Fréttablaðið - 22.04.2010, Síða 2
2 22. apríl 2010 FIMMTUDAGUR
Ólöf, er heimsendir ekki að
trekkja?
„Nei, hann gerir það ekki en heims-
endaspár geta valdið trekki.“
Ólöf Ýrr Atladóttir er ferðamálastjóri.
Aðilar í ferðaþjónustunni hafa gagnrýnt
forseta Íslands harðlega fyrir að fæla burt
ferðamenn með því að segja við BBC að
Kötlugos sé óumflýjanlegt og að gosið í
Eyjafjallajökli sé aðeins æfing fyrir það.
SKIPULAGSMÁL Eigendur gömlu
Heilsuverndarstöðvarinnar á
Barónsstíg hafa nú fengið leyfi
skipulagsráðs Reykjavíkur til að
breyta byggingunni í hótel fyrir
Icelandair Hotels.
„Við ítrekum mikilvægi þess að
húsinu sé sýnd sú virðing sem það
á skilið,“ segir Júlíus Vífill Ingv-
arsson, formaður skipulagsráðs.
„Af mínum samtölum við eigend-
ur hússins er ljóst að það er mik-
ill vilji til þess að þær breytingar
sem munu verða nauðsynlegar séu
gerðar í fullu samráði við húsa-
friðunarnefnd ríkisins og af þeim
metnaði sem húsið á skilið.“
Fyrirhuguð breyting á Heilsu-
verndarstöðinni hefur verið
umdeild bæði meðal almennings
og eins innan skipualagsráðs þar
sem ítarlega hefur verið farið í
saumana á málinu, meðal annars
með vettvangsferð ráðsins í bygg-
inguna sjálfa með arkitekti og
fulltrúum eigenda og Icelandair
Hotels. Eins og fram kom í Frétta-
blaðinu í gær var afgreiðslu máls-
ins frestað á fundi skipulagsráðs
í síðustu viku að beiðni Sóleyj-
ar Tómasdóttur, fulltrúa Vinstri
grænna. Sóley samþykkti í gær
ofangreinda afgreiðslu skipulags-
ráðs eins og allir aðrir sem í ráð-
inu sitja.
„Það kemur skýrt fram í bókun,
sem allir í ráðinu eru sammála um,
að auðvitað viljum við að húsið,
sem hefur þetta mikla menning-
arsögulega gildi, haldi áfram að
þjóna því hlutverki sem það var
hannað fyrir. En eins og kemur
líka fram í bókuninni er í raun ekk-
ert í deiliskipulaginu sem segir að
þarna megi ekki vera hótel þannig
að við höfum engar forsendur til
þess að taka neikvætt í þessa fyr-
irspurn,“ segir Sóley sem ítrekar
að enn eigi eftir að fá samþykkt
byggingarleyfi. „Ég ætla að leyfa
mér að vona áfram að húsið kom-
ist í notkun sem er meira við hæfi
en hótelrekstur og þá er ég að tala
um heilsutengda starfsemi af ein-
hverjum toga,“ segir hún.
Breytingarnar sem áætlað er að
gera snúast nær alfarið um innra
skipulag Heilsuverndarstöðvar-
innar og ekki á að snerta á ytra
byrði hússins.
Ekki náðist í Magneu Þóreyju
Hjálmarsdóttur, framkvæmda-
stjóra Icelandair Hotels, í gær en
upphafleg áætlun hótelkeðjunnar
var sú að hótel yrði opnað í Heilsu-
verndarstöðinni strax í vor til að
ná sumarvertíðinni. Útséð virð-
ist um að þau áform nái fram að
ganga úr þessu. gar@frettabladid.is
Heilsuverndarstöðin
má hýsa hótelrekstur
Skipulagsráð Reykjavíkur heimilaði í gær að Heilsuverndarstöðinni á Baróns-
stíg yrði breytt fyrir hótelrekstur. Ekki forsendur til að hindra málið segir for-
maður skipulagsráðs sem leggur áherslu á samráð við Minjasafn Reykjavíkur.
