Fréttablaðið


Fréttablaðið - 29.05.2010, Qupperneq 27

Fréttablaðið - 29.05.2010, Qupperneq 27
LAUGARDAGUR 29. maí 2010 27 sé ekki nógu akademískt, of litlar kröfur gerðar til nemenda og svo framvegis. Hvernig svararðu þeirri gagnrýni? Gagnrýnin byggir kannski fyrst og fremst á vanþekkingu á þeirri aðferðafræði sem er verið að beita og hinum hefðbundna ríg á milli skóla. Ég þekki líka Bifrestinga sem gagnrýna kennsluna og nám- skeiðin við Háskóla Íslands án þess kannski að þekkja þau og fyr- irkomulagið þar og lesa kannski ritgerð eftir einhvern sem var að útskrifast frá Háskóla Íslands og segja: Nær hann virkilega gráð- unni með þessa ritgerð? Þetta er bara hluti af þessum hefðbundna ríg. En ég vísa því algjörlega á bug að það séu ekki gerðar kröfur til nemenda á Bifröst, því það er svo sannarlega gert. ■ Háskólinn á Bifröst á rætur að rekja til Samvinnuskólans sem var stofnaður í Reykjavík árið 1918. Skólinn fluttist í Norðurárdal í Borgarfirði árið 1955 og hefur verið starfræktur þar síðan, sem Samvinnuháskólinn, Viðskipta-háskólinn á Bifröst og síðast Háskólinn á Bifröst. ■ Skólinn er sjálfseignarstofnun og er stýrt af fimm manna stjórn. Hollvinasamtök háskólans skipa einn, háskólaráð Háskól- ans á Bifröst einn og Samtök atvinnulífs- ins þrjá. ■ Alls nema nú um 1.300 manns árlega við Háskólann á Bifröst. Það er töluverð breyting frá því sem var fyrir einungis tólf árum, þegar um 120 manns voru þar við nám. Skóli með 92 ára söguí Reykjavík, Háskólans á Bifröst og Listaháskólans. Þær náðu ekki lengra að því sinni en þær voru hugsanlega fyrsta skrefið í þá átt í íslensku háskólasamfélagi. Ég hlakka bara til að koma mér inn í það. Ég er ekkert farinn að ræða af viti við rektora annarra háskóla en það mundi ekki stranda á okkur á Bifröst að taka þátt í einhverju samstarfi ef það væru uppi hug- myndir sem okkur litist vel á í þeim efnum. Hins vegar verður að taka það mjög skýrt fram að við myndum aldrei fallast á það að Háskólinn á Bifröst yrði útibú frá öðrum háskóla eða einhver útstöð sem væri nýtt í endurmenntunarhelg- ar eða eitthvað slíkt. Við teljum að hin 50 ára saga skólans á þeim stað sem hann er núna sýni fram á að það sé vel hægt að reka skóla á þessum stað, og að það sé í raun- inni skemmtilegt, skynsamlegt og að mörgu leyti hagkvæmt. Þú nefndir áðan ríkisstyrkina sem fylgja nemendum. Er eðlilegt að einkareknir háskólar njóti sömu ríkisstyrkja á hvern nemanda og ríkisháskólar, og geti síðan inn- heimt skólagjöld að auki? Væri ekki tilvalið fyrir ríkið að spara þar? Þetta er einmitt spurning sem maður heyrir oft, en svarið við henni er auðvitað bara jafnrétti nemenda. Peningarnir fara ekki í skólana heldur fylgja nemandan- um. Þeir fylgja þér sem íslenskum ríkisborgara, sem hefur val um að nema á mismunandi stöðum. Nú er til dæmis gott að vera með börn á Bifröst, leikskólinn er þarna við hliðina og samfélagið heldur utan um barnafólk og er því hliðhollt. Þessi nemandi á þess kannski ekki kost að vera í hefðbundnu námi við Háskóla Íslands og kýs að fara á Bifröst. Af hverju í veröldinni ætti ríkið