Fréttablaðið - 22.04.2010, Side 58
38 22. apríl 2010 FIMMTUDAGUR
menning@frettabladid.is
kl. 21.00
Kvartett Leifs Gunnarssonar spil-
ar í kvöld í Múlanum. Flutt verður
dagskrá sem samin er af bassaleik-
urum, fyrir bassann eða þar sem
bassinn er í öndvegi. Ásamt Leifi
koma fram trompetleikarinn Snorri
Sigurðarson, píanóleikarinn Agnar
Már Magnússon og trommuleikar-
inn Scott McLemore.
Norðurpóllinn er leikrými
sem ungt leikhúsfólk af
höfuðborgarsvæðinu hefur
komið í nýtingu yst á Sel-
tjarnarnesi en þar hefur
ekki verið boðið til leiksýn-
inga atvinnuhópa um langt
skeið. Norðurpóllinn er í
Bygggörðum og er vandlega
merktur sem er nauðsynlegt
því næstu daga verða þar
frumsýnd tvö ný erlend verk
af tveimur sjálfstæðum leik-
hópum.
Alheimur frumsýnir á laugardag
Glerlaufin eftir Austur-Lundúna-
búann Philip Ridley og á sunnudag
frumsýnir Fátæka leikhúsið Tvo
fátæka pólskumælandi Rúmena
eftir Dorota Maslowsk, einn athygl-
isverðasta höfund Pólverja í dag.
Glerlaufin, sem er frumsýnt á
laugardag, er öflugt breskt nútíma-
leikrit eftir hinn margrómaða höf-
und Philip Ridley. Hann hefur skrif-
að fjölda leikrita og hlotið fjölmörg
verðlaun fyrir skrif sín en hann
hefur lagt gjörva hönd á margt:
hefur skrifað mikinn fjölda leikrita,
smásagna, bóka og kvikmyndahand-
rita og hefur hann hlotið fjölmörg
verðlaun fyrir skrif sín.
Glerlaufin voru frumsýnd árið
2007 í Soho Theatre í London. Þar
fékk verkið frábærar viðtökur og
mjög svo lofsamlega dóma. Fleiri
verk eftir Ridley eru til dæmis
Pitchfork Disney, The Fastest Clock
in the Universe og Mercury Fur.
Verkið fjallar um tvo ólíka bræð-
ur, Steven og Barry. Steven fetar
beinu brautina og á hið fullkomna
heimili. Barry er svarti sauður fjöl-
skyldunnar, drykkfelldur listamað-
ur sem hefur valdið móður þeirra
sárum vonbrigðum. Þó segir yfir-
borðið ekki allt, því þegar kafað er
dýpra birtast draugar fortíðar og
þaggaður sannleikurinn sem er of
sársaukafullur til að þola dagsljós-
ið. Hvað er satt og hvað er logið?
Hver er saklaus og hver er sekur?
Hvert er leyndarmál glerlauf-
anna?
Leikstjóri Glerlaufanna er Bjart-
mar Þórðarson og leikarar eru
Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, Jóel
Sæmundsson, Ólafur S.K. Þor-
valdz og Vigdís Másdóttir. Tónlist
er í höndum Védísar Hervarar og
ljósahönnuður er Arnar Ingvars-
son. pbb@frettabladid.is
Glerlaufin í Bygggörðum
LEIKLIST Breski höfundur-
inn Philip Ridley á að baki
fjöskrúðugan feril en þetta er
fyrsta verk hans sem sýnt er
hér á landi.
> Ekki missa af …
söngleiknum Oliver! í Þjóðleik-
húsinu en sýningum er nú að
fækka. Tvær verða á sunnu-
dag og þá hefur verið bætt
við sýningu í byrjun maí, en
sýningar verða þá orðnar 46.
Sýningin hentar fjölskyldufólki
þótt hún greini frá grimmdar-
verkum og hlaut á sínum tíma
lof gagnrýnenda.
Föstudaginn 23. apríl er dagur bókarinnar og
verður þess minnst með ýmsum hætti.
Alþjóðlegur dagur bókarinnar hefur verið
haldinn hátíðlegur síðan 1996 en hann er tengd-
ur fjölda höfunda: Cervantes og Shakespeare
létust þennan dag árin 1616 og 1623 og hann er
fæðingardagur Vladimirs Nabokov og Halldórs
Laxness. Aðrir kunnir bókamenn eiga afmæli
þennan dag, ljóðskáldið ástsæla Roy Orbison, og
fjöllistamennirnir Jónsi í Sigur Rós og myndlistar-
maðurinn Haraldur Jónsson.
Haraldur Jónsson sendir frá sér bók í tilefni
dagsins á vegum bókaútgáfunnar Útúrdúrs sem
sérhæfir sig í útgáfu bókverka. Haraldur kallar
bókina TSOYL en í henni eru ljósmyndir af und-
irmeðvitundinni sem listamaðurinn hefur unnið
að síðasta aldarfjórðunginn.
Bókverkaverslunin Útúrdúr opnaði við
Njálsgötu 14 2007. Ári síðar fluttist hún inn á
Nýlistasafnið en hefur deilt húsnæði með Havarí
í Austurstræti 6 síðan fyrir síðustu jól.
- pbb
Bókadagur á morgun
MYNDLIST
Haraldur Jónsson
er bókamaður
og gefur á degi
bókarinnar út
bók.
Geysivinsælu Su Duko bækurnar
eru fáanlegar aftur.
Spreyttu þig á talnagátunni
sem sigraði heiminn.
ÞÚ FÆRÐ
ALDREI NÓG!
Minnum á ávísunina í Viku bókarinnar
Ávísunin veitir þér 1.000 kr. afslátt af bókakaupum.
Hún gildir í bókabúðum þegar keyptar eru bækur
útgefnar á Íslandi fyrir 3.500 kr. að lágmarki.
Þegar þú notar þessa 1.000 kr. gjöf frá bóka-
útgefendum og bóksölum eflir þú lestur íslenskra
barna. Af hverri notaðri ávísun renna 100 kr. til
styrktar bókasöfnum grunnskólanna.
STYRKJUM SKÓLABÓKASÖFNIN!1.000 KR. AFSLÁTTUR!
Ávísun á lestur
Gildir til 3. maí 2010 Bókaútgefendur og bóksalar
1.000,-
Eittþúsund
1
3
5
7
9
2
4
6
8
10
Rannsóknarskýrsla Alþingis
Rannsóknarnefnd Alþingis
Hvorki meira né minna - Fanney
R. Elínardóttir/María Elínardóttir
Nemesis - kilja
Jo Nesbø
Fyrirsætumorðin - kilja
James Pattersson
Maxímús músíkús trítlar
í tónlistarskólann
Vetrarblóð - kilja
Mons Kallentoft
Litli prinsinn
Antoine de Saint-Exupéry
METSÖLULISTI EYMUNDSSON
SAMKVÆMT BÓKSÖLU Í EYMUNDSSON UM LAND ALLT
14.04.10 - 20.04.10
Hafmeyjan - kilja
Camilla Läckberg
Góða nótt, yndið mitt - kilja
Dorothy Koomson
Sítrónur og saffran - kilja
Kajsa Ingemarsson