Morgunn - 01.06.1929, Qupperneq 73
MORGUNN
63
að, er þeim sýndist. Sjálfur vildi hann einungis fá að
handleika plötupakkann í viðurvist þeirra og með þeim
hætti, að þeir mættu sannfæra sig um, að hann beitti
engum brögðum. Á jóladagsmorguninn 1876 komu 16
menn, þar af 5 reyndir ljósmyndarar, til Hartmanns. Var
nú gengið til atkvæða um það, hvar tilraunina skyldi
gera, og var ákveðin til þess myndatökustofa Cutters
nokkurs, ljósmyndara, er fengist hafði nokkuð við að
„afhjúpa svik andaljósmyndara“ eins og það var orðað.
Hartmann hafði aldrei komið þar áður. Hann var því
ókunnugur umhverfi öllu og innan um eintóma efunar-
menn, sem sátu um hann, eins og köttur um mús. Að-
staða hans var því svo óhagstæð sem framast varð á
kosið. Hófust nú tilraunirnar. Var hver myndin tekin
eftir aðra og komu engar aukamyndir. Töldu nú þeir,
sem viðvoru staddir, loks gengið úr skugga um, að allar
„andamyndir" væri svik og blekking. Var nú aðeins ein
eftir af plötum þeim, er tilraunamennirnir höfðu haft
með sér. Fyrir sat nú maður að nafni dr. Morrow. Auk
myndar af honum kemur nú loks glögg og greinileg mynd
af ungum manni, sem hálfhuldi myndina af dr. Morrow.
Hartmann fékk aldrei að snerta plöturnar, þó að hann
hefði tilskilið það, og aldrei að stíga fæti sínum inn í
dimma byrgið, meðan þeir voru þar með plöturnar.
Vottorð um þetta gáfu þessir 16 tilraunamenn allir
saman og var vottorðið birt þar í opinberu blaði jafn-
harðan. Segja þeir, þó að varlega sé orðað, að þeim
hafi ekki verið unt að finna þess nokkur merki, að
Hartmann hafi haft frammi nokkur svik eða pretti.
Enda er ekki auðvelt að sjá, hvernig hann hefði átt að
geta komið þeim við, þótt hann hefði viljað, með þeim
varúðarreglum, sem hafðar voru. Til þess hefði hann lík-
lega þurft að dáleiða þá alla, því að varla er hugsanlegt
að hann hefði getað gert þeim öllum þær sjónhverfingar,
að honum hefði verið unt að skifta um plötu án þess að
nokkur þeirra hefði orðið þess var, eða hafa í frammi