Fréttablaðið - 29.05.2010, Síða 71
SVAMPTERTA MEÐ MIKIÐ AF
RJÓMA OG ÁVÖXTUM
6 egg
140 g sykur
140 g hveiti
Þeytið eggin og sykurinn saman
þar til orðið er stíft. Sigtið hveitið
og hrærið saman.
Bakið við 180 gráðu hita í 30 til 35
mínútur í hringlaga formi.
9 dl rjómi
1 vanillustöng
Svolítill sykur
Þeytið rjómann.
Skerið kökuna í þrennt. Fyllið hvert
lag með rjóma og ávöxtum eða
berjum. Hægt er að setja sultu í
rjómann í staðinn.
Efsta lagið er skreytt með rjóma og
berjum. Norðmenn elska jarðarber
og það er næstum alltaf skreytt
með þeim.
RAUTT LÍMONAÐI
1 kg rifsber
1 dl vatn
300 g sykur á lítra af límonaði
1 tsk. rotvarnarefni
Setjið rifsberin og vatnið í pott og
látið sjóða hægt og rólega. Látið
það krauma í 15 mínútur. Safinn
er sigtaður í gegnum klút og látinn
standa í eina klukkustund. Mælið
safann og bætið viðeigandi magni
af sykri við. Látið sjóða og svo
krauma í 5 mínútur. Takið froðuna
af og bætið rotvarnarefninu við.
Hellið á hreinar flöskur og setjið
tappann á um leið. CANEPA CLASSICO CABERNET SAUVIGNON
Flott angan af plómum, sólberjum og þurrkuðum ávöxtum.
Mikil fylling i munni sem brýst út í fersku berjabragði með hóflegu en
góðu tanníni. Þægilegt eftirbragð.
Passar með t.d. lambalæri með kraftmikilli sósu, svínakjöti,
þroskuðum ostum og meira að segja gráðostum og súkkulaði.
Prófið einnig Merlot eða Carmenere frá Canepa.
Verð 1.691 kr.
BACARDI MOJITO
Mojito frá hinum heims-
þekkta rommframleiðanda
Bacardi getur ekki klikkað.
Hérna ertu með tilbúinn
Bacardi Mojito og það eina
sem þú þarft til að búa til
frábæran Mojito er klaki og
Sprite/sódavatn –
Bacardi Mojito
„Ready to Serve“.
CANEPA CLASSICO SAUVIGNON BLANC
Tært vín með léttri sítrus angan, ferskt og létt í munni með þægilegri
sýru. Þessi Sauvignon Blanc gefur svo epla-, ananas- og ferskjutóna
sem gerir vínið ákaflega ferskt og þægilegt.
Passar með t.d sushi, hörpuskel, ostrum, grilluðum laxi, kjúklingi og
sumarsalötum.
Prófið einnig Chardonnay eða Reserva Pinot Grigio frá Canepa.
Verð 1.691 kr.
SUNRISE CABERNET SAUVIGNON
Frábært vín við flest tækifæri og magnað
yfir kosningavökunni – vín fyrir alla.
Engin spurning hvað skal kjósa!!!!
Verð í Vínbúðinni: 5.699 kr.
LA HABANERA TEMPRANILLO
Eitt af fáum vínum frá Spáni sem eru
fáanleg í boxi. Frábært vín með grill-
matnum og hentar sérstaklega vel
með lambakjöti.
Verð í Vínbúðinni: 5.499 kr.
ARTHUR METZ RIESLING
Flauelsmjúkt og frísklegt vín frá Alsace í
Frakklandi „Je Ne Sais Quoi“ – frábært við
flest tækifæri. Fær pottþétt 12 stig.
Verð í Vínbúðinni: 5.199 kr.