SÓLEY TÓMAS-
DÓTTIR
JÚLÍUS VÍFILL
INGVARSSON
HEILSUVERNDARSTÖÐIN Grænt ljós hefur nú verið gefið á að innrétta hótel með um
níutíu herbergjum í Heilsuverndarstöðinni. SAMSETT MYND/FRÉTTABLAÐIÐ
DÓMSMÁL Haukur Þór Haraldsson, fyrrver-
andi framkvæmdastjóri rekstrarsviðs Lands-
bankans, er ekki sekur um fjárdrátt. Þetta
er niðurstaða Héraðsdóms Reykjavíkur, sem
sýknaði í gær Hauk af ákæru um að hafa með
millifærslu á 118 milljónum króna af reikningi
af landsfélags á Guernsey ætlað að eigna sér
féð.
Haukur hélt því fram að hann hafi einungis
ætlað að forða fénu frá því að brenna inni við
hrun bankanna, þar sem óvissa ríkti um það
hvort íslenski innstæðutryggingarsjóðurinn
myndi tryggja fé á reikningum erlendra lögað-
ila í íslenskum bönkum.
Í niðurstöðu dómsins segir að ekkert sé
fram komið í málinu sem hreki þessa málsvörn
Hauks. Ýmislegt styðji það að hann hafi verið
hræddur um afdrif fjárins, hann hafi mátt vita
að millifærslan yrði skoðuð af eftirlitsaðilum,
og ekki verði séð að hann hafi reynt að færa féð
laumulega. Af þessum sökum er Haukur sýkn-
aður.
Málið var afar umfangsmikið. Allir helstu
stjórnendur Landsbankans báru vitni fyrir
dómi og málskjöl voru talin í hundruðum á þús-
undum blaðsíðna. Til marks um umfangið er
ríkinu gert að greiða Gesti Jónssyni, lögmanni
Hauks, fjórar milljónir króna í málsvarnar-
laun. Í dómnum segir að bæði við undirbúning
málsins, bæði hjá lögreglu og verjanda, hafi
verið farið talsvert út fyrir efnið og „tíma eytt í
gagnaöflun sem telja verður þarflausa“. - sh
Dómur kveðinn upp í máli fyrrverandi framkvæmdastjóra í Landsbankanum:
Haukur Þór sýknaður af ákæru um fjárdrátt
SAKLAUS Haukur sést hér með verjanda sínum, Gesti
Jónssyni. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
VIÐSKIPTI Samkeppniseftirlitið
gerði húsleit í höfuðstöðvum Sím-
ans í Ármúla í gærmorgun vegna
gruns um mögulega markaðsmis-
notkun á farsímamarkaði. Það
var farsímafyrirtækið Nova sem
kvartaði til Samkeppniseftirlits-
ins. Eftirlitið lagði hald á skjöl og
tölvugögn.
Sævar Þráinsson, forstjóri
Símans, sagði í samtali við net-
miðilinn Vísi í gær að starfsfólki
hafi verið töluvert brugðið. Hann
benti á að rannsókn hafi farið
fram fyrir allnokkru. Í kjölfar
þessa hafi fengist þær upplýsing-
ar að hún hafi verið látin niður
falla. Þetta er fyrsta skiptið sem
húsleit er gerð í höfuðstöðvum
Símans.
Páll Gunnar Pálsson, forstjóri
Samkeppniseftirlitsins, segir
þvert á móti kvörtun hafa bor-
ist nýverið, bæði frá keppinauti
og ábending frá viðskiptavin-
um Símans. „Þau gáfu til kynna
markaðsaðgerðir, sem geta falið
í sér brot á samkeppnislögum ef
réttar reynast,“ segir hann.
Páll Gunnar segir að unnið
verði úr þeim gögnum sem hafi
verið haldlögð í rannsókninni en
segir ómögulegt að segja til um
hvenær hægt verði að greina frá
niðurstöðum. - jab
PÁLL GUNNAR PÁLSSON Samkeppniseftirlitið var með kvörtun frá Nova og ábend-
ingar frá viðskiptavinum þegar það lét til skarar skríða í húsakynnum Símans í gær.
