Fréttablaðið - 30.04.2010, Page 64
32 30. apríl 2010 FÖSTUDAGUR
menning@frettabladid.is
Ath. á morgun kl. 14
Á morgun milli 14 og 16 ætlar Jóna Þor-
valdsdóttir að gefa gestum og gangandi
innsýn í töfraheim sígildra ljósmynd-
unaraðferða í síðasta sinn en sýningu
hennar í Ljósmyndasafni Reykjavíkur,
SKYNJANIR, lýkur um aðra helgi.
Þess má einnig geta að í ágúst mun
Ljósmyndasafn Reykjavíkur vera með
námskeið í bromoil-tækni sem er ein
af aðferðunum sem Jóna notar en
einn helsti sérfræðingur tækninnar
í dag, David W. Lewis, mun kenna
námskeiðið.
> Ekki missa af
Á morgun lýkur þremur
sýningum í Nýlistasafninu:
Samræði við safneign, sýn-
ingu á verkum úr safneign
Nýlistasafnsins, sem valin
eru af stjórnarmeðlimum
safnsins; viðbótarsýningunni
Hrókering, sem valin er af sjö
myndlistarmönnum af yngstu
kynslóðinni, og sýningu félags-
manns mánaðarins, Söru
Björnsdóttur, en Sara hefur
gert staðbundið verk á veggi
og loft í safnbyggingunni við
Skúlagötu 28.
Yfirlitssýning Listasafns
Reykjavíkur á stiklum úr sögu
íslenskra vatnslitamálara
hefur staðið yfir á Kjarvals-
stöðum undanfarnar vikur.
Aðalsteinn Ingólfsson valdi
verkin á sýninguna sem gefur
einstaka yfirsýn yfir þann þátt
íslenskrar málaralistar sem
fer oft lágt en er við nánari
kynni, sem sýningin leiðir
vel í ljós, ótrúlega fjölbreytt
efnistök listamanna okkar
á hinu vandmeðfarna formi
þar sem vatn, litur og pappír takast á og skila oft
yfirskilvitlegum áhrifum.
Sýningunni fylgdi vegleg útgáfa á vegum
safnsins og bókaútgáfunnar Opnu á bók þar sem
Aðalsteinn gerir grein fyrir
sögu vatnslitunar hér á landi
frá 1880 til 2009. Sextíu
listamenn koma þar við sögu
og eru gefin dæmi um verk
þeirra en Hafþór Yngvarsson
ritar formálsorð. Leiðir þessi
sýnisbók í ljós afar fjölbreytt
efnistök og viðfangsefni frá
þessu 130 ára tímabili.
Á sunnudag lýkur sýning-
unni á Kjarvalsstöðum en
hún er í raun fyrsta tilraun
sem gerð hefur verið til
skráningar á sögu vatnslitanna í íslenskri myndlist.
Á sýningunni eru rúmlega 140 verk.
Listasafn Reykjavíkur á Kjarvalsstöðum er opið
daglega frá 10 til 17.
Litbrigði vatnsins glitra enn
Á morgun verður vorhátíð
í Sjónlistamiðstöðinni á
Korpúlfsstöðum þar sem
tugir myndlistarmanna
hafa haft aðstöðu um ára-
bil í skjóli Reykjavíkur-
borgar. Það eru fjörutíu
myndlistarmenn sem
hafa þar aðsetur og reka
Sjónlistamiðstöðina.
Í tilefni af vorhátíðinni verður
opnuð sérstök sýning á verkum
þeirra á hlöðuloftinu og á morg-
un verður þar í boði dagskrá með
fjölbreyttu efni auk þess sem
vinnustofur listamanna í húsinu
verða opnar upp á gátt.
Hópurinn sem hefur aðstöðu á
Korpúlfsstöðum er settur saman
af listamönnum úr ólíkum geir-
um myndlegrar sköpunar; málun,
grafík, leirlist, textíl, fatahönnun
og landslagsarkitektúr eiga þar
sína fulltrúa. Vinnustofurnar eru
leigðar út þrjú ár í senn, en Sam-
band íslenskra myndlistarmanna,
SÍM, leigir aðstöðuna af Reykja-
víkurborg og annast endurleigu til
áhugasamra, en ásókn í aðstöðuna
er mikil og ræður sérskipuð val-
nefnd hverjir fá aðstöðu þar. Þá
eru þar gestavinnustofur og íbúð
fyrir erlenda listamenn.
Hópurinn á Korpúlfsstöðum er
vanur því að fá gesti til að skoða
hvað er þar á seyði. Fyrsta laugar-
dag hvers mánaðar er þar opið hús
og tvisvar á ári er efnt til samsýn-
ingar á hlöðuloftinu sem þau segja
stærsta og óvenjulegasta sýning-
arsal á landinu. Að þessu sinni er
yfirskrift sýningarinnar Birta.
