Fréttablaðið - 30.04.2010, Qupperneq 2
2 30. apríl 2010 FÖSTUDAGUR
MENNING Rekstur ásatrúarsýning-
ar í húsnæði Eden í Hveragerði er
kominn í þrot og starfseminni var
hætt fyrir nokkru.
Sparisjóður Suðurlands tók
Eden-byggingarnar upp í skuldir í
júlí 2008. Frá því í fyrra hafa Dul-
heimar ehf. rekið þar sýningu um
ásatrú, goðheima og forna heims-
mynd germanskra manna. Félagið
hafði í janúar 2008 fengið vilyrði
bæjaryfirvalda fyrir lóð undir
Hamrinum í Hveragerði fyrir um
fjögur þúsund fermetra byggingu
undir skemmti- og fræðslugarð
um ásatrúna. Opna átti nýja setr-
ið vorið 2010 undir nafninu Auga
Óðins. Áætlanir um uppbygging-
una voru stórar. Meðal annars áttu
tugir Hvergerðinga að fá atvinnu
í setrinu.
Úr varð að Auga Óðins fór í
smækkaðri mynd inn í Eden í júlí í
fyrra undir nafninu Iðavellir. Sett
var upp sýning í gróðurhúsahlut-
anum og minjagripa- og veitinga-
sala var í fremri hlutanum eins og
verið hafði.
„Þetta er skemmtileg hugmynd
og spennandi ábót á mannlífið
hér,“ sagði Aldís Hafsteinsdótt-
ir, bæjarstjóri Hveragerðisbæj-
ar, við Fréttablaðið þegar áformin
um að opna í Eden voru ljós. „Að
sjálfsögðu verða allar hugmynd-
ir kristinna manna um upphaf til-
verunnar afmáðar svo Eden-nafn-
ið verður að sjálfsögðu að víkja,“
sagði Guðbrandur Gíslason hjá
Dulheimum.
Pétur Hjaltason, sparisjóðsstjóri
hjá Sparisjóði Suðurlands, segir að
nú standi yfir viðræður við vænt-
anlegan nýjan leigutaka. Vonast
sé til að aftur verði hægt að hefja
rekstur í húsinu seinni partinn í
maí.
„Það eru aðilar að taka þetta á
leigu sem ætla sér að vera þarna
með rekstur sem verður ekki
ósvipaður því sem Eden var áður,“
segir Pétur. „En það er ekki í hendi
fyrr en það er í hendi,“ ítrekar
hann.
Eins og áður segir eignaðist
Sparisjóður Suðurlands Eden í júlí
2008 vegna skulda fyrri eiganda.
Samkvæmt upplýsingum Frétta-
blaðsins áttu Dulheimar að greiða
yfir 1,6 milljónir króna á mánuði
í leigu fyrir húsið og reyndist það
félaginu of stór biti.
„Það er allt skellur,“ svarar
Pétur sparisjóðsstjóri aðspurður
hvort viðskiptin með byggingarn-
ar hafi reynst mikill skellur fyrir
sparisjóðinn. Guðbrandur Gíslason
hjá Dulheimum vildi í gær ekki tjá
sig um afdrif Iðavalla og hugsan-
legt framhald starfseminnar.
gar@frettabladid.is
Sýning ása í þrot og
Eden mun opna á ný
Dulheimar ehf. hafa hætt rekstri á ásatrúarsýningunni Iðavöllum og veitinga-
og minjagripasölu í húsnæði Eden í Hveragerði. Sparisjóður Suðurlands á húsið
og er að semja við nýja aðila sem hyggjast taka upp rekstur Eden í fyrri mynd.
Á IÐAVÖLLUM Sýning byggð á germanskri heimsmynd og ásatrú var opnuð í júlí í
fyrra og nafni Eden breytt í Iðavelli. Útlit er fyrir að Eden-nafnið verði tekið upp aftur.
Karl, kyngirðu ekki bara þessu
gosi eins og að drekka vatn?
„Jú, og fer létt með enda eru þetta
einu vökvarnir sem ég drekk fyrir
utan kaffi. Tala nú ekki um ef ég fæ
hraun með.“
Karl Rafnsson er hótelstjóri á Hótel
Kirkjubæjarklaustri sem þurft hefur að
þola afbókanir ferðamanna vegna goss-
ins í Eyjafjallajökli.
