Fréttablaðið - 30.04.2010, Page 74

Fréttablaðið - 30.04.2010, Page 74
42 30. apríl 2010 FÖSTUDAGUR sport@frettabladid.is > Nær Valur loks að svara fyrir sig? Úrslitarimma N1-deildar karla hefst í kvöld þegar Íslands- og bikarmeistarar Hauka taka á móti Valsmönnum. Það er vel við hæfi að þessi lið mætist í úrslitunum enda verið bestu lið tímabilsins og enduðu í fyrsta og öðru sæti deildarinnar. Þau mættust einnig í bikarúr- slitaleiknum og þar höfðu Haukar betur. Haukar hafa reyndar tak á Valsmönnum því þessi sömu lið mættust einnig í úrslitunum í fyrra og þá unnu Haukar. Að vinna Val er því að komast upp í vana hjá Haukum. Svo er spurning hvað gerist í kvöld en leikur liðanna á Ásvöllum hefst klukkan 20.00. Fáðu faglega ráðgjöf um val á hlaupaskóm og kynntu þér NIKE+ MEÐ ÖLLUM NIKE HLAUPASKÓM KÍKTU Í Í DAGBÍLDSHÖFÐA KAUPAUKI INTERSPORT N1 Deildin KARLAR Föstudagur Ásvellir Haukar - Valur 20:00 2009 - 2010 ÚRSLIT - LEIKUR 1 FÓTBOLTI Það varð endanlega ljóst í gærkvöld að Liverpool vinnur engan titil í ár en liðið féll úr leik í Evrópudeild UEFA gegn Atlet- ico Madrid í gær. Spænska liðið fer því í úrslit þar sem það mætir Fulham. Fyrri leik Liverpool og Atlet- ico á Spáni lyktaði með 1-0 sigri Madrid en Liverpool jafnaði þá stöðu mínútu fyrir hlé í gær með marki Alberto Aquilani. Meira var ekki skorað í venjulegum leiktíma og því varð að framlengja. Yossi Benayoun kom Liverpool í 2-0 á 95. mínútu en Diego For- lan skoraði útivallarmark fyrir Atletico sjö mínútum síðar og það mark dugði til þess að koma spænska liðinu í úrslit. Lokatölur 2-1. Fulham kláraði HSV í dramat- ískum leik á Craven Cottage. Fyrri leik liðanna í Þýskalandi lyktaði með markalausu jafntefli og HSV stóð með pálmann í höndunum er Mladen Petric kom þeim yfir á 22. mínútu. Það þýddi að Fulham varð að skora tvisvar og halda markinu hreinu. Afar illa gekk hjá Fulham að skora jöfnunarmarkið en Simon Davies braut ísinn 21 mínútu fyrir leikslok. Mark hans blés miklu lífi í leikmenn Fulham og aðeins sjö mínútum síðar skoraði Zoltan Gera annað mark enska liðsins.Það reynd- ist vera lokamark leiksins. - hbg Atletico Madrid og Fulham mætast í úrslitum Evrópudeildar UEFA: Vonbrigðatímabil Liverpool fullkomnað BANEITRAÐUR „Deadly“ Diego Forlan, fyrrum leikmaður Man. Utd, afgreiddi Liverpool í gær. NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES KÖRFUBOLTI Snæfell tryggði sér fyrsta Íslandsmeistaratitilinn í sögu félagsins með því að slátra Keflavíkurliðinu með 36 stiga sigri, 105-69, á þeirra eigin heima- velli. Það var sameinað átak frá öllu liðinu sem sá til þess að Kefl- víkingar voru aðeins áhorfendur af því þegar Hólmarar eignuðust sína fyrstu Íslandsmeistara. „Við höfðum engan áhuga á þessari sögu. Ég las Fréttablaðið í morgun og las spá fimm spekinga sem spáðu allir Keflavík sigri. Við vorum ekki að spá í þessum hlutum og ýttum þessu öllu til hliðar. Við vorum bara að spá í því af hverju við vorum komnir á þennan stað. Við fórum yfir það af hverju við værum komnir hingað og við sýndum það í leiknum,“ sagði Ingi Þór Steinþórsson, þjálfari Snæ- fells. „Við spiluðum skelfilega og þetta var bara grín. Þetta er mjög svekkjandi þar sem það komu svo margir að horfa á okkur. Við töp- uðum samt bara fyrir betra lið- inu,“ sagði Keflvíkingurinn Hörð- ur Axel Vilhjálmsson sem eins og fleiri var fjarri sínu besta. Það var bara einn maður sem mætti til leiks hjá liðinu í gær, Uruele Igbavboa, en Snæfellingar voru mættir allir sem einn. Snæfellingar gáfu tóninn strax í byrjun, komust í 7-0 og 20-5, hittu