Fréttablaðið - 30.04.2010, Blaðsíða 24
24 30. apríl 2010 FÖSTUDAGUR
Umræða um málefni Orkuveitu Reykjavíkur er farin að bera
keim af kosningunum framundan.
Upplýsingum, sem frambjóðendur
telja sér til framdráttar, er haldið á
lofti án samhengis við nokkuð annað
í rekstri fyrirtækisins eða rekstr-
arumhverfi íslenskra fyrirtækja
almennt. Af þeim toga eru vígorð
um aukningu skulda Orkuveitunn-
ar. Þær eru vitaskuld viðfangsefni
sem reglulega er á borði stjórnar
fyrirtækisins og hjá OR sem og hjá
Reykjavíkurborg stendur yfir fag-
leg vinna við að meta stöðuna og
áhættuna í okkar síkvika rekstrar-
umhverfi.
Hér er í stuttu máli farið yfir
máefni OR í samhengi við fleiri
lykilstærðir rekstursins, s.s. aukn-
ingu eigna, verðmæti langtíma-
samninga og afgjald til eigenda í
gegnum tíðina.
Ástæða þess að OR hefur tekið
langtímalán í erlendum gjaldmiðl-
um er einfaldlega sú að vextir af
þeim eru brot af þeim vöxtum sem
lagðir eru á íslenskar krónur. Nærri
lætur að erlendur fjármagnskostn-
aður OR sé jafn og ef íslensk lán
hefðu verið tekin, þrátt fyrir geng-
ishrunið. Öll styrking krónunnar
frá því sem nú er gerir því erlendu
lánin hagstæðari að öðru óbreyttu.
Almenningur getur fylgst býsna vel
með þróun skuldastöðu OR. Árs-
reikningur liggur fyrir og gengi
íslensku krónunnar má lesa t.d. á
vef Seðlabanka Íslands.
Eignir OR hafa aukist mikið enda
hafa lánin verið tekin til fjárfest-
inga í traustum tekjuskapandi eign-
um. Sé sama mælikvarða beitt á
eignir og í upphrópunum um skuld-
ir, þ.e. íslenskar krónur á verðlagi
hvers árs, hafa þær meira en fimm-
faldast frá stofnun OR; farið úr 42
milljarða verðmati í 282 milljarða
króna. Í þessari tölu eru langtíma-
samningar um orku í erlendri mynt
ekki taldir nema að óverulegu leyti.
Þeir eru metnir á um 180 milljarða
króna. Á sama mælikvarða hefur
framlegð Orkuveitu Reykjavíkur
aukist úr 2,1 milljarði króna 1999
í 13 milljarða 2009, þ.e. meira en
sexfaldast.
Í þessum tölum gætir vitaskuld
verðbólguáhrifa en á sama tíma og
eignir og framlegð hafa vaxið með
þessum hraða, hefur verð á orku
ekki haldið í við verðbólgu og skipt-
ir tugum prósenta hvað almenning-
ur greiðir lægra raunverð en fyrir
áratug.
Loks er rétt að halda því til haga að
meðan á uppbyggingu fyrirtækisins
hefur staðið, hefur það greitt veru-
lega fjármuni til sveitarfélaganna
sem eiga fyrirtækið og axla með
eignarhaldi sínu ábyrgð á rekstri
og þjónustu við viðskiptavini langt
út fyrir mörk þeirra. Afgjald til eig-
enda hefur ekki verið tengt afkomu
hvers árs. Þannig jafnast sveiflur
góðæra og hallæra út í greiðslum til
eigenda. Það dæmalausa ástand sem
nú er uppi hefur þó leitt til helmings
niðurskurðar á afgjaldinu árin 2009
og 2010. Ef reiknað er til núvirðis
greiðir Orkuveita Reykjavíkur til
eigenda sinna samtals 33 milljarða
króna á árunum 1999 til 2010. Það
eru um 2,6 milljarðar á ári að jafn-
aði og hefur margt gott verkefnið
verið unnið fyrir það fé.
Orkuveitan og kosningabaráttan
Reykjavíkurborg leggur áherslu á að bæta stöðugt
þjónustu við íbúa í þeirra eigin
nærumhverfi. Borgaryfirvöld eru
meðvituð um að þarfir íbúanna
eru ólíkar eftir hverfum og þörf-
in fyrir hverfamiðaða þjónustu
og upplýsingar er mikil. Hvert
þeirra tíu hverfa sem borgina
byggja, allt frá vesturbæ norður
á Kjalarnes, hafa sína sérstöðu.
Á undanförnum árum hafa stór
skref verið stigin í þá átt að bæta
nærþjónustu Reykjavíkurborg-
ar. Öflugar þjónustumiðstöðvar
tóku til starfa, hverfisráð voru
sett á laggirnar í öllum hverf-
um, Hanskinn var tekinn upp til
að hreinsa og fegra hverfin og í
fyrsta sinn fengu íbúar hverfanna
tækifæri til að kjósa um smærri
viðhaldsverkefni og nýfram-
kvæmdir í fjárhagsáætlun þessa
árs, svo nokkur dæmi séu nefnd.