að borga minna með honum en þeim sem getur, félagslegra aðstæðna sinna vegna, verið í námi í Háskóla Íslands? Þessi nemendi er svo tilbúinn til að leggja fram auka- lega peninga úr sínum eigin vasa til að njóta þessarar þjónustu. Ég spyr miklu frekar: Af hverju fær Háskóli Íslands ekki tækifæri til að taka hófleg skólagjöld til að renna styrkari stoðum undir sína starfsemi? Því skólagjöld eru, þegar upp er staðið, minnsti kostn- aðurinn við nám sem nemandi legg- ur út í. Finnst þér ekki mikilvægt að það sé til staðar háskóli sem stendur öllum til boða óháð því hvað þeir hafa á milli handanna? Bifröst stendur öllum til boða óháð því hvað þeir hafa á milli handanna vegna þess að við erum með ákaflega öflugt námslánakerfi á Íslandi sem lánar fyrir skóla- gjöldunum. Ég tek sjálfan mig sem dæmi: Ég er kennarasonur, foreldr- ar mínir eru grunnskólakennarar og ekkert hátekjufólk. Pabbi varð öryrki þegar ég var tíu ára gam- all, þannig að ekki voru miklar tekjur þar. Ég hafði tækifæri til að nema við dýrustu og bestu háskóla í heimi. Ég nam við Cambridge- háskóla af því að kerfið hérna gerði mér það kleift. Það skiptir engu máli hvaða félagslega bak- grunn þú hefur og hvort það eru einhver skólagjöld, þú getur klof- ið það því það er lánað fyrir skóla- gjöldunum. Og staðan er einfaldlega sú að menntun er einhver sú besta fjár- festing sem einstaklingur getur lagt út í og skilar sér margfalt til þeirra í tekjum í framtíðinni. Það er einfalt að sýna fram á það. Hófleg skólagjöld, eins og eru við íslenska háskóla – skólagjöldin á Bifröst eru um 20 prósent af því sem þau myndu vera við sambæri- legan skóla í Bandaríkjunum – eru mjög lítil prósent af þeim kostn- aði sem nemendur eru að leggja til í sínu námi. Fólk tekur miklu hærri lán fyrir framfærslu en fyrir skólagjöldum við íslenska háskóla. Einhvern tímann var reiknað út að miðað við þann tekjuauka sem meðalnemandinn á Bifröst mætti vænta eftir útskrift þá væri hann, bara með tekjuaukanum, búinn að borga upp skólagjöldin sín á einu ári eftir útskrift. Reglulega skýtur upp kollinum gagnrýni á námið á Bifröst – það ■ Háskólinn á Bifröst fær um 333 milljónir króna í framlög frá ríkinu á þessu ári. Þar af eru 50 milljónir til rannsókna. Hinar 283 milljón- irnar eru föst framlög á hvert nemendaígildi, sem á Bifröst eru á sjöunda hundrað. N B I h f. ( L a n d s b a n k in n ), k t . 4 7 1 0 0 8 - 0 2 8 0 . E N N E M M / S ÍA / N M 4 17 6 0 Einkabankinn í símann þinn á l.is EINKABANKINN | landsbankinn.is | 410 4000 Nú getur þú sinnt bankaviðskiptum í símanum þínum, hvar og hvenær sem er. Það er einfalt að skoða yfirlit yfir stöðu reikninga og kreditkorta, framkvæma millifærslur, kaupa inneign fyrir GSM síma, sækja PIN-númer fyrir VISA kreditkort, greiða inn á kreditkort og fletta upp í þjóðskrá. Farðu inn á l.is og prófaðu Einkabankann í símanum þínum. Innskráning er með sama hætti og þegar farið er í Einkabankann í tölvunni þinni. Þú skráir notendanafn, lykilorð og auðkennisnúmer og þar með er fyllsta öryggis gætt.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.