Fréttablaðið - 30.04.2010, Blaðsíða 62
30 30. apríl 2010 FÖSTUDAGUR
BAKÞANKAR
Bergsteins
Sigurðs-
sonar
Steinunn Valdís Óskarsdóttir
í helgarviðtali
Fann systkini sín í
Bandaríkjunum.
- Ebba Unnur Jakobsdóttir var
komin yfi r sextugt þegar hún
hitti systur sína í fyrsta sinn.
Matur:
Ljúffengt í lautarferð.
- Uppskriftir frá Jómfrúnni
Sushi á árbakkanum.
- Sjálfbær matargerð er
sérgrein Gunnars Blöndal
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
Elskan
Í þessari bók
segir að verðandi
mæður muni
ganga í gegnum
miklar skapsveiflur
meðan á með-
göngu stendur...
Það er kannski
kominn tími til
að þú...
litli
Þetta er í
síðasta skipti
sem ég verð
í hreinum
fötum þegar
spaghettí er í
matinn.
Ef þessar
servéttur væru
gular þá mynd-
irðu líta út eins
og stór fugl.
Palli, enn og aftur
skilurðu skítuga
diska eftir í herberg-
inu þínu!
Ha?
Þú hefur ekki farið
með leirtauið í upp-
þvottavélina eins og
þú átt að gera!
Hvað?
Je minn
eini!
Bara spila sig nógu
heimskan. Þá sleppur
maður á endanum.
Ef Samfylkingin væri manneskja væri hún frjálslyndur, félagslyndur, greind-
ur og skemmtilegur stuðbolti. Formaður
nemendafélagsins í menntó. Dálítið athygl-
issjúk, hæfilega virðuleg í tauinu með snert
af flippi og ávallt reiðubúin til að úttala
sig um leiðir til að bæta heiminn. Það eina
sem hana vantaði væri dálítil áræðni til
að fylgja þeim eftir, sjálfsöryggi til að
vera hún sjálf og standa og falla með eigin
ákvörðunum.
SAMFYLKINGIN er með öðrum orðum geð-
þekk rola. Ágætur selskapur á góðri stund
en enginn til að reiða sig á þegar til kast-
anna kemur.
AF hverju vill Samfylkingin vera fremst
í flokki þegar það er eins og hún nenni
aldrei að hafa fyrir því? Af hverju hafa
flestir á tilfinningunni að Steingrímur
J. Sigfússon sé hinn raunverulegi for-
sætisráðherra en ekki Jóhanna Sigurða-
dóttir? Af hverju ber Samfylkingin
kápuna ávallt á báðum öxlum? Af
hverju teikar hún alltaf samstarfs-
flokkinn í ríkisstjórn og eignar
sér heiðurinn þegar gengur vel
og þvær hendur sínar þegar allt
fer í vaskinn? Af hverju getur
Samfylkingin ekki ákveðið sig
hvort hún vill vera jakka-
fatakrati eða lopapeysu-
kommi? Af hverju gortar hún sig af hring-
landanum?
AF hverju reynir Samfylkingin að kenna
öllum öðrum um hversu illa fór, ef ekki
Sjálfstæðisflokknum þá Tony Blair? Af
hverju talaði Samfylkingin svona digurbar-
kalega um gegnsæi í fjármálum flokkanna
þegar hún var sjálf með allt niðrum sig?
AF hverju segir Jóhanna Sigurðardóttir
að styrkjasukkið sé bara „óþægilegt“? Af
hverju er það „óþægilegt“ þegar frambjóð-
endur í prófkjörum þiggja fleiri milljónir
frá fyrirtækjum úti í bæ í styrki? Af hverju
segir Jóhanna ekki bara að styrkjasukkið
hafi verið ótækt, ólíðandi, ógeðslegt? Af
hverju segir hún styrkjasukkurunum ekki
að taka pokann sinn?
OG af hverju þarf annars að segja styrkja-
sukkurunum í Samfylkingunni að taka pok-
ann sinn? Af hverju gera þeir það ekki að
eigin frumkvæði? Af hverju þarf að bíða
eftir því hvað einhver úrbótanefnd komi
saman og semji til ályktunar? Af hverju
sendir Samfylkingin ekki þau skilaboð að
spilling sé ótæk, þótt hún þrífist í skjóli
reglna?
AF hverju getur Samfylkingin aldrei gert
neitt af myndarleik? Af hverju er hún aldrei
reiðubúin til að leggja sjálfa sig að veði?
Þú ert luðra, Samfylking