FRÉTTABLAÐIÐ/RÓSA
Samkeppniseftirlitið rannsakar hugsanlega markaðsmisnotkun hjá Símanum:
Keppinautur Símans kvartaði
DÓMSMÁL Tveir karlar hafa verið
ákærðir fyrir Héraðsdómi Aust-
urlands fyrir að ráðast með
fólskulegum hætti að manni á
Djúpavogi. Báðir neituðu sök við
þingfestingu málsins.
Mennirnir eru ákærðir fyrir að
hafa ráðist á manninn 7. nóvem-
ber 2009. Fyrst hafi þeir slegið
hann nokkur hnefahögg í andlitið
og síðan haldið þeim barsmíðum
áfram meðan annar árásarmann-
anna hélt fórnarlambinu föstu.
Maðurinn nefbrotnaði og hlaut
glóðaraugu auk fleiri áverka.
Hann krefst rúmra 68 þúsund
króna í bætur. - jss
Neita sök fyrir dómi:
Tveir ákærðir
fyrir líkamsárás
LÖGREGLUMÁL Allt að 30 manns
komu saman fyrir utan heimili
Steinunnar Valdísar Óskarsdótt-
ur, þingmanns Samfylkingarinn-
ar, í gærkvöldi. Steinunn Valdís
var ekki heima á meðan fólkið var
þar fyrir utan.
Lögreglan fylgdist með því sem
fram fór og ræddi við fólkið. Í
máli lögreglunnar kom fram að
hegðun fólksins væri ólögleg og
að fjölskyldunni, sem býr í hús-
inu þar sem hópurinn kom saman,
væri ógnað. Um væri að ræða
brot á friðhelgi einkalífs og menn
mættu búast við því að verða
handteknir ef þeir mættu aftur í
dag. - jhh
Fólk fyrir utan hjá þingkonu:
Lögreglan hót-
ar handtökum
Nýr þingflokksformaður
Sjálfstæðiskonan Ragnheiður Elín
Árnadóttir úr Suðurkjördæmi tók
í gær við sem þingflokksformaður
Sjálfstæðisflokksins. Þetta kemur til
vegna afsagnar Illuga Gunnarssonar,
sem hætti á þingi tímabundið vegna
athugunar sérstaks saksóknara á mál-
efnum peningamarkaðssjóðanna.
ALÞINGI
DÓMSMÁL Liðsmaður vélhjóla-
klúbbsins Fáfnis, sem nú heitir
MC Iceland, fær ekki skaðabætur
frá ríkinu þrátt fyrir að hafa setið
í gæsluvarðhaldi í fimm daga og
síðan sleppt án þess að rannsókn
á meintri líkamsárás hans leiddu
nokkru sinni til ákæru.
Héraðsdómur Reykjavíkur
kemst að þeirri niðurstöðu að til-
efni hafi verið til að úrskurða
manninn í varðhald og að hann
hafi stuðlað að því sjálfur með
framkomu sinni. Átta aðrir núver-
andi og fyrrverandi klúbbmeðlim-
ir standa í málaferlum við ríkið
vegna sama máls. Einn hefur
þegar fengið dæmdar bætur. - sh
Ríkið sýknað af bótakröfu:
Fáfnisliði fær
engar bætur
BRUSSEL, AP Meirihluti þátttakenda
í könnun á vegum Evrópusam-
bandsins (ESB), eða 89 prósent,
vilja innleiða samræmdar reglur
innan aðildarríkjanna sem banna
unglingum undir átján ára aldri
að neyta áfengis.
Samræmdar reglur eru ekki
um áfengisneyslu innan aðildar-
ríkjanna en í mörgum þeirra er
miðað við átján ára aldur. Mis-
mikill áhugi var þó á þeim en allt
upp undir 96 prósent þátttakenda
vildu sjá slíkar reglur í Búlgaríu,
Lettlandi, Póllandi, Slóvakíu og á
Grikklandi. - jab
Áfengisneysla innan ESB:
Vilja miða við
18 ára aldur
MEÐ BJÓR VIÐ HÖND Niðurstöður könn-
unar á vegum ESB benda til að margir
vilja samræmdar reglur um áfengis-
neyslu unglinga. NORDICPHOTOS/GETTY
SPURNING DAGSINS