Á morgun mun hópur salsa-
dansara mæta á svæðið, Vox Fem-
inae kemur fram undir stjórn
Margrétar Pálmadóttur og Einar
Már Guðmundsson les upp.
Veitingasala er starfandi í hús-
inu á morgun og leikur örugglega
mörgum forvitni á hvernig innan-
stokks er í þessu forna setri Thors
Jensen sem var ein stærsta til-
raun til að koma á fót stórbúi hér á
landi í þann tíma þegar flest býli,
jafnvel forn höfuðból, voru smá-
býli í húsakosti.
Hópurinn stendur fyrir vefsíðu
þar sem skoða má hvaða lista-
menn eru nú um stundir með stað-
festu í gamla húsinu á Korpúlfs-
stöðum: www.korpart.is.
Allir eru velkomnir á morgun
til hátíðarhaldanna.
pbb@frettabladid.is
Opið hús á Korpúlfsstöðum
Á morgun verður kynnt um úrslit í hönnunarsamkeppni
í anda Ásmundar Sveinssonar í Listasafni Reykjavíkur
– Ásmundarsafni. Það er dóttir listamannsins, Ásdís
Ásmundsdóttir, sem mun afhenda fyrstu verðlaun að
upphæð kr. 500.000 en fimmtán bestu hugmyndirnar í
samkeppninni verða einnig til sýnis í safninu.
Á sama tíma verður opnuð sýningin Ég kýs blóm-
legar konur … Konur í verkum Ásmundar Sveinsson-
ar, þar sem sjónum er beint að konum og kvenímynd-
inni í verkum Ásmundar. Þá hefur hluti af vinnustofu
Ásmundar verið endurgerður, sem gerir gestum kleift
að skyggnast inn í líf og starf myndhöggvarans.
Alls bárust 68 tillögur í hönnunarsamkeppninni
um Ásmund Sveinsson en að henni standa verslunin
Kraum, Listasafn Reykjavíkur og Hönnunarmiðstöð
Íslands. Óskað var eftir tillögum að nytjahlut sem end-
urspegla skyldi hugarheim og verk myndhöggvarans
og var keppnin öllum opin.
Verðlaunahafi hlýtur verðlaun að verðmæti 500.000
kr. sem Kraum, Listasafn Reykjavíkur, Samtök
atvinnulífsins og Samtök iðnaðarins leggja til, auk
þess sem hluturinn verður seldur í verslunum Kraums
í Aðalstræti og á Kjarvalsstöðum og í safnverslunum
Listasafns Reykjavíkur í Hafnarhúsi og Ásmundar-
safni. Einnig má gera ráð fyrir því að fleiri munir
sem bárust í samkeppnina verði valdir til sölu á næstu
mánuðum.
Að mati dómnefndar fela þær fimmtán hugmyndir
sem sýndar verða í Ásmundarsafni allar í sér skemmti-
legar og raunhæfar hugmyndir að vöru með vísun í
form- og hugarheim Ásmundar Sveinssonar. Þær end-
urspegla ólík tímabil í listsköpun Ásmundar og fela
jafnframt í sér afar vel útfærðar lausnir á hugmynd-
um sem eru í takt við ákveðna meginstrauma, en hana
skipa Halla Bogadóttir f.h. Kraum, formaður, Soffía
Karlsdóttir f.h. Listasafns Reykjavíkur, Halla Helga-
dóttir f.h. Hönnunarmiðstöðvar Íslands, Pétur H.
Ármannsson arkitekt, Óðinn Bolli Björgvinsson, vöru-
hönnuður og Ingirafn Steinarsson f.h. SÍM.
Sýningin sem opnuð verður í safninu á morgun, „Ég
kýs blómlegar konur“, spannar verk frá öllum ferli
meistarans. Stór hluti af verkum Ásmundar fjallar um
konur;allt frá ástríkum mæðrum til stritandi vinnu-
kvenna eða frá viðkvæmum stúlkum til hamslausra
tröllkvenna. Titill sýningarinnar er tilvitnun í Ásmund
sjálfan í viðtali sem tekið var við hann í Þjóðviljanum
sumarið 1961 undir yfirskriftinni „Vinnan er lífið – og
fegurðin“.
Verkin á sýningunni lýsa sameiginlegum tilfinning-
um sem birtast sem táknsögur fyrirbæra eða skáld-
skapar. Þau spanna allan feril Ásmundar og sýna allt
frá fyrstu raunsæisverkum hans til íburðarmikilla
framsetninga hans á kvenkynsímyndunum. Sýningar-
stjóri er Yean Fee Quay. Sýningin stendur til 17. apríl
árið 2011.