Góð
kaup
Góð
kaup
Góð
kaup
Góð
kaup
Góð
kaup
RAUÐVÍN • HVÍTVÍN
NÝTT TILBÚIÐ MOJITO
Við hátíðleg tilefni fáum við okkur norska bløt-kake sem er svamp-
terta,“ segir Helle Birkeli frá
Noregi, sem búið hefur á Ís-
landi síðustu tvö ár. „Norðmenn
gera þessa köku þegar sumar-
ið kemur. Þá er hægt að fá fersk
jarðarber, hindber og bláber og
kakan lítur mjög sumarlega út.“
Að sögn Helle er kakan oft
gerð við sérstök tilefni í Nor-
egi til dæmis í afmælum eða á
Eurovision. „Fólk elskar hana.
Hún getur þó stundum orðið
þreytandi fyrir krakka því það
er alltaf þessi kaka í boði,“ upp-
lýsir Helle hlæjandi.
Helle segir að kakan sé vin-
sæl á heimili hennar en hún
fann hana í uppskriftabók með
þjóðlega norska rétti. „Við
gerum líka stundum límonaði
með kökunni. Það er eitthvað
sem fólk fær sér á góðum sum-
ardegi og er frábært á meðan
horft er á Eurovision. Upp-
skriftin að því er reyndar feng-
in frá tengdamóður minni. Ég
get ekki eignað mér það.“
Helle hyggst búa til límon-
aðið og svamptertuna í kvöld
þegar hún horfir á Eurovision.
Hún segist jafnvel ætla að
skreyta tertuna með glimm-
eri. Helle hefur reyndar hvorki
heyrt íslenska lagið né það
norska áður. „Ég er að spara
þau fyrir kvöldið. Ég hef það
frá þeim tíma þegar ekki mátti
heyra lögin fyrir sjálfa keppn-
ina,“ segir Helle sem kann þó
enn að meta norska lagið frá því
í fyrra.
Helle ætlar að horfa á
Eurovision ásamt norskum
vinum sínum. „Við ætlum auð-
vitað að horfa á Eurovision á
norsku sjónvarpsstöðinni NRK
með norskum kynnum. Það er
mjög mikilvægt fyrir okkur,“
útskýrir Helle og bætir við að
til langs tíma hafi sami kynn-
irinn alltaf verið á Eurovision.
„Ég held að hann hafi verið rek-
inn því hann móðgaði drottning-
una okkar ef ég man rétt. Það
var samt ekki tengt Eurovision.
Honum var skipt út fyrir
tískugúrú frá Norður-Noregi.“
Sumarleg svamp-
terta og svalandi
norskt límonaði
Norðmenn fagna Eurovision í kvöld og því er tilvalið að skella í þjóðlega norska svamptertu og
rautt límonaði á meðan horft er á keppnina. Helle Birkeli gefur uppskrift að hvoru tveggja.
NORSKT GÓÐGÆTI Helle segir að Eurovision sé vinsælla í Noregi núna heldur en síðast
þegar það var haldið þar árið 1995. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Helle ætlar jafnvel að skreyta svamptertuna
með glimmeri í kvöld á meðan hún horfir á
Eurovision með norskum vinum sínum.
GAMLIR DÚKAR FÁ FRAMHALDSLÍF Tauservéttur gefa
veislunni hátíðlegra yfirbragð þegar lagt er á borð. Þó má draga úr
hátíðleikanum án þess að einnota bréfsérvéttur komi til, til dæmis
með því að hafa tauservétturnar í mismunandi litum við diskana og lífga
þannig upp á veisluborðið.
Til að koma sér upp safni af skemmtilegum tauservéttum í línskúffunni
er ráð að nýta gamla dúka og viskustykki sem farin eru að að trosna á
köntum eða eru með föstum blettum sem nást ekki úr. Þá eru klipptir
ferningar úr þeim hluta efnisins sem er heill, heppileg stærð gæti verið
30 x 30 sentimetrar. Gera skal ráð fyrir 1 sentimetra saumfari allan hring-
innn og svo eru kantarnir faldaðir í saumavél. Látið tilviljun ráða hvernig
blúnda eða mynstur sníðast inn í ferninginn, það er skemmtilegast þegar
engin servétta verður eins.
Norsk bløtkake