er sérhæfð íþrótta- vöruverslun sem leggur meðal annars áherslu á hjól og rekur verkstæði og varahlutaþjón- ustu fyrir hjólreiðamenn. „Það er af sem áður var þegar flestir Íslendingar keyptu sér fjallahjól. Götuhjól njóta nú mestra vinsælda, að minnsta kosti hjá okkur, þar sem menn eru farnir að sjá kosti þess að vera á þeim inn- anbæjar. Sjálfur var ég til dæmis alltaf á fjallahjóli en er búinn að skipta alfarið yfir í hitt,“ segir Árni Traustason, verslunarstjóri hjá Markinu, Ármúla 40, og rekur ástæðuna fyrir því. „Þetta er bara miklu betri og þægilegri ferðamáti, sem helgast meðal annars af því hnakkarn- ir á götuhjólum eru mýkri, stýr- in og sætin stillanleg og dekkin slétt þannig að viðnám er minna og því langtum auðveldara að kom- ast leiðar sinnar innan bæjarmark- anna heldur en á fjallahjólum, sem eru á grófari dekkjum og gefa þar af leiðandi meira viðnám á föstu undirlagi.“ Árni segir konur hafa verið fyrri til að átta sig á kostum götu- hjóla, karlarnir séu hins vegar allir að koma til. „Mörgum líst reyndar ekki á blikuna í fyrstu en flestum snýst hugur þegar þeir hafa fengið að prufa,“ segir hann og hlær og bætir við að hjá Mark- inu fáist götuhjól frá hollenska hjólaframleiðandanum Giant, sem sé sá stærsti og virtasti í þessum bransa. „Hjólin koma nánast strípuð ef frá eru taldir standar en svo býðst aukabúnaður, körfur á stýrið, bretti og bögglaberar, sem kosta á bilinu 2.900-5.900 krónur, hjálmar á börn og fullorðna, hlífar og annar öryggisbúnaður,“ segir Árni. Fjallahjólin segir hann þó standa fyllilega fyrir sínu þegar farið er út fyrir bæinn og eins séu blendingshjól, sem eru sambland af götu- og fjallahjólum, frá Scott handhæg. „Svo má ekki gleyma yngstu kynslóðinni, en hjá Mark- inu ætti hún að finna hjól við sitt hæfi. Árni segir Markið einnig státa af góðum lager af varahlutum. „Við rekum hér verkstæði og varahluta- þjónustu sem er höfð opin á sama tíma og verslunin og getum bjarg- að flestu í hjól og höfum oft redd- að viðskiptavinum okkar í gegnum tíðina.“ Nánar á www.markid.is. Götuhjól vinsæll fararskjóti „Mörgum líst reyndar ekki á blikuna í fyrstu en flestum snýst hugur þegar þeir hafa fengið að prufa,“ segir Árni um götuhjól sem njóta vaxandi vinsælda. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Markið rekur verkstæði og varahlutaþjónustu. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN ● AÐ FYRIRBYGGJA SLYS AF VÖLDUM LÍNUSKAUTA Veljið línuskauta sem henta aldri og getu barnsins. Ef barnið er byrj- andi er betra að velja línuskauta með 3 eða 4 hjólum. Línuskautar með fimm hjólum er fyrir þá sem eru vanari og þá sem skauta lengri vega- lengdir. Hafið barnið með þegar línuskautarnir eru keyptir. - Farið reglulega yfir hjólin á línuskautunum og skoðið hvort þau séu slitin. - Skoðið hvort grjót sé í hjólalegunum. - Athugið hvort hemlar séu í lagi. Ekki er óeðlilegt að þurfa að skipta um þá öðru hvoru. - Brýnið fyrir barninu að nota alltaf viðeigandi öryggisbúnað svo sem hjálm og hlífar á olnboga, úlnliði og hné. - Hjálmurinn þarf að passa vel á barnið og vera rétt festur. Ekki á að vera hægt að hnika honum til nema um örfáa millimetra á höfðinu. Hjólreiðahjálmur hentar ágætlega fyrir barn á línuskautum, en ann- ars er til sérstakur línuskautahjálmur með meiri vörn á hnakkanum, vegna þess hve oft línuskautarar detta aftur fyrir sig. - Ef barnið er að byrja að læra á línuskauta þarf að kenna því að nota hemlana rétt og að detta rétt.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.