Fréttablaðið - 30.04.2010, Page 26
PITSUR PITSUDAGUR er haldinn hátíðlegur í Bandaríkjunum á hverju ári. Dagurinn er í október og hefur verið haldinn hátíðlegur frá árinu 1987.
Egill segir lítið mál að laga sig að því að vera án eldhúss. Hann ætlar sér þó að smíða innréttingu en á eftir að finna tímann í það.
Á meðan eru pitsur oft á boðstólum á heimilinu enda vinsælar meðal barnanna. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Pitsuofninn hefur komið að góðum notum en hann má einnig nota til að baka kökur
og elda fiskrétti. Sveinbjörn sonur Egils fylgist með pabba sínum við pitsugerðina.
Egill Ingibergsson, tæknistjóri
leiklistardeildar Listaháskóla
Íslands, notar pitsuofninn sinn
meira en margur annar enda býr
hann í eldhúslausu húsi.
„Við erum að gera upp húsið og
erum ekki búin að setja upp eld-
húsinnréttingu,“ segir Egill sem
hefur búið við þær aðstæður
síðan í október á síðasta ári. „Það
er furðulítið mál og maður dett-
ur alveg inn í þetta,“ segir Egill
en hann og fjölskyldan hafa lagað
sig vel að aðstæðum. „Við erum
ekki einu sinni með eldhúsvask og
vöskum upp í baðvaskinum á neðri
hæðinni en það venst líka vel og
krakkarnir kippa sér ekkert upp
við þetta,“ segir Egill.
Egill er með tvær lausar hell-
ur en auk þess hefur pitsuofninn
komið að mjög góðum notum og
er jafnvel notaður undir annað en
pitsugerð. „Við höfum bæði eldað
í honum mat og bakað brauð og
kökur en ef hitinn er rétt stilltur
er það lítið mál.“ Egill setur mat-
inn í álform en þannig er hægt að
gera ýmsar kúnstir. „Eldamennsk-
an í honum er auðvitað einhverjum
takmörkunum háð en við höfum
gert fiskrétti og döðlukökur svo
dæmi séu nefnd. Ofninn er þó
mestmegnis notaður undir pitsur
og hafa hinar ýmsu áleggstegundir
ratað á þær.“ vera@frettabladid.is
Pitsuofninn í stöðugri notkun á heimilinu
Deig
1½ tsk. þurrger
2 tsk. hrásykur
3 dl baðvolgt vatn
2-3 msk. ólívuolía
1 tsk. salt
hveiti eftir þörfum
Álegg
Beikon
Grænar ólívur
Heill grænn pipar
Rauð paprika
Vorlaukur
Óreganó
Ostur
Hrærið sykrinum út í
vatnið og stráið gerinu yfir.
Látið standa í 10-15 mínútur.
Bætið restinni út í og látið hefast
í 30-40 mínútur. Fletjið deigið
út frekar þunnt. Raðið álegginu
ofan á og bakið í pitsuofni.
PITSA AÐ HÆTTI EGILS
með beikoni, ólívum og vorlauk
Egill Ingibergsson og fjölskylda búa tímabundið í eldhúslausu húsi. Þau hafa lagað sig vel að aðstæðum
og hefur pitsuofninn komið að góðum notum. Í honum eru búnar til pitsur og jafnvel fiskréttir og kökur.
Hitið grillið og hafi ð það meðalheitt. Grillið hálfa papriku á meðan verið er að steikja
kjúklinginn. Steikið kjúklingabitana upp úr sesamolíu, piprið þá aðeins með svörtum
pipar og ögn af salti. Bætið saman við 1 msk. af barbique-sósu á pönnuna og steikið
þar til kjúklingurinn er fullsteiktur í gegn. Blandið saman 3 msk. af barbique-sósu og
2 msk. af pitsusósu Takið deigið úr kæli og berið smá olíu með pensli á það og setjið
á grillið og fjarlægið bökunarpappírinn. Berið einnig smá olíu á hliðina sem snýr upp
á grillinu. Þegar byrja að myndast loftbólur á deiginu athugið þá hvort deigið sé orðið
ljósbrúnt og vel grillað, losið það og snúið deiginu við (gott að nota spaða).
Lækkið hitann á grillinu. Smyrjið blöndunni af barbique-sósu og pitsusósunni á deigið
og dreifi ð ostinum yfi r það ásamt kjúklingabitum, rauðlauk og jalapenó. Hafi ð grillið
lokað svo osturinn nái að bráðna vel en fylgist jafnframt með stuttu millibili að botninn
brenni ekki, getur stundum þurft að skrúfa fyrir gasið á þessum tímapunkti.
Skerið paprikuna í strimla. Takið pitsuna af grillinu og dreifi ð kóriander og papriku yfi r
pitsuna. Bragðast vel með með rauðvíninu Blauer Portugiser frá Fischer.
með barbeque-kjúklingi
Sjá fl eiri uppskriftir á www.godgaeti.is
og á www.facebook.com/godgaeti
1 Wewalka XXL pitsudeig
2 kjúklingabringur skornar í litla bita
1 msk. matarolía
1 msk. sesamolía
2. msk. pitsusósa
4 msk. barbequesósa
½ rauðlaukur skorinn í þunna hringi
1 poki rifi nn pitsuostur
10-12 sneiðar jalapenó úr krukku
½ stk. paprika, smátt skorin í mjóar lengjur
Svartur pipar og salt
Kóriander-búnt
Aðferð
Hráefni
GRILLUÐ PITSA PIZZAOFN
HAFNARGÖTU 90 REYKJANESBÆ SELFOSSI HÚSAVÍK S: 464 1600
AKUREYRI REYKJAVÍK S: 569 1500
Ariete 903
VERÐ
FRÁBÆRT VERÐ
17.995
„Pizzan verður
eins og eldbökuð!“