Fréttablaðið - 22.04.2010, Blaðsíða 52

Fréttablaðið - 22.04.2010, Blaðsíða 52
32 22. apríl 2010 FIMMTUDAGUR timamot@frettabladid.is Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og útfarir má senda á netfangið timamot@frettabladid.is. Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is eða hringja í síma 512 5000. JACK NICHOLSON LEIKARI ER 73 ÁRA „Með sólgleraugun á nefinu er ég Jack Nicholson. Án þeirra er ég feit- ur á áttræðisaldri. Og eins og gerist með aðra Íra er dauðinn í huga mér öllum stundum.“ Jack Nicholson telst með mestu kvik- myndastjörnum sögunnar. Hann hefur tólf sinnum verið tilnefndur til Óskars- verðlauna sem besti leikari og þrisvar farið með sigur af hólmi, fyrir Gauks- hreiðrið, Terms of Endearment og As Good As It Gets. „Hugmyndin að Ástráði kviknaði með þátttöku í alþjóða- starfi læknanema fyrir áratug,“ segir Júlíus Kristjánsson, formaður Ástráðs, um upphafið að forvarnastarfi lækna- nema. Helsta verkefni Ástráðs er að fræða unglinga og ung- menni um kynheilbrigði. „Á þessum áratug hafa hundruð læknanema í sjálfboðastarfi frætt um þrjátíu til fimmtíu þúsund unglinga og ungmenni í félagsmiðstöðvum, grunn- og framhaldsskólum um allt land,“ segir Júlíus. En eru krakkarnir ekkert feimnir? „Við rekum kennar- ana út og því eru þau yfirleitt opin og spyrja margra spurn- inga. Þau sem ekki þora að spyrja geta sent okkur tölvu- póst,“ segir Júlíus og áréttar að farið sé með öll bréf sem trúnaðarmál. Hann segir árangurinn af fyrirlestrunum góðan sem sýni sig kannski best í því að Ástráður hlaut forvarnaverðlaun Sjóvár 2007. „Þá hafði verið sýnt fram á að fóstureyðingum hafði fækkað frá því við hófum störf,“ útskýrir hann. Júlíus segir krakka mjög misvel að sér um kynheilbrigði. Misjafnt sé hversu mikil áhersla sé lögð á málefnið í grunn- skólum og hve mikið foreldrarnir kenni börnum sínum. „Við reynum með starfi okkar að stuðla að opinskárri umræðu og viljum ekki að kynheilbrigði sé tabú.“ Fjölmargir læknanemar taka þátt í starfi Ástráðs. Þeir ana ekki blint út í fræðsluna heldur fá viku undirbúnings- kennslu frá læknum, líffræðingum, sálfræðingum og félags- ráðgjöfum. Júlíus telur því ljóst að þetta sé einnig ávinn- ingur fyrir læknanemana. „Þeir eru allavega betur í stakk búnir að taka á þessum vandamálum í framtíðinni.“ Ástráður heldur upp á tíu ára afmæli sitt í dag og býður af því tilefni til veislu á efstu hæð í Turninum við Höfðatorg. „Þangað bjóðum við öllum vinum og velunnurum starfsins,“ segir Júlíus. Í afmælinu verður opnuð glæný heimasíða á www.astradur.is solveig@frettabladid.is ÁSTRÁÐUR: TÍU ÁRA Uppfræða um kynheilbrigði FORMAÐUR ÁSTRÁÐS „Á einum áratug hafa hundruð læknanema í sjálfboðastarfi frætt um 30 til 50 þúsund unglinga um allt sem viðkemur kynheilbrigði,“ segir Júlíus. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Alda Þórarinsdóttir Hólum 15, Patreksfirði, lést á Landspítalanum í Fossvogi 18. apríl. Jarðarförin auglýst síðar. Árni Halldór Jónsson Hrönn Árnadóttir Guðmundur Ólafur Guðmundsson Þór Árnason Sigríður Einarsdóttir Dröfn Árnadóttir Einar Jónsson Jón Bessi Árnason Guðrún Gísladóttir Sævar Árnason Elena Alda Árnason Stefanía Heiðrún Árnadóttir Valgeir Ægir Ingólfsson Brynja Árnadóttir Guðmundur Aðalsteinsson barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær sonur okkar, bróðir og barna- barn, Ísak Rafael Jóhannsson lést mánudaginn 19. apríl. Aðalbjörg Jónsdóttir Jóhann Rúnar Sigurðsson Jóhann Vilhjálmur Ólason Óli Dagmann Jóhannsson Villy Böegh Olsen Jóhannsson Jón Aðalsteinsson, María Kristjánsdóttir, Kolbrún Inga Sæmundsdóttir, Björn Arnórsson Óli Dagmann Friðbjörnsson, Hulda Jóhannsdóttir. Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Sólveig Bjarnadóttir frá Flateyri, sem andaðist á Hrafnistu Reykjavík laugardaginn 10. apríl, verður jarðsungin frá Áskirkju föstudaginn 23. apríl klukkan 11.00. Sigurður Ásgeirsson Hjördís Björnsdóttir Dagur Ásgeirsson Sunneva Traustadóttir Bergþóra Ásgeirsdóttir Guðmundur Kristjánsson barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Eðvarð Pétur Torfason fyrrverandi bóndi frá Brautartungu Lundarreykjadal, síðast til heimilis að Bæjarási Hveragerði, sem lést 17. apríl síðastliðinn, verður jarðsunginn frá Lundarkirkju Lundarreykjadal laugardaginn 24. apríl klukkan 14. Margrét Kristjánsdóttir Helgi Hannesson Sveinn Gunnar Eðvarðsson Anna Rafnsdóttir Hildur Eðvarðsdóttir Eiríkur Sveinsson Guðni Eðvarðsson Halldóra Ingimundardóttir barnabörn og barnabarnabörn. Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför frænku okkar Pollyar Svanlaugar Guðmundsdóttur Bókhlöðustíg 2 Reykjavík. Sérstakar þakkir til starfsfólks Heilbrigðisstofnunar Vesturlands Hvammstanga. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Guðmundur Jóhannesson Bjarney G. Valdimarsdóttir Jónína Ögn Jóhannesdóttir Birgir Jónsson Árni Jóhannesson Anna Olsen Guðmann Sigurbjörnsson Kristín A. S. Aradóttir Edda Ársælsdóttir Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför elskulegrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, Ragnheiðar Pálsdóttur Hjúkrunarheimilinu Holtsbúð Garðabæ. Inga Hafsteinsdóttir Jón Garðar Hafsteinsson Dagný María Sigurðardóttir ömmubörn og langömmubarn. Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Ólafur Friðrik Ögmundsson til heimilis að Grænumörk 5, Selfossi, lést á Heilbrigðisstofnun Suðurlands þann 20. apríl 2010. Útförin fer fram frá Víkurkirkju laugardaginn 1. maí kl. 14.00. Ögmundur Ólafsson Helga Halldórsdóttir Alda Guðlaug Ólafsdóttir Lilja Guðrún Ólafsdóttir Björn Friðriksson Erna Ólafsdóttir Eyjólfur Sigurjónsson Guðlaugur Jón Ólafsson Angela Rós Sveinbjörnsdóttir Baldur Ólafsson Kristín Erna Leifsdóttir Halla Ólafsdóttir Guðni Einarsson Jón Geir Ólafsson Ólöf Ragna Ólafsdóttir og fjölskyldur. Hjartans þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við and- lát og útför elskulegs tengdasonar míns, föður, tengdaföður og afa, Guðmundar Árna Bjarnasonar Smárahvammi 2, Hafnarfirði, sem lést miðvikudaginn 31. mars. Guðríður Guðbrandsdóttir Þorsteinn Guðmundsson Björg Sigurðardóttir Júlíana Ósk Guðmundsdóttir Ólafur Björn Heimisson Guðmunda Gyða Guðmundsdóttir Gylfi Bergmann Heimisson og barnabörn. Eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi og langafi, Agnar Árnason kaupmaður, sem lést miðvikudaginn 14. apríl, verður jarðsunginn frá Árbæjarkirkju föstudaginn 23. apríl kl. 15.00. Magnhildur Friðriksdóttir Magnús Agnarsson Ulrika Bladh Kristbjörg Agnarsdóttir Konráð Sveinsson Arnar Jökull Agnarsson Anna Lára Magnúsdóttir barnabörn og barnabarnabörn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.