DÓMSTÓLAR Þrír menn eru nú fyrir
Héraðsdómi Reykjavíkur sakaðir
um að hafa svipt mann frelsi sínu
og klippt hann í fingurinn með
garðklippum í því skyni að kúga
af honum hálfa milljón króna.
Mönnunum er gefið að sök að
hafa í mars á síðasta ári leitt
manninn nauðugan að bifreið og
ýtt honum í farangursrými henn-
ar. Tveir mannanna hafi slegið
fórnarlambið ítrekað í andlit með
krepptum hnefa. Í Öskjuhlíð veitt-
ust þremenningarnir að honum
í sameiningu með höggum og
spörkum í andlit og líkama, auk
þess sem einn þeirra sló mann-
inn með steini í hægri öxl, spark-
aði í hnakka hans og annar árásar-
mannanna klippti
með garðklipp-
um í litla fing-
ur vinstri handar
hans. Í kjöl-
farið hótuðu
þeir mannin-
um frekari líkams-
meiðingum ef hann útveg-
aði ekki hálfa milljón króna innan
tiltekins frests. Enn fremur létu
þeir hann hringja í systur sína og
hótuðu henni því að beita fórnar-
lambið frekara ofbeldi ef hún ekki
greiddi þeim hálfa milljón króna.
Því næst færðu þeir manninn í far-
angursrými bifreiðarinnar og óku
með hann að slysadeild Landspít-
ala – háskólasjúkrahúss í Fossvogi
þar sem þeir skildu hann eftir.
Hann reyndist vera með umtals-
verða áverka. - jss
GARÐKLIPPUR Voru notaðar
til að reyna að kúga fé
út úr manni.
Þrír fyrir dómi vegna frelsissviptingar, líkamsárásar og tilraunar til fjárkúgunar:
Notuðu garðklippur á fingur
ÍTALÍA, AP Næsta eldgos á Ítalíu gæti orðið á hinni
friðsælu eyju Ischia, frekar en í hinu illræmda
fjalli Vesúvíusi. Ekki er þó talin hætta á gosi alveg
á næstunni.
„Ef ég ætti að segja hvaða eldfjall er komið næst
því að gjósa, þá myndi ég ekki nefna Vesúvíus
heldur Ischiu,“ segir Guido Bertolaso, yfirmaður
almannavarna á Ítalíu.
Undir eyjunni er kvikuhólf, sem samkvæmt mæl-
ingum hefur verið að þenjast út. Engin hreyfing
hefur hins vegar mælst í Vesúvíusi, sem síðast gaus
með látum árið 1944.
Ischia er þekkt ferðamannaeyja skammt út frá
borginni Napólí, ekki langt frá eyjunni Capri sem
einnig dregur að sér ferðamenn í stórum stíl.
Eldgos í Vesúvíusi yrði afar hættulegt, því í hlíð-
um fjallsins býr meira en hálf milljón manna og
borgin Napólí er í næsta nágrenni með eina milljón
manns. Eldgos í Ischiu yrði þó ekki síður skeinu-
hætt íbúum Napolí, því eyjan er rétt fyrir utan
Napolíflóa.
Síðast gaus í Ischiu árið 1302, eða fyrir rúmum
sjö hundruð árum. Þá höfðu liðið rúm þúsund ár frá
síðasta gosi árið 295, en eldvirkni var tíð á öldunum
þar á undan, þegar sjaldan liðu meira en hundrað ár
milli gosa og stundum aðeins fáir áratugir. - gb
Ítalskir jarðfræðingar spá í væntanleg eldgos:
Hafa helst áhyggjur af Ischiu
FRIÐSÆL ELDFJALLAEYJA Friðsældin er úti ef eldfjallið vaknar af
dvala. NORDICPHOTOS/AFP
LÍFEYRISMÁL Viðskiptaráð Íslands
telur grófa mismunun viðgangast
í lífeyrissjóðakerfinu.
Ráðið gagnrýnir hart að á sama
tíma og starfsmenn á almenna
vinnumarkaðnum taka á sig
skerðingu lífeyrisréttinda í stór-
um stíl séu kjör starfsmanna rík-
isins innan Lífeyrissjóðs starfs-
manna ríksins (LSR) tryggð.