Markmið borgaryfirvalda er
að huga enn betur að nærþjón-
ustu í hverju hverfi með aukinni
upplýsingagjöf, bættu aðgengi
og fleiri tækifærum til þátttöku
í ákvörðunum er varða það sem
stendur íbúum næst. Stórt skref í
þessa átt var tekið með opnun tíu
nýrra hverfavefja í vikunni. Þar
er hægt að nálgast greinargóðar
upplýsingar um þjónustu Reykja-
víkurborgar í hverju hverfi fyrir
sig. Hverfavefina er að finna á
heimasíðunni hverfidmitt.is.
Hverfavefirnir hafa einnig að
geyma fróðlegar upplýsingar um
íbúasamsetningu í hverju hverfi,
nýlegar framkvæmdir, fram-
kvæmdir á yfirstandandi ári,
niðurstöðu íbúakosningar, hug-
myndir íbúa um skipulag, hverfis-
löggæslu, stolt hverfanna, mynda-
söfn með ljósmyndum úr hverfinu,
auk frétta um viðburði og tíðindi
sem tengjast hverfunum.
Síðast en ekki síst gefst íbúum
kostur á að koma hugmynd-
um sínum og ábendingum um
þjónustu Reykjavíkurborgar í
hverfinu á framfæri í gegnum
hverfavefina. Með viðkomu á
þjónustumiðstöðvunum renna
skilaboðin beint til viðeigandi
starfsmanna innan Reykjavíkur-
borgar til frekari vinnslu og upp-
lýsingamiðlunar.
Opnun nýrra hverfavefja á slóð-
inni hverfidmitt.is er enn eitt
framfaraskrefið í upplýsingamiðl-
un og samráði við borgarbúa. Ég
vil nota tækifærið og hvetja íbúa
til að nýta sér þessa nýjung, ekki
aðeins til að leita upplýsinga um
allt það sem í boði er í hverju
hverfi, heldur ekki síður til að
hafa enn frekari áhrif á ákvarð-
anir og aðgerðir er varða hverf-
in í borginni og þar með lífsgæði
íbúanna.
Aukin þjónusta við íbúa
Orkuveita Reykjavíkur
Guðlaugur G.
Sverrisson
stjórnarformaður OR
Í hugmyndaheimi margra Íslend-inga er undirrót alls ills í sam-
félaginu það fyrirkomulag sem
við lýði hefur verið við stjórn
fiskveiða sl. tvo áratugi. Ófáir
hafa haldið því fram að þangað
eigi efnahagshrunið rót sína að
rekja. Upptaka fiskveiðistjórn-
kerfisins hafi ýtt til hliðar því
samfélagi sem grundvallaðist á
norrænum gildum um velferð og
jöfnuð. Þessi einfalda söguskoð-
un var í megindráttum sett fram
í pistli Guðmundar Andra Thors-
sonar sem birtist í Fréttablaðinu
26. apríl sl., og þótt hún eigi sér
marga fylgjendur þá er hún að
mínu mati fjarstæðukennd. Fyrir
þessu eru margvíslegar ástæð-
ur en hér verða eingöngu fáeinar
nefndar.
Veiðimannasamfélagið
Um margra áratuga skeið gekk
efnahagslíf Íslendinga út á það
að veitt yrði sem mest. Gífur-
legum fjárhæðum var varið í að
byggja upp atvinnutæki í sjávar-
útvegi sem engin þörf var fyrir.
Með þessu átti að skapa atvinnu
vítt og breitt um landið án þess að
nokkur innstæða væri fyrir því.
Undirstöður hagkerfisins voru
reistar á því að ávallt yrði veitt
meira og meira af fiski, sama
hvaða ráð fiskifræðingar reiddu
fram um þolmörk auðlindarinnar.
Í krafti ofnýtingarinnar á fisk-
veiðiauðlindinni og rangri skrán-
ingu á gengi gjaldmiðilsins var
hægt að halda uppi fölskum lífs-
kjörum á Íslandi um langt skeið.
Á þessum grundvelli voru laun
almennings hækkuð en sú ráðstöf-
un lækkaði laun sjómanna miðað
við aðrar stéttir í samfélaginu.
Samtök þeirra vildu því að hið
miðstýrða fiskverð yrði hækk-
að. Þegar látið var undan þeirra
kröfum þurfti að fella gengið
til að útflytjendur sjávarafurða
gætu rekið sína starfsemi. Eftir
að gengið hafði verið fellt stóðu
launamenn frammi fyrir síhækk-
andi verðbólgu. Því fóru samtök
þeirra fram á hærri laun til handa
umbjóðendum sínum og sama
hringrásin hófst, laun á almenn-
um vinnumarkaði voru hækkuð,
fiskverð var hækkað, gengið fellt
og óðaverðbólgan hélt áfram.
