Morgunn


Morgunn - 01.12.1944, Side 32

Morgunn - 01.12.1944, Side 32
126 MORGUNN þrátt fyrir sorg hennar, og hugga hana á einhvern hátt. Eftir nokkur augnablik sá hann, sér til hugarléttis, að grátur hennar hægðist og hætti brátt. Hún hafði legið að hálfu leyti á grúfu, en nú reisti hún sig lítið eitt upp á olnboga og leit spyrjandi í kringum sig. Andlit hennar var að vísu þrútið gráti, en það var ekkí lengur afskræmt. Dálítill undrunarsvipur, sem vonarneisti iýsti upp, kom á andlit hennar og hún hvíslaði, spyrjandi, undrandi og biðjandi: ...Geoff?“ f*ann stóðst þá löngun sína, að taka hana aftur í faðm sér og láta i ljós ást sína og þrá, en hélt áfram að koma inn hjá henni vitundinni um nærveru sína og láta hana fá vissu um sig og tilveru sína og ást sína til hennar. Hún virtist hafa einhverja hugmynd um þetta, því að hún sagði aftur: ,,Geoff!“ og svo augnabliki síðar: „Geoff, ertu hérna? Er þetta virkilega þú? Talaðu við mig, ef það er þú“. Hann svaraði: „Já, ég er hér. Eg er lifandi. Reyndu að trúa því. Harkaðu af þér og reyndu að lifa áfram og bíða eftir að komast til min. Við hittumst aftur og þangað til skal ég hjálpa þér, eins og í mínu valdi stendur“. (Þessi orð hljóta að hafa verið sögð miljón sinnum, af miljónurn sálna, sem koma aftur og langar til að hugga þá, sem þeir eiska og sjá, að eru harmi lostnir). Geoffrey sá, að móðir hans heyrði ekki rödd hans, en hún varð rólegri á svipinn. Hún snéri sér við og lá á hlið- inni og horfði fram undan sér, og Geoffrey fann, að hún horfði í gegnum hann, án þess að sjá hann. Hann vissi, að einhver huggun hafði borist frá huga hans til hennar. Hann var sjálfur dálítið þreyttur núna, en samt glaður og L- nægður yfir að hafa náð einhverjum árangri í þessaii fyrstu ferð sinni til hennar. Hann fann, að hann hvarf smát.t og smátt af þessu sviði, án þess að hafa neinn vilja til þess sjálfur. Hann virtist snúa aftur til síns sviðs án nokkurr- ar meðvitundar um, hvernig hann færi að því, alveg eins og hann hafði gert á ferð sinni til jarðarinnar.

x

Morgunn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.