Sérstaklega stingi þetta í augun
þar sem LSR hafi verið á meðal
þeirra lífeyrissjóða sem skiluðu
verstri ávöxtun árið 2008. Ríkið
bætir upp tap sjóðsins.
Viðskiptaráð telur ljóst að
óbreytt lífeyriskerfi opinberra
starfsmanna sé ósjálfbært og
feli í sér miklar skattahækkanir
til framtíðar. Réttindi sjóðfélaga
LSR eru bundin í lög og því óháð
ávöxtun og eignum sjóðsins. - shá
Viðskiptarráð á móti LSR:
Segja misrétti í
lífeyriskerfinu
KEYPT Í MATINN Ekki standa allir jafn-
fætis þegar kemur að lífeyrisgreiðslum.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
HEILBRIGÐISMÁL Bæjarráð Akur-
eyrar samþykkti á fundi í gær
að leggja göngudeild SÁÁ til 8,3
milljónir króna í ár og á næsta ári.
Er þetta gert með því fororði að
rekstur göngudeildarinnar verði
haldið áfram með sambærilegum
hætti og á undanförnum árum.
Í bókun segir að þrátt fyrir fjár-
framlagið telji ráðið að rekstur
SÁÁ eigi skilyrðislaust að vera
fjármagnaður af fjárlögum ríkis-
ins, en í ljósi aðstæðna er sam-
þykkt að leggja deildinni til 3,3
milljónir í ár og fimm milljónir
árið 2011. - shá
Göngudeildin fær annað líf:
Akureyrarbær
aðstoðar SÁÁ
VIÐSKIPTI Jón Ásgeir Jóhannesson
fékk tvö kúlulán til tíu ára fyrir
samtals 440 milljónir í síðasta
mánuði. Lánveitandinn er ókunn-
ur. Þetta kom fram í fréttum
Stöðvar 2 í gær.
Að veði fyrir lánunum liggja
tvær fasteignir í eigu Ingibjargar
Pálmadóttur, konu Jóns Ásgeirs,
við sömu götu í miðbæ Reykja-
víkur. Húsin eru nú bæði yfir-
veðsett.
Ingibjörg Pálmadóttir hafði
samband við Stöð 2 eftir að frétt-
in var flutt í gær og kom því á
framfæri að lánin væru vegna
skuldauppgjörs þeirra við Lands-
bankann og væru einkamál. - sh
Jón Ásgeir yfirveðsetur eignir:
Fékk lánaðar
440 milljónir
JÓN ÁSGEIR OG INGIBJÖRG Jón Ásgeir
þarf að borga lánin til baka á einu bretti
árið 2020. FRÉTTABLAÐIÐ / VILHELM
DÓMSMÁL Rúmlega þrjú hundruð
manns hafa ritað undir yfirlýs-
ingu þar sem þess er krafist að
dregnar verði til baka ákærur á
hendur nímenningunum sem nú
eru fyrir dómi fyrir að ryðjast inn
í alþingishúsið í búsáhaldabylting-
unni í desember 2008. Ella krefj-
ast þeir sem undir yfirlýsinguna
rita að þeir verði einnig ákærðir
þar sem þeir hafi tekið þátt í að
ráðast á Alþingi.
„Þann 1. febrúar 2009 sprakk
þingmeirihluti og ríkisstjórn féll.
Árásir okkar gegndu þar lykilhlut-
verki,“ segir í yfirlýsingunni, sem
stíluð er á íslenska ríkið. - jss
Innrásin á Alþingi:
Rúm 300 vilja
láta ákæra sig
VARSJÁ, AP Sitjandi Póllandsfor-
seti myndi sigra örugglega í for-
setakosningum gegn Jaroslaw
Kaczynski, tvíburabróður fyrr-
um forseta sem fórst í flugslysi
í Rússlandi fyrr í mánuðinum.
Þetta er niðurstaða þarlendrar
skoðanakönnunar.
Bronislaw Komorowski, forseti
þingsins tók við embættinu eftir
slysið.
Fyrirhugað er að halda kosning-
arnar 20. júní. - sh
Tvíburabróðirinn ekki vinsæll:
Kaczynski spáð
ósigri í Póllandi
SPURNING DAGSINS