Fréttablaðið - 30.04.2010, Blaðsíða 12
12 30. apríl 2010 FÖSTUDAGUR
UMFERÐ Bifhjólaslysum sem rekja
má til þess að bifhjóli er ekið inn í
hlið bíls fækkaði umtalsvert árið
2009 miðað við árið á undan. Árið
2009 voru þrettán slík slys á land-
inu en 29 árið á undan, árið 2007
voru þau nítján.
Fækkunina má að mati Umferð-
arstofu, lögreglunnar og forsvars-
manna bifhjólaklúbba að stórum
hluta rekja til auglýsingaherferð-
ar Umferðarstofu á árunum 2008
til 2009: „Fyrirgefðu ég sá þig
ekki.“
Auglýsingarnar voru í sjón-
varpi og útvarpi og í þeim voru
bílstjórar hvattir til að gá tvisv-
ar til hliðar og aðgæta hvort þeir
sæju mótorhjól áður en ekið var
yfir gatnamót. Lögð var áhersla
á þetta í kjölfar töluverðrar aukn-
ingar slíkra slysa árin á undan.
„Brýna þurfti fyrir bílstjórum að
það væri mun erfiðara að greina
hraða bifhjóla og fjarlægð í sam-
anburði við stærri ökutæki,“ segir
í tilkynningu Umferðarstofu.
Á fundi í síðustu viku kom fram
að auk herferðarinnar hafi aðrir
þættir einnig stuðlað að fækkun
slysanna. Til dæmis aukin vit-
und ökumanna um fjölda bifhjóla
í umferðinni en þeim hefur fjölgað
mikið undanfarin ár.
Alls voru 89 bifhjólaslys í fyrra,
107 árið áður og 90 árið 2007.
Fækkunin var einkum í flokknum
er herferðin náði til. - sbt
Fjöldi óhappa
120
100
80
60
40
20
0
20
02
20
03
20
04
20
05
20
06
20
07
20
08
20
09
Hliðarákeyrsla
Samtals
Herferð gegn bifhjólaslysum er talin hafa borið allnokkurn árangur:
Bifhjólaslysum fækkaði í fyrra
FRÉTTASKÝRING:
Hversu víðtæk er ráðherraábyrgð?
Refsiheimildir vegna vanrækslu
ráðherra á starfsskyldum ná bæði
yfir ráðleggingar og fortölur sem
ráðherra beitir vegna máls sem
annar ráðherra ber ábyrgð á og til
þess sem fram fer á ríkisstjórnar-
fundum þar sem ráðherrar skipt-
ast á skoðunum og ráða ráðum.
Þetta má lesa í sextánda kafla
skýrslu rannsóknarnefndar Alþing-
is. Nefndin segir refsiheimildir
vegna vanrækslu á starfsskyldum
ráðherra víðtækar. Í fundargerð-
um þurfi að vera skýrt hvaða ráð-
herrar hafi „með ráðum, fortölum,
atkvæði eða á annan hátt stuðlað
að hverri þeirri athöfn sem tekin
er fyrir á ráðherrafundi“.
Þá kemur fram að stjórnarskráin
veiti oddvitum ríkisstjórnarflokka
ákveðið svigrúm til að taka á sínar
herðar pólitíska stefnumótun ríkis-
stjórnar. Mál hafi þróast mjög í þá
átt undanfarin ár. Sá ráðherra sem
ber einn ábyrgð á hverri stjórnar-
athöfn þurfi þó sjálfur að taka þá
ákvörðun og fá að koma sínum eigin
viðhorfum að við málsmeðferðina.
Einn undirkafli umfjöllunar rann-
sóknarnefndar um eftirlit með
fjármálamarkaði er þar helgaður
frumkvæðisskyldu ráðherra og ráð-
herraábyrgð. Þar segir að ráðherra
eigi sjálfur að tryggja sér aðgang
að upplýsingum um mikilvægustu
málefni síns ráðuneytis. Hann beri
sjálfur ábyrgð á að samskipti við
undirstofnanir séu þannig „að hægt
sé hafa eftirlit með starfrækslu
þeirra“. Ráðherra geti borið skylda
til að koma starfsemi stofnunar í
lögmætt horf ef skapast hefur „við-
varandi, ólögmætt ástand“.
Eins og fram er komið telur
nefndin að Björgvin G. Sigurðsson
viðskiptaráðherra hafi vanrækt
starfsskyldur í aðdraganda banka-
hrunsins. Björgvin segist ekki hafa
fengið upplýsingar um aðgerðir
sem kölluðu á athygli stjórnvalda
í aðdraganda hrunsins, hvorki frá
öðrum ráðherrum, Seðlabanka, né
eigin aðstoðarmanni. Um leið og
rannsóknarnefndin leggur mikla
áherslu á frumkvæðisskyldu,
eftirlitsskyldu og stjórnunarskyldu
ráðherra segir hún að í sumum til-
vikum sé því aðeins hægt að krefj-
ast frumkvæðis að ráðherrann hafi
fengið tilteknar upplýsingar.