Að forðast hrun
Framangreindur vítahringur var
augljóslega til staðar á tímabil-
inu 1970–1990 og að nokkru leyti
einnig fyrir þann tíma. Árið 1990
var gripið til nauðsynlegra en rót-
tækra aðgerða til að stöðva þessa
þróun. Þetta var gert aðallega með
tvennum hætti. Annars vegar voru
gerðir kjarasamningar á almenn-
um vinnumarkaði sem voru til þess
fallnir að ná tökum á verðbólgunni.
Hins vegar komu fiskveiðistjórn-
unarlög til framkvæmda 1. janúar
1991 sem áttu að stuðla að virkari
fiskvernd og aðlaga afkastagetu
fiskiskipastólsins að afraksturs-
getu nytjastofna. Á tíunda áratug
síðustu aldar var þessum skipu-
lagsbreytingum fylgt eftir og
þannig var styrkari stoðum rennt
undir atvinnulífið á Íslandi. Þetta
stuðlaði m.a. að því að um aldamót-
in stóð efnahagslíf Íslendinga að
mestu leyti í blóma, hið opinbera
skuldaði lítið, atvinnuleysi var
takmarkað og nýjar atvinnugrein-
ar voru að spretta úr grasi. Það er
hins vegar augljóst nú að á árun-
um sem eftir komu var illa spilað
úr þessari góðu stöðu.
Uppgjör við fortíðina
Nú á tímum uppgjörs mættu álits-
gjafar taka sig til og reyna að
skilja betur þá þræði sem haldið
hafa íslensku samfélaginu gang-
andi um margra áratuga skeið. Sé
það gert kemur í ljós að Ísland var
veiðimannasamfélag sem um langt
skeið var fjármagnað með ofveiði
og þeirri tiltrú að sjávarútveg-
ur sem rekinn væri á núlli gæti
haldið uppi atvinnustigi úti um
allt land. Þessu þurfti að breyta
ellegar blasti við hrun.
Þær aðgerðir sem gripið hefur
verið til við stjórn fiskveiða sl. tvo
áratugi hafa verið sársaukafullar
fyrir marga – en hefðum við vilj-
að að ekkert hefði verið gert, rétt
eins og árin fyrir efnahagshrunið
í október 2008?
Norræna ofveiðisamfélagið
Sjávarútvegsmál
Helgi Áss
Grétarsson
sérfræðingur við
Lagastofnun HÍ
Hverfavefir
Hanna Birna
Kristjánsdóttir
borgarstjóri
MEXT
Styrkir til náms í Japan fyrir árið 2011
MEXT (Mennta- og menningarmálaráðuneyti Japans)
býður íslenskum ríkisborgurum að þiggja styrki til náms
í Japan. Um er að ræða þrjá mismunandi styrki. Styrkirnir
fela í sér fl ugfargjöld fram og til baka, skólagjöld og
mánaðarlegan framfærslustyrk. (Framfærslustyrkur er
breytilegur eftir því um hvaða styrk er að ræða.)
1. Styrkur til framhaldsnáms á háskólastigi
(rannsóknarnám til Meistara- og PhD gr.)
2. Styrkur til grunnnáms á háskólastigi.
3. Styrkur til iðntæknináms (að loknum framhaldsskóla).
Umsækjendur verða að vera að vel á sig komnir, líkam-
lega og andlega, auk þess að hafa til að bera áhuga á
að læra japönsku. Ætlast er til þess að styrkþegar verði
komnir til Japans milli 1. og 7. apríl 2011. (Styrkþegar á
leið í rannsóknarnám verða að vera komnir til Japans
innan tveggja vikna frá því að viðkomandi háskóli hefur
kennslu á önninni.)
Umsjón með forvali verður í höndum Sendiráðs Japans
á Íslandi. Meðmælum með hæfum umsækjendum
verður komið til Menntamálaráðuneytis Japans, þar sem
umsóknir verða endanlega samþykktar.
Frekari upplýsingar, leiðarvísi með umsókn og eyðublöð
má nálgast á slóðina: http://www.studyjapan.go.jp/en/
toj/toj0307e.html#1
Umsóknum skyldi skilað til Sendiráðs Japans eigi síðar
en föstudaginn 25. júní 2010.
Umsóknir sem berast seint eða eru ófullkláraðar, virka
neikvætt á stöðu umsækjenda.
Allir umsækjendur sem teljast hæfi r verða boðaðir til
skrifl egra prófa auk viðtals í Sendiráði Japans í júlí 2010.
Frekari upplýsingar eru veittar hjá:
Sendiráði Japans á Íslandi
Sími: 510-8600
Fax: 510-8605
Tölvupóstur: japan@itn.is
Fagor hitakútar
TB
W
A
\P
IP
A
R
•
S
ÍA
•
1
00
81
4
45.900
49.900
56.900
65.900
73.900
82.900
97.900
A
u
g
lý
si
n
g
a
sí
m
i
Allt sem þú þarft…