Morgunn - 01.12.1944, Qupperneq 44
138
MORGUNN
hrif á Mark Twain, að hann varð þegar ástfanginn af
henni. Af frásögninni sýnist svo, sem föður Olivíu hafi alls
ekki getizt að þessum unga manni, sem tengdasyni, ekki
talið hann boðlegan fyrir dóttur sína. Andstaða fjölskyld-
unnar rénaði síðar. Þau giftust, og faðirinn gaf þeim hús
til að búa í. Þau lifðu saman 34 hamingjurík ár, unz
Olivía andaðist. Gamli sjúkdómurinn gerði aldrei vart við
sig aftur. Þegar að því dró, að hinn frægi skopsagnahöf-
undur skyldi deyja og sameinast Olivíu sinni í annað sinn,
tók hann því með fögnuði og hann skrifaði í dagbókina
sína: ,,Hvar sem hún er, þar er pai’adís".
J. A. þýddi.
Strabo,
fornaldarfræðingui’inn (64 f. Kr. — 21 e. Kr.), segir frá því,
að í musterinu í Kanopus, sem helgað var egypzka guð-
inum Serapis, hafi verið tíðkuð ,,mikil tilbeiðsla og mörg
kraftaverk verið unnin, sem helztu menn þjóðai’innar hafi
ti’úað á og leitað eftir, en aðrir hafi gefið sig á vald hinum
heilaga svefni“.
,,Hinn heilagi svefn“ hefir vafalaust verið meðvitundar-
laus trans. Þó var musterið helga í Alexandi'íu enn fræg-
ai’a fyrir véfréttir sínar, hinn „heilaga svefn“ og lækninga-
undur.