Hlutverk nefndarinnar var að
rannsaka en ekki dæma. Nú hefur
þingmannanefnd næstu skref til
meðferðar, þar á meðal spurning-
una um hvort Landsdómur á að
fjalla um hugsanlega vanrækslu
ráðherra á starfsskyldum og ákveða
hvort skilyrði séu fyrir þeim hinum
víðtæku refsiheimildum ráðherra-
ábyrgðarlaganna.
peturg@frettabladid.is
Víðtækar refsiheim-
ildir vegna ráðherra
Skýrsla rannsóknarnefndar leggur áherslu á frumkvæðisskyldu ráðherra sem
sjálfir eigi að afla upplýsinga og grípa til aðgerða ef stofnanir bregðast. Ráð og
fortölur eins ráðherra gegn öðrum geta varðað ábyrgð.
EFTIRLIT „Valdi fylgir ábyrgð og því er í 14. gr. stjórnarskrárinnar mælt svo fyrir að ráðherrar beri ábyrgð á stjórnarframkvæmdum,“
segir í skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETURGöngutúr
með Hjálmari
Hittumst við Hólavallakirkjugarð við Ljósvallagötu.
Göngunni lýkur með kaffi sopa í gamla Ellingsen húsinu
og spjalli um gott borgar skipulag, arkitektúr,
göngustíga og fl eira áhugavert. Góð upp-
hitun fyrir 1. maígöngu síðar um daginn!
Fróðlegt rölt um gamla Vestur-
bæinn milli 10 og 12 á laugardag
Allir velkomnir í góðan göngutúr!
Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is
– Afslátt eða gott verð?
Kletthálsi Rvk
Akureyri
Suðurnesjum
Húsavík
Stigar og tröppur
til allra verka
EFNAHAGSMÁL Í kjölfar útboðs á
íbúðabréfum hefur stjórn Íbúða-
lánasjóðs ákveðið að útlánavextir
sjóðsins verði óbreyttir.
Útlánavextir íbúðalána með
uppgreiðsluákvæði verða áfram
4,5 prósent, en 5,0 prósent án
ákvæðis. Ákvörðun Íbúðalána-
sjóðs byggist á ávöxtunarkröfu í
útboði íbúðabréfa 27. apríl ásamt
vegnum fjármagnskostnaði upp-
greiðslna ÍLS-veðbréfa. „Vegnir
vextir í útboðinu og uppgreiddra
ÍLS-bréfa eru 3,85 prósent,“
segir í tilkynningu sjóðsins. - óká
Ákvörðun eftir kostnaðarmat:
Óbreyttir vextir
Íbúðalánasjóðs
IÐNAÐUR Magma Energy á Íslandi
hefur átt í óformlegum viðræðum
við sveitarstjórn Hrunamanna-
hrepps um rannsókn á virkjana-
kostum. Ásgeir Margeirsson, for-
stjóri Magma Energy á Íslandi,
staðfestir að viðræður hafi átt
sér stað. „Við erum einfaldlega
að skoða hvar geta legið tækifæri
til skynsamlegrar orkunýtingar í
náinni framtíð,“ segir hann.
Sunnlenska fréttablaðið greindi
nýverið frá áhuga félagsins og
hafði eftir Ragnari Magnússyni,
oddvita Hrunamannahrepps, að
málið væri á
„algjöru byrj-
unarstigi“. Fyr-
irtækið bætist
í hóp fleiri sem
áhuga hafi á
svæðinu nærri
Kerlingarfjöll-
um.
Ásgeir segir
gott samstarf
við sveitarfélag-
ið mikilvægt. „Það rekur hitaveitu
og er með rannsóknarleyfi,“ segir
hann, en á þó síður von á að ákvarð-
anir verði teknar í flýti, enda kosn-
ingar í vor. Þá séu menn meðvit-
aðir um varnagla í rammaáætlun
um nýtingu orkusvæða hvað varði
óröskuð svæði á borð við Kerling-
arfjöll. HS Orka, þar sem Magma
Energy er hluthafi, sé hins vegar,
eftir nýafstaðna hlutafjáraukn-
ingu, í góðri stöðu til þess að ráð-
ast í stór verkefni. „Það er jarðhiti
í Kerlingarfjöllum, en svo er líka
jarðhiti niðri á Flúðum og spurn-
ing hvað er að finna þar á milli.
Það vita menn ekki nema rannsaka
það,“ segir Ásgeir. - óká
ÁSGEIR
MARGEIRSSON
Fleiri fyrirtæki hafa sýnt áhuga á að rannsaka virkjanakosti í Hrunamannahreppi:
Magma horfir til Kerlingarfjalla
KADETTAR Kadettar á kólumbísku
skólafreigátunni Gloríu hafa stillt sér upp
á reiða þegar skipið nálgast höfn í Perú.
NORDICPHOTOS/AFP