úr 11 af fyrstu 12 skotunum sínum og voru komnir 20 stigum yfir (27- 7) eftir aðeins rúmar 5 mínútna leik. Eftir það var ekkert annað inni í myndinni en að Snæfells- liðið ætlaði að endurskrifa körfu- boltasöguna og það með stæl. „Þetta var þvílík frammistaða og hjá öllu liðinu. Vörnin í byrj- un var klikkuð og það voru allir leikmenn á tánum,“ sagði Ingi Þór. „Þetta var ótrúlegt sætt. Við erum búnir að brjóta alveg svaka- lega íshellu. Við þurftum eitthvað sérstakt til að klára titilinn með því að fara erfiðustu leiðina sem hugsast gat,“ sagði Ingi Þór en ekkert lið hefur klárað titilinn eftir að hafa lent í 6. sæti í deild- inni. Það voru ekki einu metin sem féllu í Toyota-höllinni í gær því þetta var sögulegur dagur og þá sérstaklega fyrir kappa eins og Hlyn Bæringsson, Sigurð Þor- valdsson og Jón Ólaf Jónsson sem eru búnir að bíða eftir þessum titli lengur en flestir. ooj@frettabladid.is Eitthvað sérstakt þurfti til Öll sagan var á móti Snæfelli í oddaleiknum gegn Keflavík í gær en félagið tryggði sér sinn fyrsta Íslandsmeistaratitil með stæl. Ingi Þór Steinþórsson, þjálfari Snæfells, gerði liðið að tvöföldum m eisturum á sínu fyrsta ári. ÞRAUTAGANGAN Á ENDA Hlynur Bæringsson og félagar fögnuðu fyrsta Íslandsmeist- aratitli Snæfells með stæl í Keflavík í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL ÓTRÚLEGT ÁR Ingi Þór Steinþórsson vann báða stóru titlana á sínu fyrsta ári með Snæfelli og fékk flugferð að launum í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL INNILEGUR FÖGNUÐUR Emil Þór Jóhannsson og Sigurður Þorvaldsson faðma hér bikarinn inni í klefa eftir leik. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL Ef það var einhver sem átti það skilið að verða Íslands- meistari í Keflavík í gær þá var það Snæfellingurinn Hlyn- ur Bæringsson sem kórónaði frábært tímabil og magnaða úrslitakeppni með enn einum stórleiknum í Keflavík í gær. Hlynur var með 21 stig, 15 fráköst og 6 stoðsending- ar og fékk loksins að taka við þeim stóra. „Ég held að þetta hafi verið ljúfara fyrir mig að vinna þetta loksins heldur en fyrir nokkurn annan mann,” sagði Hlynur eftir leik. Liðinu mistókst að klára þetta heima en kom til Keflavíkur og rassskellti heimamenn. „Við ætluð- um okkur þetta bara of mikið í síðasta leik. Ég hefði ekki sofið fram á haust ef við hefðum tapað þessu í enn eitt skiptið. Þetta er ofboðslegur léttir. Mér líður eins og ég hafi verið með fimm tonn á bakinu en náð að losa mig við þau,” sagði Hlynur. „Það hefði enginn búist við að við myndum vinna Keflavík svona stórt og ég veit ekki hvernig við fórum að þessu, ég verð bara að viðurkenna það. Þetta hlýtur samt að vera erfiðasta leið sem lið hefur farið að titlinum,” sagði Hlynur. „Það kaldhæðnislega við þetta er að við urðum bara að vinna út af einni ástæðu. Ég var að kaupa mér hús í Stykkishólmi sem er á Silfurgötu. Ég gat ekki átt heima þar með fjögur silfur á bakinu þannig að ég varð bara að vinna þetta. Það myndi líta svo illa út að fá fjögur silfur í röð og búa á Silfurgötu. Ég hefði þurft að flytja,” sagði Hlynur En hvað reið baggamuninn? „Ingi og menn eins og Pálmi og Jeb Ivey komu okkur yfir síðasta þröskuld- inn. Þeir höfðu klárað þetta áður og höfðu ákveðna ró yfir sér,” sagði Hlynur. HLYNUR BÆRINGSSON, FYRIRLIÐI SNÆFELLS: LOKSINS ÍSLANDSMEISTARI EFTIR ÞRJÚ SILFUR OG LANGA BIÐ Hefði ekki sofið fram á haust hefðum við tapað aftur SIGURKOSS Snæfellingurinn Jón Ólafur Jónsson kyssir hér bikarinn eftirsótta í Keflavík í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.