Fréttablaðið - 30.04.2010, Blaðsíða 27
FÖSTUDAGUR 30. apríl 2010 3
Hér er miðað við að fólk noti eftir-
lætis pitsubotnsuppskriftina sína,
hvort sem það er fínn botn, heil-
hveiti eða spelt, og leiki sér svo
með áleggin. Ágætis deiguppskrift
að klassískum 16“ pitsubotni gæti
verið 5 dl hveiti, 2 dl volgt vatn, 2
tsk. ger, 1 tsk. salt og msk. ólífu-
olía. Gerið er þá leyst upp í vatn-
inu, blandað saman við hveiti, salt
og olíu og hnoðað. Því næst látið
lyfta sér í hálftíma og þá flatt út.
juliam@frettabladid.is
Epli, egg og beikon
Upphaflega var pitsa einfaldlega brauð sem afgöngum var sópað ofan á. Því ætti enginn í raun að vera
hræddur við að leika sér með pitsuálegg og prófa eitthvað nýtt. Eins og þessar óvenjulegu samsetningar.
Egg og beikon og klettasalat er sérstaklega ljúffengt áleggsblanda á pítsu.
Eplapitsa með valhnetum er æðisleg
hvort sem er með kaffinu eða á kvöldin.
EPLAPITSA
með valhnetum og rauðlauk.
1 msk. jómfrúarolía
1 stór rauðlaukur, þunnt
sneiddur
2 msk. balsamíkedik
1½ bolli rifinn cheddar-
ostur
1 bollli mildur ostur að
eigin vali
1 stórt grænt epli, kjarn-
hreinsað og þunnt sneitt
½ bolli muldar valhnetur
Hitið olíu á pönnu og
steikið rauðlaukinn
við meðalhita, hellið
balsamikediki ofan á.
Lækkið hitann og látið
malla í 15 mínútur.
Kælið. Stráið 2/3 hluta
af ostinum yfir útflatt
pitsudeigið og hellið
svo laukblöndunni ofan
á. Raðið eplunum jafnt
ofan á alla pitsuna,
setjið svo afganginn af
ostinum aftur yfir og
valhneturnar að lokum.
Bakið í 10 mínútur við
190° Celcíus.
MORGUNVERÐARPITSA
með beikoni, eggi og klettasalti.
12 sneiðar beikon
2 msk. tómat-púrra
100 ml tómatar í dós,
ásamt safa
20 sérrítómatar, skornir í
tvennt
1½ msk. ólífuolía
4 egg
salt og pipar eftir smekk
1 poki klettasalat
Blandið saman í mat-
vinnsluvél tómatpúrru,
tómata í dós, salti og
pipar. Hellið því yfir
útflatt pitsudegið. Pensl-
ið tómatana með ólífu-
olíu og raðið beikoninu
og tómötunum ofan á
pitsuna, geymið pláss
í miðjunni fyrir eggin.
Bakið í 10 mínútur við
190° Celcíus. Spælið
fjögur egg á pönnunni.
Aðskiljið hvítuna frá
rauðunni með því að
skera hring í kringum
rauðuna og setjið rauð-
una í miðju pitsunnar.
Bakið pitsuna áfram
í fjórar mínútur. Takið
pitsuna út og raðið
klettasalati ofan á.
Pitsugerð getur stuðlað að
gæðastund sem foreldrar og
börn geta notið saman.
Börnin elska pitsu og ekki
finnst þeim síður skemmtilegt
að fá að taka þátt í matargerð.
Því er tilvalið að leyfa þeim
að vera með í pitsugerðinni á
heimilinu.
Ef deiggerðin vex fólki í
augum, er lítið mál að kaupa
tilbúið frosið deig í verslunum
eða fara á pitsustað og kaupa
deigklump.
Síðan er sett svunta á barnið,
hveiti dreift á borðið og barn-
inu leyft að hnoða deigið og
fletja það út. Síðan fær það að
velja sér álegg, dreifa úr sós-
unni og raða á pitsuna því sem
því þykir best.
Uppáhald
barnanna
Börnin geta leikið sér við að raða
álegginu á pitsuna á skemmtilegan
hátt. NORDICPHOTOS/GETTY