Í píramída Ásmundarsafns hefur verið komið upp
endurgerð af vinnustofu Ásmundar þar sem ljósi er
varpað á vinnuaðstöðu hans í Sigtúninu. Einnig hefur
verið sett upp lesstofa þar sem hægt er að fræðast um
líf og list Ásmundar í máli og myndum. - pbb
Gripur í anda Ásmundar
MYNDLIST Verk og vinna Ásmundar Sveinssonar eiga að
endurspeglast í nytjahlut sem verður verðlaunaður á morgun í
Ásmundarsafni. MYND/FRÉTTABLAÐIÐ
Ein af ungu grúppunum sem starfa
hér á landi úr klassíska geiranum
er Ísafoldarkvartettinn sem er
skipaður þeim Elfu Rún Kristins-
dóttur, Helgu Þóru Björgvinsdótt-
ur, Þórarni M. Baldurssyni og Mar-
gréti Árnadóttur. Hann hefur leikið
saman frá stofnun Kammersveit-
arinnar Ísafoldar árið 2003 og er
sprottinn úr því frjósama umhverfi
og samstarfi sem kammersveit-
in hefur reynst. Kammersveitin
Ísafold hlaut Íslensku tónlistar-
verðlaunin árið 2008 sem flytjandi
ársins í flokki sígildrar og sam-
tímatónlistar og sama ár var hún
valin Tónlistarhópur Reykjavíkur-
borgar.
Ísafoldarkvartettinn hefur leik-
ið strengjakvartetta á tónleik-
um Ísafoldar en ætlar nú í fyrsta
sinn að halda eigin tónleika með
strengjakvartettum eftir Joseph
Haydn, Maurice Ravel og Johann-
es Brahms. Þeir verða í Salnum,
Kópavogi á morgun kl. 17. Öll eru
þau þrælmenntuð frá unga aldri:
Elfa Rún Kristinsdóttir fiðlu-
leikari er Akureyringur og fór
að læra fjögurra ára. Hún hlaut
fyrstu verðlaun í Johann Sebasti-
an Bach-fiðlukeppninni í Leipzig,
einnig hvatningarverðlaun Evr-
ópska menningarsjóðsins og var
valin bjartasta vonin á íslensku
tónlistarverðlaununum, allt árið
2006. Elfa Rún hefur leikið einleik
bæði heima og erlendis með ýmsum
hljómsveitum, meðal annars
Sinfóníuhljómsveit Íslands.
Helga Þóra Björgvinsdóttir
fiðluleikari stundaði nám við Tón-
menntaskóla Reykjavíkur og síðar
við Tónlistarskólann í Reykja-
vík. Haustið 2004 hóf Helga Þóra
nám við Listaháskólann í Berlín,
þreytti Helga Þóra Diplom-próf
2007 og hlaut hæstu einkunn. Sem
einleikari hefur Helga Þóra leik-
ið fiðlukonsert Johannes Brahms,
tvær rapsódíur fyrir fiðlu og hljóm-
sveit eftir Béla Bartók, og fiðlu-
konsert nr. 2 eftir Bohuslav Mart-
inu. Um þessar mundir er Helga
Þóra búsett í París.
Þórarinn Már Baldursson ólst
upp í Aðaldal. Hann stundaði nám
við Tónlistarskólann í Reykja-
vík og útskrifaðist 2002. Sama
ár hlaut hann fasta stöðu við
Sinfóníuhljómsveit Íslands.
Margrét Árnadóttir lauk ein-
leikaraprófi frá Tónlistarskólan-
um í Reykjavík 2000, stundaði
framhaldsnám við Juilliard og lauk
þaðan meistaragráðu 2006. Það
sama ár voru henni veitt menning-
arverðlaun The American-Scandin-
avian Society. Margrét hefur komið
fram á einleiks- og kammertónleik-
um í Bandaríkjunum, Kína og hér
heima; þar á meðal á Tíbrá, Kamm-
ermúsíkklúbbnum, Kristal og sum-
artónleikaröð Listasafns Sigur-
jóns og starfar nú sem sellóleikari
í Sinfóníuhljómsveit Íslands. - pbb
Ísafoldarkvartett
með tónleika
TÓNLIST Ísafoldarkvartettinn heldur sína
fyrstu tónleika á morgun í Salnum.
MYND/SALURINN
MYNDLIST Karólína Lárusdóttir, Lýsis-
skömmtum, 2008. Gallerí List.
MYNDLIST Opið hús á Korpúlfsstöðum á morgun þar sem tugir listamanna hafa
vinnustofur. Hér má sjá leirlistakonur að störfum. FRÉTTABLAÐIÐ / HÖRÐUR